Bæjarins besta - 07.03.2001, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2001
Horft til framtíðar á
tímamótum hjá KFÍ Karl Jónsson þjálfari KFÍ skrifar
,,Markmiðið að félag-
ið ali upp og þjálfi
eigin leikmenn“
Nú nýverið samþykktu
stjórn og foreldraráð Körfu-
knattleiksfélags Ísafjarðar
(KFÍ afreksmannastefnu fé-
lagsins sem í gildi verður til
ársins 2005. Í dag stendur fé-
lagið á nokkrum tímamótum,
þar sem ljóst er að karlalið
félagsins fellur niður um deild
og leikur í þeirri fyrstu að ári.
Frá því að liðið fór upp í úr-
valsdeild árið 1996 hefur
karlaliðið verið flaggskip fé-
lagsins en með samdrætti í
atvinnulífinu hefur reynst erf-
itt að halda úti rekstri liðsins í
þeirri mynd sem hefur verið
gert. Árlega hefur liðið þurft
á nokkrum aðkomumönnum
að halda, sem kostað hefur
peninga. Í kjölfar samdráttar
atvinnulífsins hefur styrkjum
fækkað og því er nauðsynlegt
að breyta um stefnu.
Kvennaliðið hefur verið að
standa sig vel og á mikla
framtíð fyrir sér. Verði rétt á
málum haldið getur það orðið
að stöðugu toppliði í 1. deild
kvenna. Unglingastarfið hefur
stóreflst á síðustu tveimur ár-
um og hefur iðkendum fjölgað
um 100% á því tímabili.
Afreksmannastefna sú, sem
samþykkt var, var unnin að
frumkvæði Unglingaráðs
KFÍ, sem í eiga sæti Þorsteinn
Þráinsson og Guðni Guðna-
son, auk undirritaðs og Guð-
jóns Þorsteinssonar, fram-
kvæmdastjóra og körfubolta-
frömuðar hér í bæ.
Markmiðin
Markmið stefnunnar er
skýrt:
• Að félagið ali upp og þjálfi
eigin leikmenn sem nái árang-
ri í efstu deildum beggja kynja
í framtíðinni. Að efla með
þeim félagsþroska og ala upp
í þeim tryggð við félagið.
Félagið ætlar að búa til sína
eigin leikmenn sem staðið
geta framarlega í íþróttinni í
framtíðinni. Þetta er auðvitað
ekki hægt nema að samspil
margra þátta komi til. Þar ber
fyrst að nefna þjálfun:
• Félagið mun leitast við að
hafa ávallt hæfa og menntaða
einstaklinga við þjálfun innan
félagsins.
• Á hverju ári verði efnt til
þjálfaranámskeiða til að færa
þeim þjálfurum nauðsynlega
menntun sem ekki hafa hana
fyrir og til að auka þekkingu
þeirra sem hana hafa þegar.
• Félagið mun gefa út náms-
skrá sem unnið verður eftir
þar sem skilgreind eru kenn-
sluatriði hvers aldursflokks
fyrir sig.
• Jafnframt mun félagið
skilgreina og útfæra sóknar-
og varnarkerfi sem byrjað
verði að kenna í yngri flokk-
unum og notuð alla leið upp í
meistaraflokka.
9. flokkinn (9. bekkinn).
Ákveðið var að senda fyrri
árganginn í einstaklingsæf-
ingabúðir en þann síðari á mót
á Norðurlöndum eða annars
staðar í Evrópu.
Fræðslumál
Félagið ætlar að láta til sín
taka í fræðslumálum:
• Félagið mun beita sér fyrir
fræðslu iðkenda sinna um
skaðsemi vímuefna og tóbaks.
Einnig mun félagið sjá um að
fræða iðkendur um hollustu
heilbrigðs lífernis og annað
sem nauðsynlegt kann að telj-
ast og nýtast þeim.
Í þessum tilgangi verða
fengnir fyrirlesarar sérstak-
lega til að koma og þá gjarnan
reynt að efna til samstarfs við
önnur félög. Einnig verða þeir
heimaaðilar nýttir sem að-
stoðað geta við þessa hluti.
