Vinnan - 01.05.1945, Page 22
Fulltrúar arabisku verkalýðshreyj-
ingarinnar í Palestínu
síðar greinir. Nefndin starfar að stofnun alþjóðasam-
bands.
2. Nefndin tekur til starfa þegar að lokinni þessari
Heimsráðstefnu.
3. Nefndin starfi sem stjórn alþjóðasamtaka verka-
lýðsins, þar til næsta Heimsráðstefna verður kölluð
saman.
4. Vald nefndarinnar sé:
(a) Að senda ályktanir Heimsráðstefnunnar til stað-
festingar og gera skýrslu til næstu Heimsráðstefnu.
(b) Að koma fram fyrir hönd Heimsráðstefnunnar
eftir því sem með þarf, gagnvart ríkisstj órnum eða
alþjóðlegum ráðstefnum.
(c) Að vinna að því að verkalýðssamtökin eigi full-
trúa á væntanlegri friðarráðstefnu og öllum þeim
undirbúningsfundum, er haldnir kunna að verða.
(d) Að sjá um framkvæmd þeirra ákvarðana, er sam-
þykktar verða af þeim landssamtökum, er hér eiga
fulltrúa.
(e) Að semja uppkast að lögum fyrir Alþjóðasam-
bandið.
(f) Að senda það út til viðkomandi samtaka og taka
við breytingartillögum, ef fram koma.
(g) Að undirbúa stofnþing eigi síðar en í árslok 1945
og annast aðrar framkvæmdir í sambandi við
þann undirbúning.
(h) Að skipa undirnefndir eftir því sem hún telur
þörf á, og fela þeim þau völd, er hún telur nauð-
synlegt.
(i) Að kalla saman skyndiráðstefnu, ef hún telur það
nauðsynlegt.
(j) Að bjóða þeim samtökum, er hún telur æskilegt,
þátttöku í slíkri Heimsráðstefnu.
(k) Að kjósa sér stjórn, er samanstandi af mönnum
er hljóta samþykki viðkomandi landssamtaka, enda
greiði þau laun þeirra.
Skrifstofa nefndarinnar verði í París, í húsakynn-
um franska verkalýðssambandsins, er lánar hús-
næði og starfsfólk á skrifstofuna án endurgjalds.
5. Allur kostnaður við störf nefndarinnar verði
greiddur með frjálsum framlögum.
6. liður er urn samsetningu nefndarinnar, en þar sem
smávægilegar breytingar voru gerðar á þeim lið, set
ég hann síðar, eins og endanlega var frá honum gengið.
7. Það er óskipt skoðun Heimsráðstefnunnar, að
stofnun sambands, er sameini allan verkalýð, sé óhjá-
kvæmileg nauðsyn. En heimild hverrar samtakaheildar
um sig til að hafna þátttöku eða gera athugasemdir við
lagafrumvarpið er vitanlega óumdeild.
Eftir stuttar umræður voru þessar tillögur, að undan-
teknum 6. lið, samþykktar einróma. Um 6. liðinn varð
nokkur ágreiningur, sérstaklega varðandi fulltrúa þeirra
landa, þar sem fleiri en ein samtök áttu fulltrúa á
Heimsráðstefnunni, svo sem Indlands, Palestinu og
Spánar. Einnig töldu Brezku nýlendurnar ekki nægilegt
tillit tekið til sín.
Þessi ágreiningur jafnaðlst þó fljótlega með sam-
komulagi milli aðila, en fjölgað var fulltrúum nýlendn-
anna um 2 og var þá fullt samkomulag af þeirra hendi.
Þá var einnig ágreiningur um þátttöku Póllands og
Rúmeníu, en þeim ágreiningi var vísað til nefndarinnar
til úrskurðar.
Að lokinni þessari samþykkt var Heimsráðstefnunni
slitið og hafði hún þá setið degi lengur en ráð var
fyrir gert í upphafi.
76
VINN AN