Bæjarins besta - 28.05.2003, Page 12
1 2 MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is
plagg í hendur undirskrifað af öllum eða flestum húsráðendum
á Þingeyri, sem vildu fá að vita hvaða hús á Þingeyri væru
nefnd hinum tvíræðu nöfnum. Var málssókn hótað ef svör
fengjust ekki. Sigurður lét plagginu ósvarað og fór þar að ráð-
um séra Kristins Daníelssonar. Málið datt svo niður að öðru
leyti en því að Sigurður hafði skapað sér óvild margra Dýrfirð-
inga og þó einkum Þingeyringa: … lugu þeir því í ameríska
fiskimenn sumarið eftir, að eg hefði sagt um þá, að þeir væru
allir með syfilis, svo við lá, að þeir veittu mér umsát út af
þessu. Það var Wendel, verslunarstjóri á Þingeyri og staðgengill
Grams konsúls, sem kom vitinu fyrir Ameríkanana og sagði
þeim að það væri tilhæfulaust að Sigurður hefði borið á þá
hinn umgetna óhróður.
Um syfilis á Þingeyri sagði Sigurður læknir í grein sem
birtist í Þjóðviljanum unga: Það er þannig að skilja, að jeg hefi
allopt haft til meðferðar „syfilis“ sjúklinga, en, vel að merkja,
að eins … 3 Íslendinga … hitt hafa einkum verið Ameríkanar
og Danir.
Ekki er vitað til að nein af barnsmæðrum Ameríkananna hafi
smitast af kynsjúkdómum. Þær voru sex talsins. Sjá eftirfarandi
skrá:
Börn amerískra sjómanna sem viðkomu
höfðu í Dýrafirði á árunum 1885-1892
1886 Evfemía Ingisól, fædd 25.02.
Foreldrar: Ingibjörg Bjarnadóttir, Nýjabæ, 24 ára, lýsir föður
Edward Ingersoll, stýrimann á ameríkönsku fiskiskipi. Evfemía
Ingisól lést 8. júlí 1887.
1888 Valgerður Evfemía, fædd 21. mars.
Foreldrar: Ingibjörg Bjarnadóttir, Nýjabæ, 26 ára, lýsir föður
Thomas Scott sjómann frá Ameríku.
1888 Guðmundur, fæddur 29. apríl.
Foreldrar: Sigríður Andrea Thomsen, 27 ára stúlka í Hólum,
lýsir föður Thomas Scott sjómann frá Ameríku.
1889 Jón, fæddur 15. febrúar.
Foreldrar: Jakobína Jóh. Jónsdóttir, 38 ára vinnukona á
Brekku, lýsir föður Jón (John) Jacobssen sjómann frá Ameríku.
1891 Hjálmar, fæddur 26. febrúar.
Foreldrar: Ingibjörg Bjarnadóttir, Nýjabæ, 29 ára, lýsir föður
amerískan sjómann er hún nefnir John, en vill eigi segja frekar
til nafns hans að sinni. [John Diego]
1892 Guðbjartur Maríus, fæddur 21. febrúar.
Foreldrar: Mikkalína Guðbjartsdóttir, 22 ára vinnukona á
Klukkulandi og Axel, ameríkanskur sjómaður. Guðbjartur
Maríus lést dags gamall 22. febrúar.
1893 Teódór Ásgeir, fæddur 9. júní.
Foreldrar: Jóna Jónsdóttir, vinnukona á Þingeyri, 31 árs,
lýsir föður Magnús Ottó Lindberg, sjómann á amerísku skipi.
Teódór Ásgeir dó í Valþjófsdal 8. október 1893.
1893 Geirþrúður, fædd 17. mars.
Foreldrar: Svanborg S. Pálsdóttir, 27 ára vinnukona á Ás-
garðsnesi, lýsir föður Charles Adamsson, amerískur sjómaður.
Geirþrúður dó 7. apríl 1893.
