Vinnan


Vinnan - 01.05.1945, Side 17

Vinnan - 01.05.1945, Side 17
inn og berjast til sigurs fyrir friðinn, og sú barátta stefnir að auknum völdum hans í hverju landi. Hann mun hvar í landi sem er halda fast við kröfuna um fullkomið frelsi og sjálfsákvörðunarrétt þjóðar sinnar, um atvinnu, lífsöryggi, frið og framfarir. — En þar eð hann gerir sér þess grein, nú betur en nokkru sinni fyrr í lok styrjaldar, að barátta, sem takmarkast við eitt land, er ekki einhlít, og samstilling kraftanna á heims- mælikvarða er nauðsynleg, svo að æskilegum árangri verði náð, hefur hann ákveðið að mynda með sér vold- ug heimssamtök, alþjóðasamband. En þess verður ýtar- lega getið á öðrum stað í þessu riti. — Þátttaka ís- lenzkra verkalýðssamtaka í slíkum alþjóðasamtökum er eigi aðeins brýnt hagsmunamál vinnandi stétta á íslandi. — Smáþjóð umlukt stórveldum á ekki í fram- andi landi tryggari stoð í sjálfstæðisbaráttu sinni en sterka og alþjóðasinnaða verkalýðshreyfingu. ■—- Hið sígilda kjörorð brautryðjendanna miklu: „Oreigar allra landa sameinist“, hefur því sinn þjóðlega boðskap að flytja í sérhverju landi, þótt það hafi aldrei verið al- þjóðlegra en nú í dag. Hér á landi sem annars staðar með smáþjóðum er sjálfstæðismálið öndvegismál alþýðunnar í dag. Sem þroskuð alþýða annarra landa verður nú íslenzk- ur verkalýður að láta þeim tímum vera lokið, að sjálf- stæðismálin séu meðhöndluð eins og einkafyrirtæki gamallar yfirstéttar og skilja, að án virkrar ábyrgrar þátttöku hans getur í rauninni ekki verið um neina raunverulega sjálfstæðisbaráttu að ræða. íslenzk alþýða verður að skoða aðild sína það stóra í barátt- unni fyrir verndun og eflingu sjálfstæðis Is- lands, að henni beri að skipa þar fylkingarbrjóst og hafa þar forystu, en ekki baksveitarhlutverk. í dag ber því íslenzk alþýða fram fyrir munn þjóðarinnar þá kröfu, að Island fái notið fullkom- ins og raunverulegs jafn- réttis við hlið hinna sam- einuðu frjálsu þjóða, sem virkur þátttakandi í endurskipan heimsvið- skiptanna eftir stríðið og fái sem fullvalda ríki að inna af henndi hlutverk sitt í viðskiptakerfi þjóð- anna, í samræmi við nátt- úrugæði landsins og fram leiðslugetu þjóðarinnar. VINN AN En íslenzk alþýða má einnig gera sér ljóst, að auð- ugt land fámennrar þjóðar sem býr við úrelta fram- leiðsluhætti, hefur ekki borgið endanlega sjálfstæði sínu, þótt réttarfarslegt sjálfstæði þess hafi náð skjal- festingu á ráðstefnum þjóða, á meðan þjóðin hefur ekki komið þeirri skipan á framleiðslu sína, til sjós og lands, að hún geti hagnýtt auðlindir sínar sjálf sam- kvæmt kröfum tímans og verið jafnoki annarra þjóða á sviði tækninnar. Krafa alþýðunnar í dag um nýsköpun atvinnuveg- anna og kjörorðið: þjóðareining um nýsköpunarstefnu núverandi ríkisstj órnar, er því eigi aðeins krafan um blómlegt atvinnulíf, hagsæld og menningu vinnandi stétta, heldur einnig og jafnframt krafan um sjálfstæði Islands. Vaxandi íhlutun vinnandi stétta um stjórn þjóðarbúsins og nýsköpunarinnar er ekki aðeins nauð- syn frá sjónarmiði almennra hagsmuna, heldur einnig sem sjálfstæðismál þjóðarinnar. í hálft þriðja ár hefur Alþýðusamband íslands með atbeina róttækra framfaraafla beitt sér fyrir myndun bandalags vinnandi stétta landsins, m. a. um framan- greind mál, með þeim árangri, að afturhaldssinnuð ríkisstjórn varð að víkja fyrir framfarastjórn þeirri, er nú situr að völdum í landinu. — Þessi ríkisstjórn hefur sett nýsköpun atvinnuveganna og sjálfstæðismál þjóðarinnar að höfuð verkefni sínu. Engin ríkisstjórn áður hefði verið því vaxin að leysa fisksöluvandamálið s.l. vetur svo giftusamlega fyrir sjómenn og útgerðar- Framh. á bls. 87 71

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.