Bæjarins besta - 04.06.2003, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2003 Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is
Ólína Þorvarðardóttir skólameistari Menntaskólans á Ísafirði ávarpar nýstúdentana við útskriftarathöfnina í Ísafjarðarkirkju.
Menntaskólanum á Ísafirði var slitið við hátíðlega athöfn í Ísafjarðarkirkju
Aldrei hafa fleiri dagskólanem-
endur verið við nám í skólanum
Þrjátíu og níu nemendur, þar
af 29 stúdentar, voru braut-
skráðir frá Menntaskólanum
á Ísafirði við hátíðlega athöfn
í Ísafjarðarkirkju á laugardag.
Úr verknámi útskrifuðust að
þessu sinni 1 málarameistari,
5 vélstjórar, þar af 1 vélvirki,
og 4 nemendur af starfsbraut,
þar af einn á Hólmavík.
Stúdentarnir skiptust þannig
að 7 voru brautskráðir af nátt-
úrufræðibraut, 11 af hagfræði-
og tölvubraut, 5 af félags-
fræðibraut og 6 af mála- og
samfélagsbraut. Hæsta meðal-
einkunn á stúdentsprófi í ár
var 9,04 og var Herdís Anna
Jónasdóttir dux scholae. Fjöldi
gamalla nemenda var við
skólaslitin og fluttu fulltrúar
nokkurra afmælisárganga
ávörp.
Stúdentar
aldrei fleiri
Í skýrslu Ólínu Þorvarð-
ardóttur skólameistara við
skólaslitin kom fram, að alls
hafa 63 nemendur útskrifast
Þær luku námi af starfsbraut Menntaskólans á Ísafirði.
Fjórði nemandinn í þeim hópi stundaði nám sitt á Hólmavík
og var ekki við athöfnina á Ísafirði.
frá Menntaskólanum á Ísafirði
í vetur. Um áramót brautskráði
skólinn 24 nemendur, þar af 7
stúdenta, og var það stærsta
jólaútskrift við skólann frá
upphafi. Þannig hafa aldrei
fleiri stúdentar útskrifast frá
Menntaskólanum á Ísafirði en
á liðnu skólaári og aldrei hafa
fleiri dagskólanemendur verið
við nám í skólanum. Síðast-
liðið haust hófu um 350 nem-
endur nám við skólann, þar af
310 dagskólanemar. Á vorönn
voru dagskólanemar 318 og
kvöldskólanemar 38.
Fram kom í skýrslu skóla-
meistara, að brottfall nemenda
á nýliðnu skólaári var verulega
miklu minna en áður. „Sú nið-
urstaða er sannarlegt gleðiefni
fyrir alla aðstandendur og vel-
unnara skólans, ekki síst
starfsfólk hans og skólameist-
ara, því markvisst hefur verið
unnið að því undanfarin miss-
eri að minnka brottfall og bæta
námsárangur í skólanum með
sértækum aðgerðum, aukinni
umsjón og breytingu á skóla-
reglum“, sagði Ólína.
Verknáms-
kostum fjölgað
Skólameistari sagði að að-
sókn hefði aukist mest í bók-
náminu og svo virtist sem ungt
fólk sæki frekar í bókvit en
verkvit á þessum síðustu tím-
um.
„Hvort tveggja hefur þó
bæði hagnýtt og huglægt gildi.
