Bæjarins besta


Bæjarins besta - 04.06.2003, Blaðsíða 13

Bæjarins besta - 04.06.2003, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2003 13Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is Sólmyrkvinn sást vel frá Þorskafjarðarheiði. Ljósmynd: Steinunn Matthíasdóttir. Hringmyrkvi á sólu aðfaranótt laugardagsins Sannarlega þess virði að vaka og rúnta upp á heiði – sáralítið rökkvaði þegar tunglið færðist fyrir sólina Sólmyrkvi á Þorskafjarðarheiði. Ljósm: Steinunn Matthías- dóttir. Allvel sást til sólar víða á norðanverðum Vest- fjörðum þegar hring- myrkvi á sólu varð laust eftir kl. fjögur aðfaranótt laugardagsins. Þó var nokkurt skýjafar og mun skýjaslæðan sem lýstist upp kringum sólu hafa valdið því að sáralítið rökkvaði meðan myrkv- inn gekk yfir. Raunar sást máninn ekki ganga fyrir sólu nema með mjög dökkum sjónhlífum en með berum augum virtist sólin skína ámóta skært þótt tunglið hyldi hana að mestu ofurlitla stund. Himinninn hafði verið nærfellt heiðskír allan daginn áður og það var ekki fyrr en seint um kvöldið sem skýjaslæður og skýjabakkar tóku að safnast fyrir á hvelfing- Sólmyrkvinn sást einnig vel ofan af Bolafjalli við Bolungarvík. Ljósm: Grímur Lúðvíksson. unni. Fjöldi fólks lagði leið sína út á Arnarnes við ut- anverðan Skutulsfjörð og hafa væntanlega verið þar á þriðja hundrað manns. Einnig fór nokkur hópur upp á Bolafjall utan Bol- ungarvíkur, þar á meðal tveir Bretar og einn Frakki, ásamt heima- mönnum. Dálítill hópur var uppi á Breiðadalsheiði í liðlega 600 metra hæð. Steinunn Matthíasdóttir fór upp á Þorskafjarðar- heiði ásamt fleira fólki og segir að þaðan hafi verið frábært að sjá þegar tungl- ið byrjaði að hylja sólina eða þegar deildarmyrkvi hófst. „Aðstæður voru mjög góðar og við notuð- um rafsuðuhjálm og filmur til að fylgjast með fyrir- bærinu. Þegar við horfðum í gegnum rafsuðuhjálminn mátti greina hvernig mótaði fyrir tunglinu í heild sinni þar sem það færði sig yfir sólina. Þegar deildarmyrkvinn var að verða búinn og styttist í hringmyrkvann fór sólin að færa sig upp í ský og við urðum stundarkorn svartsýn á að sjá hring- myrkvann. En viti menn, við náðum honum öllum því sólin náði á stuttum tíma að kíkja í gegnum myndarlegt gat á skýj- unum og við það varð mikill fögnuður í okkar litla hópi. Okkur tókst líka ágætlega að sjá hvernig tunglið rann frá aftur þótt skýin færu að trufla alveg í lokin. Það var svo sannarlega þess virði að vaka og rúnta upp á heiði!“ sagði Steinunn. Þeir sem muna sólmyrkvann árið 1954 minnast þess vel hversu mikið dimmdi þá en sá myrkvi varð að degi til. Þá hljóðnuðu fuglar og var eins og náttúran öll legðist í dvala meðan myrkvinn stóð. Svo fór ekki nú enda eru fuglar hvort að jafnaði hljóðir um fjögurleytið að nóttu hvort eð er. Sólmyrkvinn séður frá Arnarnesi við Skutulsfjörð. Ljósm: Þorsteinn J. Tómasson.Vel á þriðja hundrað manns voru samankomin á Arnarnesi aðfaranótt laugardags. Ljósm: Þorsteinn J. Tómasson. 22.PM5 18.4.2017, 11:1113

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.