[Prestsþj.b. Sanda og Dýrafjarðarþinga]
Valgerður Evfemía, Guðmundur, Jón og Hjálmar eiga öll
marga afkomendur.
Barnsmæður Kananna máttu þola mikla vandlætingu, ekki
bara Dýrfirðinga heldur landsmanna almennt. Í Þjóðviljanum
unga mátti t.a.m. lesa þetta: … getur því svo farið, þegar þessi
orðrómur er á lagstur að enginn almennilegur maður þori að
kvongast kvenmanni þaðan [úr Dýrafirði].
Þetta varð að áhrínsorðum hvað varðaði Kanabarnamæðurnar,
nema Sigríði Andreu Thomsen, sem kom sér úr landi og giftist
til Noregs. Hinar konurnar fimm giftust ekki en háðu einar
erfiða lífsbaráttu.
Flestar urðu lúðuveiðiskonnorturnar hér við land árið 1894
eða 13 talsins. Sú fjórtánda týndist í hafi á leið til landsins. En
lúðan gekk til þurrðar og eftir það höfðu Gloucestermenn ekk-
ert hingað að sækja. Aðeins ein skonnorta kom hér 1897. Þetta
var Sara F. Lee. Hún sigldi alfarin út Dýrafjörð 22. maí. Þar
með lauk lúðuveiðum Gloucestermanna við Ísland.
Skyggnst í dagbók Alex D. Bushie
Dagbók Alex D. Bushie er rituð í Íslandsleiðangri John Bap-
tiste Duguo skipstjóra á skútunni Concord 1890. Áhöfnin sem
kom frá Gloucester var þessi skv. dagbókinni: John Duguo
skipstjóri („the old man“, gamli maðurinn, kallinn), mat-
sveinninn og kona hans, Alex D. Bushie dagbókarhöfundur,
Frank Petersen, Peter Erickson, Levi Shedd, Ben og the Dumie.
Joanne M. Gallant [f. Burke] vélritaði upp dagbókina stafrétt,
en John B. Duguo er langalangafi hennar. Undirritaður fékk
ljósrit af afriti Joanne fyrir tilstilli Jóhanns Arnórssonar Diego,
sem einnig er afkomandi Johns skipstjóra.
Fyrsti færsludagur dagbókarinnar er 26. mars 1890, en þann
dag hélt Concord frá Gloucester áleiðis til Íslands. Ferðin gekk
vel. Á öðrum degi var góður skriður á Concord. „Gamli mað-
urinn“ líkti henni við kappreiðahross (27. mars 1890).
Veður var umhleypingasamt og hafísjakar voru í sjónmáli
nokkra daga í byrjun apríl. Það voru því miklar annir hjá skips-
höfninni við að hagræða seglum og fylgjast með ísnum. Þegar
næði gafst var gripið í spil og gjarnan spilað upp á peninga (26.
mars symbol 174 \f “Symbol” \s 13 10. apríl). Ellefta apríl var
Concord komin að mynni Dýafjarðar og „kallinn“ ákvað að
halda þar kyrru fyrir næstu nótt og freista þess að verða sér úti
um fuglakjöt daginn eftir (11. apríl).
Laugardagur 12. apríl
Lygn, hlýr og fallegur morgunn miðað við árstíma. Við
snæddum morgunverð kl. 7. Dumie hlóð skothylki og „kallinn“,
Frank og Dumie fóru á fuglaveiðar á doríu. Meðan þeir voru
fjarverandi kom fiskiskip dýrfirskt út fjörðinn með blaktandi
fána á leið í sína fyrstu veiðiferð. Skipstjórinn af þessu skipi
kom um borð og færði okkur flösku af rjóma. Hann sagði okkur
að John W. Bray væri inni. Hún kom í gær. Commonwealth
hafði farið út í sína fyrstu veiðiferð í gær. Þetta voru einu
skonnorturnar sem komnar voru. W. Rice er ekki komin ennþá
Amerískir lúðuveiðarar í Þingeyrarhöfn 1892. Ljósmynd: Mannlíf og saga, 5.