Þegar er vinna hafin við að
manna sérstaka fræðslunefnd
sem sjá á um skipulagningu
námskeiða og fyrirlestra af
þessum toga, sem og undir-
búning þjálfara- og dómara-
námskeiða.
Félagsstarf
En öll íþróttafélög þurfa að
byggja upp félagsstarf utan
vallar og það ætlar KFÍ einnig
að gera:
• Félagið mun leitast við að
byggja upp félagsstarf utan
vallar með ýmsum uppákom-
um. Einnig verða möguleikar
félagsaðstöðunnar í sundlaug-
inni nýttir í þessum tilgangi.
Fjölskyldudagur, grillveisl-
ur, KFÍ-messa og fleiri hug-
myndir í þeim dúr hafa komið
upp. Einnig verður félagsað-
staða félagsins í sundlauginni
tekin í gegn á vordögum og
reynt að útfæra hana þannig
að hún geti nýst félagsmönn-
um sem best. Einnig er áhugi
á því að efna til samstarfs við
önnur félög varðandi þennan
þátt og t.d. hafa komið upp
hugmyndir um að KFÍ og
Vestri keppi með sér í sundi
og körfubolta.
Foreldrastarf
1999 var komið á virku og
öflugu foreldrastarfi:
• Haldið verði áfram að
byggja upp og þróa foreldra-
Hólmgeirs Líndals Magnússonar
Hlíðarvegi 44, Ísafirði
Guðný R. Hólmgeirsdóttir Sigurður Mar Óskarsson
og barnabörn
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns
míns, föður, tengdaföður og afa
Sérstakar þakkir fær starfsfólk öldrunardeildar FSÍ
Helga Hansdóttir
starfið. Foreldrar verði virkir
þátttakendur í ákvarðanatöku
vegna ráðninga þjálfara, upp-
hæðar og innheimtu æfinga-
gjalda, skiptingar kostnaðar
og skipulagningar keppnis-
ferða.
Hver aldursflokkur hefur
tengiliði úr röðum foreldra
sem sjá um samskipti við hina
foreldrana. Saman mynda
þessir tengiliðir foreldraráð.
Þar eru allar lykilákvarðanir
um kostnað og keppnisferðir
teknar. Áfram verður unnið
að því að þróa þetta starf og
m.a. hafa verið tekin upp sam-
skipti með tölvupósti.
Leikmenn
Eftir að þessi stefna er kom-
in í gang verða meistara-
flokksliðin skipuð leikmönn-
um uppöldum hjá félaginu
skv. þessari grein:
• Í framtíðinni verði meist-
araflokkar félagsins skipaðir
leikmönnum sem uppaldir
verða hjá félaginu. Ekki verð-
ur ráðist í fjárútlát vegna að-
komuleikmanna, að undan-
skildum einum erlendum leik-
manni.
Ekki er þó hægt að banna
áhugasömum leikmönnum að
vera hér en þá er það á hreinu
að ekki verði um launagreiðsl-
ur að ræða né önnur hlunnindi
sem kosta peninga.
Niðurlag
Þetta er útlistun á þeirri
stefnu sem samþykkt var.
Samhliða þessu verður innra
starf félagsins tekið í gegn,
skipurit sett upp og hlutverk
hvers og eins skilgreint ná-
kvæmlega. Einnig verða settar
á laggirnar ýmsar nefndir og
reynt að búta starfið niður í
smærri verk svo auðveldara
verði að fá fólk til að starfa
fyrir félagið. Umfang starfsins
mun aukast og því þurfum
við á öflugu fólki til að starfa
með okkur að þessum málum.
Við hvetjum fólk sem hefur
áhuga til að hafa samband við
okkur og einnig viljum við
benda á netspjallið okkar á
KFI.is þar sem opnaður verður
spjallþráður um þessa stefnu
og framtíð KFÍ. Þar eru allar
hugmyndir vel þegnar, sem
og málefnalegar umræður.
• Félagið mun leitast við að
halda úti 3-4 æfingum í viku í
sem flestum aldursflokkum
og sendi 1-2 lið til keppni í
Íslandsmóti í þeim öllum, auk
bikarkeppni hjá þeim flokkum
sem eiga þess kost.
• Unglingaflokkur karla
verði a.m.k. skráður til leiks í
bikarkeppninni.
