Bæjarins besta - 28.05.2003, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is
Kennari
Menntaskólinn á Ísafirði auglýsir eftir
kennara til að sinna kennslu fatlaðs einstakl-
ings á starfsbraut skólans næsta vetur. Um
er að ræða 15-20 kennslustundir á viku.
Umsækjendur þurfa að uppfylla skilyrði
6. gr. laga nr. 86/1998 um leyfi til þess að
nota starfsheitið framhaldsskólakennari.
Starfskjör fara eftir kjarasamningi ríkisins
og KÍ frá 7. janúar 2001.
Umsóknarfrestur er til 6. júní nk.
Nánari upplýsingar gefa Ólína Þorvarðar-
dóttir, skólameistari í síma 450 4401 eða
Emil Emilsson, umsjónarmaður brautarinn-
ar í síma 450 4408.
Göltur Holding, félag eig-
enda Galtarvita, hyggur á við-
gerðir á húsakostinum við vit-
ann og verður núna í mánaðar-
lok farið með efni og birgðir
til viðgerðanna. Ólafur Jónas-
son kvikmyndagerðarmaður
frá Ísafirði festi kaup á Galtar-
vita árið 2001 ásamt móður
sinni, Þórdísi Guðmundsdótt-
ur, og manni hennar, Halldóri
Guðmundssyni, sem búsett
eru á Ísafirði. Síðar stofnuðu
þau Göltur Holding í félagi
við þá Einar Þór Gunnlaugs-
son, Benedikt Gunnarsson,
Guðmund Konráðsson og
Hermann Þorsteinsson. Mark-
miðið er að gera upp staðinn
og koma til fyrra horfs. Ólafur
segir að þrátt fyrir að lítið hafi
verið átt við íbúðarhúsið á síð-
ustu ár sé það í þokkalegu
standi.
„Við þurfum þó að koma
við töluverðu viðhaldi til að
þetta verði í góðu horfi. Ætl-
unin er að fara á stórum báti
og ferja efni í land og koma
því upp að húsinu. Við áætl-
um að taka einn dag í þetta“,
segir Ólafur.
Gerir upp íbúðarhúsið við Galtarvita
Eignarhaldsfélagið „Göltur Holding“
höndum atvinnumálanefndar
Ísafjarðarbæjar og hafnar-
stjóra Ísafjarðarbæjar en hún
verður samvinnuverkefni fjöl-
margra aðila í tengslum við
sjávarútveg, Byggðasafns
Vestfjarða, ferðaþjónustufólks
og veitingamanna.
Ætlunin er að vera með sér-
staka sýningu um sögu veiða
og vinnslu á rækju í Byggða-
safninu en meginþungi dag-
skrárinnar verður á hafnar-
svæðinu. Að auki verða í boði
fjölbreyttir rækjuréttir á veit-
ingahúsum bæjarins og ýms-
um fróðleik um rækjuiðnaðinn
miðlað.
Rúnar Óli Karlsson, ferða-
málafulltrúi Ísafjarðarbæjar,
segir ánægjulegt hversu vel
fyrirtæki og stofnanir í bænum
hafi tekið hugmyndinni en
rækjuhátíðin hafa alla burði
til að verða bæði fróðleg og
skemmtileg. „Það er verið að
hnýta lausa enda en við stefn-
um að því að hefja formlega
kynningu dagskrár í byrjun
júní“, sagði Rúnar.
Verið er að undirbúa rækju-
hátíð sem haldin verður á
Ísafirði dagana 7. til 10. ágúst.
Tilefnið er að 80 ár eru liðin
frá upphafi rækjuveiða við Ís-
land. Þær hófust í Ísafjarðar-
djúpi og hefur Ísafjörður frá
upphafi gegnt lykilhlutverki í
sögu rækjuiðnaðar á Íslandi.
Skipulag hátíðarinnar er í
Rækjuhátíð haldin á Ísafirði í sumar
80 ár frá upphafi rækjuveiða og vinnslu á Íslandi
Vormót Golfklúbbs Ísa-
fjarðar var haldið á laugar-
dag í Tungudalsvelli. Alls
mættu um fimmtán kylfing-
ar til leiks og fóru átján holur
en leikið var með punkta-
formi.
Ísfirðingurinn Einar
Gunnlaugsson varð hlut-
skarpastur og hlaut 50
punkta. Páll Guðmundsson
frá Golfklúbbi Bolungarvík-
ur varð í öðru sæti með 42
punkta og Vilhjálmur Ant-
onsson á Ísafirði varð þriðji
með 39 punkta.
Einar Gunn-
laugsson sigraði
Vormót Golfklúbbs Ísafjarðar
Magni Guðmundsson netagerðarmeistari á Ísafirði skrifar
Nokkur orð um fyrirhugað-
an varnargarð við Seljaland
Nú fer að líða að lokaversinu
í byggingu snjóflóðavarnar-
garðsins í Seljalandsmúla hér
á Ísafirði. Framkvæmdir hafa
verið boðnar út og tilboð verið
opnuð, þó ekki liggi enn fyrir
hver hlýtur hnossið þegar þetta
er skrifað. Ég hef það á til-
finningunni að fólk almennt
geri sér ekki grein fyrir hvar
garðurinn kemur í landið, né
hvar hann byrjar eða endar.