Hótel Niagara (Vertshúsið), fyrsta greiðasölu- og gistihúsið
á Þingeyri. Í risinu hefur nánast engu verið breytt. Húsið er
nú í eigu Kvenfélagsins Vonar á Þingeyri. Ljósmynd: Mannlíf
og saga, 1.
en hún lagði af stað viku á undan okkur. Hún lagði af stað á
sama tíma og Commonwealth. „Kallinn“ kom um borð um há-
degi með 13 endur [vafalítið æðarfugl, innsk. höf.]. Litli Jón,
eins og við köllum hann, var með honum ásamt tveim öðrum
náungum. Hann hefur verið á skipinu fjögur ár núna. „Kallinn“
borgaði honum 108 krónur, inneign frá síðasta ári. Um hádegið
gerði N.V. gjólu, hagstæðan byr inn flóann svo við fórum inn.
Okkur var sagt að vetur hefði verið mjög harður, mikill snjór,
hæðir og lautir eru hvítar og það lítur út fyrir að snjórinn sé 20
feta djúpur sums staðar. Kl. 3 vörpuðum við akkerum á Þingeyri
rétt hjá bryggju Grams. Eitt af skipum Grams er inni, nýkomið
frá Evrópu með farm af kolum. John W. Bray liggur við bryggj-
una og er verið að landa varningi úr henni. Við gerum ekkert
fyrr en á mánudagsmorgun, þegar við hefjumst handa. Við
settum upp beituborð síðdegis eftir að við höfðum lagst við
ankeri. Wendel flaggaði ameríska fánanum yfir verslun sinni,
Gram er konsúll. Stuttu eftir að við lögðumst við stjóra og
gengið hafði verið frá seglum, rakaði „Kallinn“ sig og fór í
land með póstinn. Við hinir rökuðum okkur og gerðum okkur
klára til landgöngu. Um 9-leytið var komið myrkur og logn.
Þessir síðustu dagar hafa verið bestu dagar vorsins.
Sunnudagur 13. apríl
Það er eins fallegur morgun og þú gætir óskað þér. Við
snæddum morgunverð klukkan 7. Í gærkveldi var um borð hinn
ungi Kristján Gram og Thorton [sennilega Finnur Þórðarson]
yfirmaður fiskideildar. „Kallinn“ tók nokkur skópör, skyrtur
og húfur og hafði með sér er hann fór í land með þeim. Við vor-
um í landi dálitla stund í gærkveldi og komum um borð um 9-
leytið alveg allsgáðir. Þrír af piltunum sóru fyrir þessa ferð að
drekka ekki. Peter, Frank og Levi, ég og “kallinn” eru þeir einu
um borð sem geta slett í sig þegar okkur lystir. Ég vona að
strákarnir standi við orð sín og drekki ekki í sumar. Það er svo
miklu æskilegra. Áhöfn Nelsons [skipstjóra á J.W. Bray] var
mjög drukkin í gær og í gærkveldi voru þeir að taka salt og það
voru aðeins 5 eða 6 í þessu starfi, hinir voru í heilsubótargöngu,
drekkandi. Nelson skipstjóri er of vægur við menn sína, hann
má sín lítils. Hann er með erfiðan hóp í öllu tilliti, sem mun
gera honum lífið leitt í sumar. Um 2-leytið fór J.W. Bray frá
bryggju. Við lögðum að … . Kristján Gram og Thorton snæddu
hjá okkur miðdegisverð í dag. Framan af degi var logn og mjög
hlýtt þó nóg sé af snjó í fjöllunum. Síðdegis kom léttur andvari
af norðaustri. Undir kvöld var orðinn stífur vindur úti fyrir. Við
fórum að heimsækja vini okkar, fyrst Lamsons [Samsons? ].
Þar fengum við góðar móttökur, vín kaffi og koníak, en strák-
arnir stóðu við orð sín. Þeir snerta aldrei dropa, standa sig
vel, en ég held þeir hafi fengið vatn í munninn.