• Sumarið eftir 7. flokk
verði ávallt stefnt á utanlands-
ferð í einstaklingsæfingabúðir
til Bandaríkjanna eða Evrópu
og eftir 9. flokkinn verði tekið
þátt í Scania Cup, hinu óopin-
bera Norðurlandamóti félags-
liða sem haldið er í Svíþjóð.
Þjálfararnir
Tímasetningar þjálfara-
námskeiða hafa hingað til ekki
hentað KFÍ þar sem nær und-
antekningarlaust hafa þau
verið haldin á annasömum
helgum þar sem þjálfarar eru
í keppni með sín lið. Því er
það stefnan að fá þessi nám-
skeið hingað til okkar. Hug-
myndir eru uppi um að bjóða
leikmönnum 10. flokks begg-
ja kynja (10. bekkjar) að sækja
slík námskeið því við ætlum
okkur ekki einungis að ala
upp leikmenn heldur framtíð-
arþjálfara líka. Einnig verður
áhugi foreldra kannaður á
þessu atriði.
Námsskrá er í smíðum sem
þjálfarar koma til með að
vinna eftir þannig að það fari
ekki á milli mála hvaða atriði
á að kenna hvaða aldursflokki.
Aðeins með því móti er hægt
að byggja ofan á þekkingu
iðkenda ár frá ári og skila þeim
fullnuma upp í meistara-
flokka.
Tíð þjálfararskipti valda því
m.a. að sífellt er verið að vinna
eftir nýjum áhersluatriðum í
sókn og vörn. Það er út af
fyrir sig gott að læra sem mest,
en með því að taka upp opin-
ber kerfi félagsins af þessu
tagi öðlast iðkendur nær full-
komna þekkingu á viðkom-
andi kerfum sem fylgja þeim
allt upp í meistaraflokka. Þetta
auðveldar líka nýjum þjálfur-
um starfið, að leikmenn kunni
góð skil á ákveðnum atriðum
sem æfð hafa verið með mark-
vissum hætti allt frá því í yngri
flokkunum.
Æfingar
Til að ná árangri er nauð-
synlegt að halda úti 3-4 æf-
ingum í viku fyrir hvern flokk.
Þar sem iðkendum hefur nú
fjölgað um 100% á tveimur
árum er farið að þrengja dálít-
ið að starfi yngri flokka í
íþróttahúsinu og því mun fé-
lagið leita annarra leiða til að
auka æfingatíma. Horfum við
þá talsvert til litla hússins við
Austurveg og jafnvel til Flat-
eyrar en nánari útfærslur bíða
úrvinnslu.
Í sumar verða í fyrsta skipt-
ið keyrðar sumaræfingar og
verið er að útfæra hugmyndir
sem lúta að því. Það er vitað
mál að til að ná árangri er
ekki nóg að stunda körfuknatt-
leik einungis yfir vetrartím-
ann. Margir mætir menn hafa
sagt að sumrin séu tíminn fyrir
körfuknattleiksmenn til að
taka framförum. Þá er hægt
að vinna í einstaklingsæfing-
um sem koma iðkandanum til
góða næsta keppnistímabil.
Yngri flokkar
Unglingaflokkur karla hef-
ur hingað til verið svolítið á
milli vita því leikmenn sem
þangað eru komnir hafa jafn-
framt verið leikmenn í meist-
araflokki. Og þar sem leikið
er heima og heiman í Íslands-
mótinu er ekki grundvöllur
fyrir þátttöku liðsins út frá
kostnaðarsjónarmiði. En samt
sem áður er nauðsynlegt að
skrá þá til leiks í bikarkeppn-
inni. Unglingaflokkur kvenna
er leikinn í fjölliðamótum og
þó að leikmenn þar kunni að
spila með kvennaliðinu er
ekki leikið í deildinni á sama
tíma og fjölliðamótin eru spil-
uð.
Til að auka víðsýni iðkenda
og áhuga verður tvisvar sinn-
um á ferli yngri flokkanna efnt
til utanlandsferða. Annars
vegar eftir 7. flokkinn (7.
bekkinn) og hins vegar eftir
10.PM5 19.4.2017, 09:246