Bæjarins besta


Bæjarins besta - 04.06.2003, Blaðsíða 16

Bæjarins besta - 04.06.2003, Blaðsíða 16
ÓHÁÐ Á VEST FJÖRÐUM FRÉTTABLAÐ Stofnað 14. nóvember 1984• Sími 456 4560 •Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 250 m/vsk Fornleifarannsóknir áður en framkvæmdir hefjast við snjóflóðavarnir Mannvistarminjar frá upp- hafi byggðar í Bolungarvík? Ragnar Edvardsson forn- leifafræðingur, sem vinnur að uppgrefti við Tröð í Bolung- arvík, segir mjög djúp og mikil mannvistarlög hafa komið í ljós, hin elstu þeirra líklega frá upphafi byggðar í Bolung- arvík. Uppgröfturinn er unn- inn á vegum Náttúrustofu Vestfjarða í Bolungarvík. Ver- ið er að grafa könnunarskurði til að ganga úr skugga um til- vist fornleifa á svæðinu áður en fyrirhugaðar framkvæmdir við snjóflóðavarnir hefjast þar. Þegar hafa verið teknir fjórir skurðir. „Við vitum ekki ennþá hvað þetta er en hérna stóð bærinn Tröð sem getið í heimildum frá því um 1200. Hérna eru gömul mannvistarlög. Ég get ekki slegið neinu föstu um ald- ur þeirra fyrr en aldursgreining hefur farið fram en þau elstu eru að öllum líkindum frá upp- hafi byggðar í Bolungarvík“, segir Ragnar. Ýmiskonar munir hafa fundist og segir Ragnar um- merki um allmargar byggingar vera hér og hvar í túninu. „Við erum komnir í eina byggingu sem er líklega frá því fyrir 1400 og það spretta upp forn- minjar hérna. Þetta eru þessir hefðbundnu munir, hnífsblöð, hnappar og fleira, en það er augljóst að hér eru merkilegir hlutir að gerast“, segir Ragnar. Ragnar Edwardsson og Ruth A. Maher fornleifafræðingar við uppgröftinn við Tröð. Stórhuga bændur taka fyrstu skóflustungurnar að nýjum fjósum Fjósbyggingar á döfinni á þremur bæjum á norðanverðum Vestfjörðum Fyrstu skóflustungur að nýj- um fjósum á Vöðlum í Önund- arfirði og í Botni í Súganda- firði voru teknar á föstudag. Því fer fjarri að slíkt gerist á hverju ári á norðanverðum Vestfjörðum. Bændur í hérað- inu voru í hátíðarskapi og fjöl- menntu fyrst að Vöðlum og síðan í Botn. Auk þeirra voru viðstaddir fyrstu skóflustung- urnar þeir Halldór Halldórs- Synir Árna á Vöðlum taka fyrstu skóflustungurnar. Benjamín Bent tekur stingur með skóflu en Brynjólfur Óli með gröfu. Faðir þeirra fylgist með. son, bæjarstjóri Ísafjarðarbæj- ar, Aðalsteinn Óskarsson hjá Atvinnuþróunarfélagi Vest- fjarða og Ágúst Gíslason húsa- smíðameistari, en fyrirtæki hans, Ágúst og Flosi ehf., mun að mestu annast byggingu fjósanna. „Í mínu fjósi verða 72 básar. Það á að vera tilbúið fyrir vet- urinn“, segir Björn Birkisson, bóndi í Botni í Súgandafirði. Fjós Árna Brynjólfssonar, bónda á Vöðlum, verður tæp- lega 550 fermetrar að stærð. „Þar verður pláss fyrir 43 mjólkurkýr og tilheyrandi ungviði. Fjósið verður miklu nútímalegra og tæknivæddara en það gamla“, segir Árni á Vöðlum. Mikill hugur er í bændum á norðanverðum Vestfjörðum að halda sínum hlut í mjólkur- framleiðslu. Til viðbótar stendur til að byggja þriðja fjósið á Hóli í Önundarfirði. Gestir fagna fyrstu skóflustungunni í Botni. Mynd: Björn Birkisson. 22.PM5 18.4.2017, 11:1116

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.