Bæjarins besta


Bæjarins besta - 04.06.2003, Blaðsíða 5

Bæjarins besta - 04.06.2003, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2003 5Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is Menntaskólinn á Ísafirði heimasíða: www.fvi.is netfang: mi@fvi.is sími: 450 4400 fax: 450 4419 Innritun Innritun er hafin í Menntaskólann á Ísafirði. Tekið er við umsóknum á skrifstofu skólans frá kl. 08:15-16:00 sem hér segir: Endurinnritun er til föstudagsins 6. júní. Innritun í öldungadeild er til 11. júní. Innritun nýnema fer fram 10. og 11. júní. Brýnt er að grunnskólaskírteini fylgi umsókn- um. Námsráðgjafi og áfangastjóri verða til viðtals 11. júní. Bóknámsbrautir: Almenn námsbraut Félagsfræðibraut Málabraut Náttúrufræðibraut Viðskiptabraut Iðn- og starfstengdar brautir: Grunndeildir bíliðna, matvæla, rafiðna og tréiðna. Málmiðnbraut Sjúkraliðabraut Starfsbraut Vélstjórn 1. og 2. stigs Samningsbundið iðnnám Um inntöku í skólann er farið eftir reglugerð nr. 98/2000, sjá vefslóð: http://brunnur. stjr.is/ mrn/logoregl.nsf/nrar/reglugerdir982000 Skólameistari. Sýslumaðurinn á Ísafirði hefur óskað túlkunar dóms- málaráðuneytis á því hver eigi að bera kostnað sem hlotist getur af leigu á tækjum til leit- ar og björgunar. Spurning þessi vaknaði fyrir stuttu þegar óttast var að ferðamaður á Hornströndum væri í nauðum staddur. Björgunarbáturinn Gunnar Friðriksson var bilað- ur og stóð til að björgunar- sveitir á svæðinu tækju bát á leigu. Ljóst er að þar hefði hlotist af nokkur kostnaður. Í ljós kom að maðurinn var heill á húfi og þarfnaðist ekki að- stoðar. Í bréfi sem Sigríður B. Guð- jónsdóttir, sýslumaður á Ísa- firði, skrifaði dómsmálaráðu- neytinu í framhaldi af þessu segir m.a: „Hafa þeir [fulltrúar björgunarsveitanna] lýst því yfir að þeir telji að slíkur kostnaður skuli ekki borinn af sveitunum, heldur embætti lögreglustjóra er fyrirskipar aðgerðir. Ekki hefur til þessa verið gert ráð fyrir slíkum kostnaði hjá embætti lögreglu- stjóra og leyfir fjárhagsrammi embættisins ekki frekari út- gjöld en ráðgerð hafa verið.“ Hver skal bera kostnað vegna björgunaraðgerða? Sýslumaður vill að ráðuneyti skeri úr Þrjár þorskeldiskvíar voru sjósettar í Ísa- fjarðarhöfn í síðustu viku. Kvíarnar eru í eigu Hraðfrystihússins-Gunn- varar hf. en eru fram- leiddar hjá Rörtækni ehf. á Ísafirði. Stórvirk tæki í eigu Sigurlaugs Baldurs- sonar voru notuð við sjósetninguna en Valur ÍS 20 var fenginn til að draga kvíarnar inn í Álftafjörð. „Síðan verður veiddur þorskur í þær í sumar“, segir Kristján G. Jóa- kimsson sjávarútvegs- fræðingur, vinnslu- og markaðsstjóri hjá Hrað- frystihúsinu-Gunnvöru. „Ein þeirra verður eftir í Álftafirði en hinar tvær verða dregnar áfram inn í Seyðisfjörð.“ Fyrir á Hraðfrystihúsið- Gunnvör þrjár kvíar í Álftafirði en þorskeldi fyrirtækisins er enn á tilraunastigi. „Þetta gengur allt samkvæmt áætlun og hefur staðið undir væntingum. Slátrað verður í haust, kannski nálægt 100 tonnum, og fiskurinn fer til vinnslu hjá okkur“, segir Kristján. Stefnt að slátrun á 100 tonnum af þorski í haust Eldiskvíum Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf. fjölgar Kvíarnar sjósettar á Ísafirði. Mynd: Þorsteinn J. Tómasson. Segir allt mæla með gatnagerð á Tunguskeiði í Skutulsfirði Nauðsynlegt að hafa bygging- arlóðir klárar og hús í byggingu Halldór Halldórsson, bæj- arstjóri í Ísafjarðarbæ, segir í bréfi til bæjarráðs að allt mæli með því að hefja framkvæmdir við gatnagerð á Tunguskeiði og nauðsynlegt sé að hafa byggingarhæfar lóðir klárar. „Verði það gert má reikna með byggingu 2-4 húsa strax í sum- ar. Það er nauðsynlegt í um- ræðu um atvinnumál, byggða- mál og uppbyggingu byggða- kjarna að á Ísafirði séu bygg- ingarlóðir klárar og íbúðarhús í byggingu. Það er hluti af framtíðarsýninni, hún skerpist og verður bjartari þegar við vitum af einstaklingum sem eru að byggja sér íbúðarhús- næði.“ Í umræðum um lóðamál hefur Hauganes fyrir botni Skutulsfjarðar einnig verið nefnt til sögunnar fyrir upp- byggingu íbúðarhverfis. Í aug- lýsingu tæknideildar Ísafjarð- arbæjar fyrir nokkrum vikum var óskað eftir því að þeir sem hefðu áhuga á að byggja á Hauganesi gæfu sig fram. Halldór segir að með þessu hafi tæknideildin verið að fara eftir fyrirmælum bæjarráðs sem hafi viljað athuga hvort fólk vildi frekar byggja á Hauganesi en á Tunguskeiði. Aðeins einn hafi lýst áhuga á byggingu á Hauganesi en nokkrir á Tunguskeiði. „Al- mennt má segja að það voru ekki margir sem gáfu sig fram en samt er nokkur áhugi til staðar.“ Halldór segir að þegar ákvörðun hafi verið tekin um að skipuleggja á Tunguskeiði hafi öll viðmið vegna snjó- flóðahættu verið í endurskoð- un eftir mannskæð snjóflóð á Vestfjörðum árin 1994 og 1995. „Hættulínur voru dregn- ar það neðarlega að ekki ein- ungis lenti Seljalandshverfi allt á hættusvæði heldur líka hluti þessa nýskipulagða íbúðahverfis. Eftir að ný reglu- gerð var sett á árinu 2000 kom endanlega í ljós að hverfið á Tunguskeiði er utan hættu- svæðis, hvað þá þegar kominn er snjóflóðavarnargarður til varnar Seljalandshverfi“, segir Halldór. Talsvert vantar upp á að Seljalandshverfið sé fullbyggt. „Seljalandshverfi er valkostur en væntanlega ekki fyrr en framkvæmdum við snjóflóða- varnargarð er lokið og hann hefur verði græddur upp“, seg- ir bæjarstjóri. Í áðurnefndu bréfi bæjar- stjóra kemur fram að áætlaður kostnaður við fyrsta áfanga gatnagerðar á Tunguskeiði er 35 milljónir króna. 22.PM5 18.4.2017, 11:115

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.