Ég efast einnig um að bæj-
arbúar almennt geri sér grein
fyrir hvílíkt ofboðslegt jarð-
rask mun fylgja þessum fram-
kvæmdum, sem ekkert okkar
á auðvelt með að sjá tilgang í.
Allur norðurhluti Múlans frá
því rétt neðan við Skíðaskál-
ann verður rifinn upp niður að
brúnni á Skíðaveginum auk
stórkostlegrar tilfærslu á jarð-
vegi, því þar verður allt efnið
í garðinn tekið. Neðan vegar-
ins verður einnig farið í báðar
áttir við garðinn, tugi og á
stórum hluta yfir hundrað
metra. Ofan við Skíðaveg utan
Seljalandsár verða reistar níu
keilur til þess að taka mesta
„áfallið“ af garðinum.
Allt er þetta algróið land
með berjalyngi og trjárækt
sem hefur tekið vel við sér á
síðustu árum og mun taka ára-
tugi að koma í líkt horf, gróð-
urfarslega séð.
Það er ekki sama landið þótt
búið sé að strá yfir það grasfræi
og stinga niður lúpínum og
komin á það græn og blá slikja,
að ég nefni ekki gjörbreytt
landslag. Hvar skyldu náttúru-
verndarsamtökin hafa verið?
Ætli þau hafi verið svo upptek-
in af eyðisöndum og jöklum
annars staðar að þessu hafi
bara verið skrúbbað út af borð-
inu og í ruslafötuna, hafi það
einhvern tíma komist svo
langt?
Sérfræðingarnir leyfðu víst
náðarsamlegast styttingu á
garðinum um nokkra metra,
þannig að ekki þarf að rífa
Seljalandsbæinn, allavega
ekki alveg strax. En ekki var
hægt að sleppa beygjunni á
garðinum neðan við Skíðaveg-
inn eða færa garðinn nokkra
metra út eftir svo hann væri
varinn líka. Hættan er víst svo
mikil á ca. 3.000 ára fresti að
þá hefði víst þurft að hækka
garðinn um einhver ósköp,
skilst mér, þrátt fyrir að Selja-
landsbærinn sé búinn að
standa á sama stað svo öruggt
sé í að minnsta kosti 800 ár.
Og hvernig skyldi standa á
að allar þessar framkvæmdir
og rót er gert á þessum stað af
þeim einna ólíklegustu hér við
Skutulsfjörð? Ekki treysti ég
mér til að skýra það. En ekki
er annað að sjá en að snjóflóð-
in sem féllu í Súðavík og á
Flateyri 1995 og aðstæður á
þeim stöðum hafi verið færðar
beint yfir á flesta þá staði á
landinu sem hættumat hefur
verðið unnið fyrir á undan-
förnum árum. Það er gert þrátt
fyrir að á þeim tíma féll ekkert
snjóflóð ofan þess svæðis sem
garðurinn í Seljalandsmúla á
að verja niður fyrir Skíðaveg.
Það virðist bara vera ein-
blínt á eitthvert reiknilíkan af
því sem gæti kannski skeð á
þúsunda ára fresti. Þarna virð-
ist sagan síðustu 800 ár alveg
verða útundan.
Það er mjög alvarlegt hvað
bæjaryfirvöld hafa lítið að
segja í svona málum. Eftir því
sem mér skilst hefur ekkert
verið farið að tillögum þeirra
eða hlustað á mat staðkunn-
ugra. Allt er nú komið í lög frá
Alþingi, til stofnana sem setja
reglugerðir, sem sérfræðingar
túlka síðan og móta sínar til-
lögur og gæta þess að allt sem
að þeim snýr sé alveg örugg-
lega á hreinu.
Þeir sem vinna hættumatið
eru áreiðanlega ekki öfunds-
verðir af þeirri vinnu. En það
er mín skoðun að þeirra aðal-
regla hafi verið: Sem lengst
frá hlíðinni, og ef ekki, þá
sem hæsta og lengsta garðana,
þá erum við öruggir um að
hafa ekki gert neina vitleysu.
Það er ég alveg sannfærður
um, að enginn núlifandi Ís-
lendingur mun nokkurn tím-
ann sjá að þessi gríðarlega
röskun og upprót muni hafa
nokkurn tilgang. Á næstu öld-
um munu afkomendur okkar
trúlega halda að þarna hafi
einhver sægreifi látið byggja
yfir sig og sína veglegt graf-
hýsi.
Magni Guðmundsson.
Seljalandshverfið á Ísafirði. Lengst til hægri er húsið Seljaland.
21.PM5 18.4.2017, 11:068