Vinnan - 01.05.1945, Side 15
4.—5. tölublað
apríl—maí 1945
3. árgangur
Reykjavík
VINNAN
Ritnefnd:
Aðalheiður S. Hólm
Stefán Ogmundsson
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUSAMBAND ÍSLANDS
IÓN ÚR VÖR:
TVÖ KVÆÐI
VERSALIR
Ég kom ekki til Versala
fyrr en 1939.
/ *
EFNISYFIRLIT
jón úr Vör: Tvö kvœði
jón Rafnsson: Fyrsti maí 1945
Björn Bjarnason: Heimsráðstejnan í London
Heimsráðstefna verkalýðsfélaga ávarpar allar
þjóðir
Símon Jóh. Agústsson: Starf og þreyta
Eggert Þorbjarnarson: Þjóðareining um ríkisstjórn
nýsköpunarinnar
Snorri Jónsson: Félag járniðnaðarmanna 25 ára
Asgeir Jónsson: Félag járniðnaðarmanna 25 ára
(kvœði)
Rliys Davis: Mannlegt eðli
Bjarni Þórðarson: Um kauptryggingar hlutar-
sjómanna
Ignazio Silone: Fontamara (framhaldssagan)
Ingólfur Jónsson: Einu sinni var (kvæði)
Sigurður Einarsson og Sverrir Kristjánsson:
Þcettir úr baráttu ellefu alda
Pétur Georg: Vorljóð
Ingólfur Jónsson: Haustar að (kvæði)
Bœkur
Sambandstíðindi
Krossgáta o. fl.
V__________________________________________________2
Eg spásséraði um Spegilsalinn
og gaut hornauga
til hins fræga skrifborðs,
þar sem friðarsamningarnir
voru ritaðir,
og gaman var að sjá
hvílu þeirra Loðvíks XVI.
og Maríu Antoníettu.
Ég leit ekki í morgunblöðin,
því ég kunni ekki frönsku.
Sumir héldu, að það yrði stríð.
Hvað heldur þú? var sagt við mig
á máli, sem ég skildi.
Ég er skósmiðssonur vestan af Patreksfirði,
svaraði ég,
og hef ekki komið í konungsgarð fyrr.
Ég kom nefnilega ekki
til Versala
fyrr en 1939.
í HEIMAHÖGUM
Uni ég bezt við Ægi,
ungur fætur þó,
fleytti ég skeljum
og fiska dró,
gersemin fyrsta
var gefin úr sjó.
Ungum sem eldri
er mér fagur sjár,
þar er bezt að sofna
þreyttur og sár.
,,Vekur, er af víði kemur
morginn hverjan már."
VINNAN
69