Bæjarins besta - 28.05.2003, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 17Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is
Árgangur 1939 á tröppum Ísafjarðarkirkju.Árgangur 1959 á Silfurtorgi á Ísafirði.
Árgangur 1972 á Silfurtorgi á Ísafirði.
Þrjú árgangamót á Ísafirði um liðna helgi
Fermingarsystkinin hittust á ný eftir hálfa öld
Ísfirðingar og Hnífsdæling-
ar fæddir árið 1939 komu sam-
an um helgina í tilefni þess að
hálf öld er liðin frá fermingu
þessa árgangs. Fólkið hittist á
föstudagskvöld í nýja skíða-
skálanum í Tungudal, fékk þar
léttar veitingar og rifjaði upp
gömul kynni. Morguninn eftir
var komið saman á Silfurtorgi
og gengið þaðan í Grunnskóla
Ísafjarðar þar sem horft var á
gamalt myndband frá Ísafirði.
Síðan var haldið yfir í Tónlist-
arskóla Ísafjarðar, sem flest
gömlu fermingarbarnanna
þekkja best sem Húsmæðra-
skólann Ósk, og hlýtt á harmo-
nikuleik.
„Svo gengum við Tangagöt-
una og Sundstrætið og enduð-
um á vinnustað myndlistar-
mannsins Reynis Torfasonar í
gömlu vélsmiðjunni Þór. Það-
an fórum við í Sjóminjasafnið
og fengum harðfisk, hákarl og
brennivín að vestfirskum sið“,
segir Bára Einarsdóttir, ein úr
árgangi 1939.
„Við fórum svo í rútu og
vitjuðum leiða þeirra sem látn-
ir eru, fórum í Gamla sjúkra-
húsið þar sem við fæddumst
flest og héldum síðan til
Flateyrar að skoða varnargarð-
ana. Á leiðinni skoðuðum við
fossinn í Vestfjarðagöngum“,
sagði Bára.
Þegar hópurinn kom frá
Flateyri hélt hann rakleitt til
Bolungarvíkur. „Við keyrðum
hægt í gegnum Hnífsdal enda
eru nokkrir úr árgangnum það-
an. Við skoðuðum síðan Nátt-
úrugripasafnið í Bolungarvík
og komum ekki heim fyrr en
um klukkan sex. Um kvöldið
fórum við á Hótel Ísafjörð,
snæddum hátíðarkvöldverð og
dönsuðum svo við tónlist
Baldurs Geirmundssonar og
Margrétar Geirsdóttur.“
Mótinu lauk þegar hópurinn
fór í fermingarmessu á sunnu-
dag og gekk til altaris líkt og
fyrir fimmtíu árum. „Þetta var
alveg frábært og allir voru
mjög ánægðir. Þetta var í fyrsta
skipti sem þessi hópur kemur
saman“, sagði Bára Einars-
dóttir.
Hin gömlu
kynni gleymast ei
Árgangur 1972 úr Gagn-
fræðaskólanum á Ísafirði kom
saman um helgina en um þetta
leyti eru fimmtán ár liðin síðan
hópurinn útskrifaðist. Fólkið
hittist á Silfurtorgi á föstu-
dagskvöld fór rakleitt í óvissu-
ferð sem endaði í Reykjanesi í
Ísafjarðardjúpi.
„Þar fórum við í sund og
borðuðum léttan kvöldmat og
fórum síðan aftur til Ísafjarðar
um miðnætti. Á laugardag hitt-
umst við í hádeginu í nýja
skíðaskálanum í Tungudal,
snæddum hádegisverð og fór-
um yfir gamlar myndir og
ræddum saman. Um kvöldið
hittumst við á Sjallanum,
horfðum saman á Evróvision
og endurvöktum gömul
kynni“, segir Ingi Þór Ágústs-
son, einn úr árganginum.
Ingi Þór segir mótið hafa
tekist vel. „Það mættu 38 af
þeim 64 sem útskrifuðust fyrir
fimmtán árum. Það var mjög
gaman að sjá hversu vel gekk
að ná mannskapnum saman
eftir öll þessi ár“, segir Ingi.
Helgin heppnaðist
stórkostlega vel
Árgangur 1959 á Ísafirði,
sem gekk í fyrsta skipti til
altaris fyrir 30 árum, hittist á
Ísafirði um helgina. Að sögn
Sævars Óskarssonar, eins úr
árgangnum, hittist hópurinn á
föstudag og fór beint í óvissu-
ferð með Guðrúnu Kristjáns,
flaggskipi Sjóferða á Ísafirði.
„Við fórum inn í Vigur þar
sem var tekið vel á móti okkur
með hlaðborði og æðareggj-
um, sem ég hafði aldrei
smakkað áður. Úr Vigur fórum
við í Reykjanes þar sem við
syntum og borðuðum. Veðrið
var alveg meiriháttar og Djúp-
ið skartaði sínu fegursta“, segir
Sævar.
Á laugardag fór hópurinn í
skoðunarferð um Ísafjarðar-
kirkju með sr. Magnúsi Erl-
ingssyni sóknarpresti. Þaðan
var farið í kirkjugarðinn á Rétt-
arholti, en þar er minningar-
grafreitur týndra sem árgang-
urinn átti þátt í að gera. „Svo
fórum við í jarðgöngin og
skoðuðum fossinn undir leið-
sögn starfsmanns Vegagerðar-
innar. Í Neðri-Breiðadal feng-
um við harðfisk og hákarl hjá
Halldóri Mikkaelssyni. Síðan
tókum við Flateyrarrúnt, fór-
um á dúkkusafnið þar, að
minningarsteininum og upp að
útsýnisskífunni á snjóflóða-
varnargörðunum.“
„Um kvöldið kom hópurinn
saman í Guðmundarbúð á Ísa-
firði og hélt matarveislu. Það
var almennt álit manna að
helgin hefði heppnast stór-
kostlega vel enda var veðrið
frábært allan tímann“, segir
Sævar Óskarsson.
Atvinna
Viljum ráða vélvirkja eða menn vana véla-
viðgerðum til starfa. Einnig menn vana smíði
úr ryðfríu stáli, áli og járni og menn til við-
halds á fasteign og lóð.
Upplýsingar í síma 898 4915.
Vélvirkinn sf. Bolungarvík.
21.PM5 18.4.2017, 11:0617