Mánudagur 14. apríl
Kl. 7 ræsti kokkurinn okkur til morgunverðar. Það hafði
verið mikil úrkoma og hitastig fór niður fyrir frostmark. Skæn-
ingur var á fljótinu [firðinum ?], logn í alla nótt og frameftir
morgni. McKinnon skipstjóri [á Commonwealth] fær gott
veiðiveður og, ef hann er í fiski, slær hann okkur við og hinum
líka. Um 11-leytið fór að vinda austan og kólna. Allt skæni rak
upp á ströndina. Við lönduðum megninu af varningi okkar
fyrrihluta dagsins. Kona og ung stúlka komu í heimsókn.
„Kallinn“ (the old man) er með böggul til hennar frá nokkrum
stúlknanna sem eru í Gloucester. Um miðjan dag höfðum við
komið öllum varningi okkar í land og kl. tvö, þá var flæði, fór-
um við frá bryggju og vorum síðan í önnum allt síðdegið. Vind-
ur er austan, mikil snjókoma úti fyrir, en minni hér inni með
köflum, æði kalt. Öll áhöfnin var komin um borð í morgun, átta
Íslendingar, einn á hverja doríu. Við drógum líka um doríufé-
laga. Við vorum bara þrír sem fórum í land. Við komum til baka
kl. 10 mjög kaldir.
Miðvikudagur 23. apríl
Það leit út fyrir að dagurinn í dag yrði betri en í gær, það dró
úr vindi og snjókomu slotaði, hér í höfninni [Ísafirði] en úti
fyrir er fannburður rétt við nesið og ég reikna með að þar sé
jafn hvasst og áður, ekki er fjallasýn. Síðdegis fórum við í land,
„Kallinn“, ég og Levi Shedd, við sáum refaskinn en þeir vilja
fá gott verð fyrir þau, nálægt 5 dollara. En það áhugaverðasta
sem við sáum var fjöldi áhafnarmanna af öðrum skonnortum,
sumir augafullir. Veslings innfæddir hljóta að álíta ameríska
fiskimenn æði illvíga náunga, það er til skammar enginn vafi
á því. Þrátt fyrir það, eitt er víst að enginn úr okkar áhöfn
hegðar sér svona. Okkur ofbauð, fórum um borð og spiluðum
lú.
Póstbáturinn á að koma hér á morgun en það er líklegt að
honum seinki vegna stormsins sem hefur verið mjög stríður.
Það er ekki búist við góðu veðri fyrr en vindátt breytist. Þú get-
ur engu spáð um norðaustanátt, hún er eins líkleg til að standa
í mánuð eins og viku. Ég vona hún standi ekki nema viku, því
við erum þreyttir af að liggja um borð í iðjuleysi. Það er ekkert
gaman að fara í land því þú getur ekki talað við neinn. Það er
nærri útilokað að skilja orð af því sem þeir segja, en þeir eru
fljótir að læra. Sumir náungarnir sem eru um borð hjá okkur
eru að læra.
Þegar ég er að skrifa þetta klukkan níu að kveldi eru fjórir
þeirra að spila innlent spil, þeir kunna fjölda mismunandi
spila, eins mörg og við kunnum og fleiri. Þeir kannast við flest
okkar spil eins og lú, vist eða sjö upp.
Föstudagur 25. apríl
Þetta var góður morgunn, mjög lítill vindur og sólin skein
skært. Eftir morgunverð fylltum við vatnsílát, síðan héldu allar
skonnorturnar út, A.D. Story fyrst. Meðan á þessu stóð fór
„Kallinn“ í land [á Ísafirði] til að vita hvort hann gæti selt
stígvél eða olíuföt. Hann er með mikið magn til sölu. Hann
seldi 12 stígvélapör. Peter Erickson keypti tvö refaskinn og
21.PM5 18.4.2017, 11:0612