Bæjarins besta - 04.06.2003, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2003 Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is
Fjölbreytt verkefni á stóru
menningar- og búskaparheimili
– sunnudagsheimsókn til bændanna Helgu Guðnýjar og Björns í Botni í Súgandafirði
Bændurnir í Botni í Súgandafirði, þau Helga
Guðný Kristjánsdóttir og Björn Birkisson, láta
sér ekki nægja að að hirða um kýr og kindur.
Þau eru virkir þátttakendur í menningarlífinu á
svæðinu, syngja með fjölmörgum kórum og
léðu Söngvaseið raddir sínar í vetur. Rauða-
krossdeildin í Súgandafirði er til heimilis í
Botni en auk þess er Helga í framkvæmdanefnd
Sæluhelgarinnar á Suðureyri sem haldin er aðra
helgi í júlí ár hvert. Búreksturinn í Botni er að
stærstum hluta sameiginlegur með Birkihlíð.
Þar búa Svavar Birkisson, bróðir Björns, og
foreldrar þeirra, Birkir Friðbertsson og Guðrún
Fanný Björnsdóttir.
Viðfangsefnin í búskapnum
í Botni eru af margvíslegum
toga. Auk kúa- og fjárbúskapar
eins og áður var nefndur fer
þar fram raforkubúskapur, lax-
eldi og æðarvarp. Auk þess
sinna þau ýmsum verkefnum
víða í nágrenninu, meðal ann-
ars fyrir Ísafjarðarbæ og
Klofning á Suðureyri, til að
nýta betur tækjakost búsins.
Elst barna þeirra er Fanný
Margrét sem stendur á tvítugu.
Sindri Gunnar er 16 ára, Aldís
Þórunn 10 ára og Hólmfríður
María er á áttunda ári. Ekki
skal gleyma tengdasyninum
tilvonandi, Eiríki Gísla, en
amma hans er fædd og uppalin
í Botni I. Þau Fanný búa í
kjallaranum hjá Birni og
Helgu.
Á hlaðinu ganga frjálsar
ferða sinna hamingjusamar
hænur og endur sem sjá heim-
ilinu fyrir eggjum. Frá hús-
bændunum geislar orka og
lífsgleði. Í Botni er sannkölluð
heimilissæla enda er fólkið
umvafið náttúru og lífi. Þegar
komið er inn í eldhús fer ekki
á milli mála að hjarta heimilis-
ins slær ótt og títt á sunnudags-
kvöldi sem önnur kvöld. Sauð-
burður er í hámarki og mörg
handtök sem sinna þarf til að
fyrirtækið gangi upp. Í stjórn-
unarfræðunum væri þetta
sjálfsagt kallað að hafa stuttar
boðleiðir, opin vinnurými og
mikið upplýsingaflæði. Yfir
kvöldmatnum og fréttunum er
skipst á verkefnum og upplýs-
ingum en þess jafnframt gætt
að fylgjast vel með gangi
landsmálanna.
Hjónin hafa tekið frá tíma
til að ræða málin og í stofu er
borið fram kaffi og meðlæti af
myndarskap. Flatkökur með
hangikjöti, skonsur, rækjusal-
at og andaregg auk afar aðlað-
andi Hnallþóru, skreyttri
norskum fánum. Helga Guðný
útskýrir að þau hafi tekið að
sér norskan skiptinema til
vikudvalar og tilhlýðilegt hafi
þótt að skreyta kökuna í tilefni
þjóðhátíðardags Norðmanna
17. maí.
Eins og hjá
Stellu í orlofi
Þau hjón segja að iðulega
mannmargt og líflegt í Botni.
Helga: „Þetta er eins og
Hlemmur, fullt af vinum og
kunningjum kemur hérna í
heimsókn auk sumarkrakka að
sunnan. Björn segir líka að ég
hirði alltaf rest þegar ég sæki
krakkana í skólann.“
Björn: „Ég held stundum
að hún viti ekki hvað hún á
mörg börn heldur taki bara
þau sem eftir eru. Ég hef mest
spáð í hvort foreldrarnir viti
þegar krakkarnir þeirra eru
teknir hingað – annars er það
allt í lagi.“
– Hvernig háttaði kynnum
ykkar til?
Helga: „Við kynntumst á
Bændaskólanum á Hvanneyri.
Ég var að koma úr húsmæðra-
skóla og skráði mig í bænda-
skólann. Björn hafði lokið
B.S.-prófi frá bændaskólanum
og var fenginn til að vinna
fyrir Bútæknideild Rann-
sóknastofnunar landbúnaðar-
ins á Hvanneyri. Meðan ég
var að klára Garðyrkjuskólann
bjuggum við heima í Ölfusinu
og Björn keyrði rútur fyrir
pabba. En síðan fórum við
hægt og bítandi að síga hingað
vestur. Ég er semsagt Árnes-
ingur, nánar tiltekið frá Bakk-
árholti í Ölfusi. Reyndar mikið
til ættuð úr Skaftafellssýslun-
um í móðurætt.“
– Er ekki óhætt að segja að
búskapurinn hjá ykkur sé
óvenju fjölbreyttur?
Helga: „Við erum náttúrlega
með kindur og kýr að megin-
stofni. En hérna eru ýmis
hlunnindi sem við nýtum, eins
og æðardúnninn. Svo erum við
að reyna að byggja aftur upp
laxinn hjá okkur sem fór til
fjandans á einum degi þegar
verið var að grafa fyrir göng-
unum. Þá fylltist allt af leir og
drullu og síðan flutu fiskarnir
upp. Við höfum verið að kaupa
seiði undanfarin ár og setja í
ána. Þau eru sett í búr og fóðr-
uð en síðan sleppt. Við vonum
bara að þau verði dugleg að
stækka og komi aftur. Þeir hafa
sést hérna nokkrir laxarnir auk
smávegis silungs. En þetta
mætti vera meira.“
– Tekur langan tíma að
rækta upp ána?
Björn: „Þetta tekur gríðar-
langan tíma og má kannski
segja að það sé erfitt að vera
með svona lítið eldi eins og
hjá okkur. Flutningurinn á
seiðunum er gríðarlega dýr.
Það kostar um hundrað þús-
und að fá einn lítinn skammt.“
– Hvað hafði þessi upp-
bygging staðið lengi?
Björn: „Systkinin hérna í
efri bænum höfðu forgöngu
um að rækta upp ána. Þau voru
geysiáhugasöm og voru með
ána í alllangan tíma og unnu
að þessari uppbyggingu en
síðan komum við inn í það.
Helga: „Það var líf og fjör
hérna þegar verið var að draga
laxana á land.“
Björn: „Þetta voru upp í
22.PM5 18.4.2017, 11:118