Það er mikils um vert fyrir
hvert samfélag að hafa vel
menntað fólk á öllum sviðum
atvinnulífsins, bæði til hugar
og handa. Undirstöðuþekking
í verknámi nýtist ekki aðeins í
verklegum greinum – hinni
svokölluðu iðnmenntun – því
hún getur einnig komið sér
vel í ýmsum bóklegum grein-
um eins og stærðfræði og raun-
greinum og verið góður grunn-
ur í verkfræði og tækninámi á
háskólastigi, svo dæmi sé tek-
ið. Verknám býður upp á mun
fleiri möguleika en fólk al-
mennt gerir sér grein fyrir. Hér
við Menntaskólann á Ísafirði
er vilji fyrir því að auka val-
möguleika ungmenna til verk-
náms, og því höfum við ákveð-
ið að bjóða næsta haust upp á
nýtt grunnnám í byggingar-
greinum, þar sem nemendum
gefst kostur á því að kynna sér
í einum áfanga ýmsar greinar
verknáms á borð við trésmíði,
pípulagnir, múrverk og húsa-
málun. Er það von okkar að
þetta megi glæða skilning á
inntaki verkgreina og auð-
velda nemendum að gera upp
hug sinn varðandi það hvort
verknám á við þá eða ekki.“
Nýjungar á næstu önn
„Fleiri nýjungar eru á döf-
inni í námsframboði skólans
á næstu önn“, sagði skóla-
meistari. „Menntamálaráðu-
neytið hefur nú veitt skólanum
styrk til þess að koma á fót
Fjölmenningarbraut – al-
mennri námsbraut fyrir nýbúa.
Jafnhliða er nú unnið að end-
urskipulagningu á almennu
námsbrautinni, sem hingað til
hefur einkum staðið þeim til
boða sem ekki hafa staðist öll
samræmd próf úr grunnskóla.
Með leið þrjú á almennri
námsbraut verður nú opnaður
valkostur fyrir nemendur sem
eru óráðnir í námi til þess að
undirbúa frekara framhalds-
nám og finna sig í framhalds-
skólaumhverfinu.“
Breytingar
á starfsliði
Nokkrar breytingar verða í
starfsliði skólans. Nú í vor
hverfa frá skólanum Edda
Kristmundsdóttir bókavörður,
Ásgerður Bergsdóttir áfanga-
stjóri og íslenskukennari,
Baldur Gunnarsson ensku-
kennari og Jón Reynir Sigur-
vinsson, aðstoðarskólameist-
ari, sem fengið hefur launa-
laust leyfi til eins árs. Við stöðu
áfangastjóra tekur Guðmund-
ur Þór Gunnarsson og Guð-
bjartur Ólason mun gegna
starfi aðstoðarskólameistara.
Vel hefur gengið að ráða kenn-
ara til starfa að þessu sinni.
Metnaðarfullur hópur
„Að öllu samanlögðu má
skólinn vel við una að loknu
þessu starfsári. Við höfum náð
gleðilegum árangri í innra
starfi skólans þrátt fyrir harðn-
andi rekstrarskilyrði í um-
hverfi framhaldsskólanna.
Starfsfólk Menntaskólans á
Ísafirði er metnaðarfullur og
samstilltur hópur sem hefur
alla burði til þess stýra þessu
flaggskipi okkar til farsælla
miða. Megi okkur vel farnast í
þeim verkefnum sem fram-
undan eru“, sagði Ólína Þor-
varðardóttir skólameistari.
Hver er sinnar
gæfu smiður
Þegar Ólína Þorvarðardóttir
ávarpaði alla útskriftarnem-
endur sérstaklega sagði hún
meðal annars:
„Sá sem aflar sér menntunar
er sjálfur skapari sinna eigin
tækifæra. Samfélagið hefur
veitt ykkur þá menntun sem
þið hafið, og sömuleiðis þau
menntunartækifæri sem ykkur
standa nú til boða. Munið, að
ekkert af þessu er sjálfgefið.
Ég vona, að þau ykkar sem
hverfið nú á braut til frekara
náms eigi einhvern tíma eftir
að koma heim aftur með nýja
reynslu og þekkingu til að
auðga hér mannvist og at-
vinnulíf. Með því að verða
nýtar manneskjur endurgjald-
ið þið best það sem ykkur hef-
ur verið fært í hendur. Mennta-
skólinn á Ísafirði þakkar ykkur
samfylgdina þann tíma sem
þið hafið verið hér við skólann
og óskar ykkur velfarnaðar um
alla framtíð.“
Nemendurnir fimm sem útskrifuðust úr vélstjórnarnáminu. Einn lauk meistaranámi í mál-
araiðn en hann gat ekki verið viðstaddur.
22.PM5 18.4.2017, 11:114