Vinnan - 01.05.1945, Síða 24
Heimsráðstefna verkalýðsfélaga
ávarpar allar þjóðir
Heimsráðstefna verkalýðsfélaga, sem lokið hefur
brýnustu verkefnum sínum í Lundúnum, sendir þenna
boðskap alþýðu allra landa, sem vonar og vill af alhug,
að nýr heimur skuli rísa upp af rústum og auðn styrj-
aldarinnar. Heimsstyrj öldin síðari hefur stofnað öll-
um þjóðum í alvarlegri háska en um getur í annálum
sögunnar. Hinar sameinuðu þjóðir hafa barizt fyrir
frelsi sínu og lífsháttum í langvinnri og hræðilegri bar-
áttu gegn árásarveldunum. Þær hafa giftusamlega borið
af sér ægilegustu atlögu, er nokkru sinni hefur verið
gerð gegn grundvelli lýðræðisins og þegnrétti frjálsra
manna, þær hafa andæft hatrömmustu tilraun, ernokkru
sinni hefur verið gerð til þess að hneppa mannkynið í
ánauð og sveigja þjóðir undir stj órnmálakerfi, atvinnu-
skipulag og hugmyndafræði, er hefðu ef tilraunin hefði
heppnazt, ofurselt allar frjálsar þjóðir í hendur mönn-
urn, sem með herafla sínum þóttust vera sjálfvaldir til
að drottna fyrir sakir „kynþáttayfirburða“ eða til að
gegna svokölluðu „sögulegu hlutverki“.
Heimsráðstefna verkalýðsfélaga vorra hefur kvatt
fulltrúa til fundar frá öllum álfum jarðarinnar, er fara
með umboð milljóna skipulagsbundinna manna, er
veittu staðfastlega viðnám kúgun fasismans og hafa
hrundið árás fasista með fórnfrekri baráttu. Vér kom-
um á heimsráðstefnu vora frá sundurleitum löndum.
Tarassov, Murray, Hillmann Liu, Toledano, Cofino,
Scevenels og Oldenbrock.
Að því loknu hófust umræður um skipulag hins
væntanlega alþjóðasambands. I sambandi við þau var
aðallega rætt um þrennt. Hvort taka ætti í Alþjóðasamb.
fleiri en ein samtök frá hverju landi fyrir sig, þar sem
svo stæði á að verkalýðsfélögin eru í fleiri en einu
landssambandi. Hvort taka ætti alþjóðlegu fagsam-
böndin eins og gert var í I. F. T. U. og svo um gjöldin,
hvort þau ættu að vera jöfn fyrir hvert þúsund eða að
fara lækkandi á þúsund eftir að kornið væri yfir ein-
hverja ákveðna tölu meðlima. Engin ákvörðun var
tekin um þessi atriði, en þeim vísað til undirnefndar-
innar til athugunar. A hún svo að senda öllum meðlim-
um nefndarinnar sínar tillögur það tímanlega að þeim
gefist kostur á að leggja þær fyrir samtökin í hverju
Vér vorum fulltrúar allra kynflokka og trúarbragða, og
sundurleitir að hörundslit. Vér ræddumst við á ólíkum
tungumálum. En vér vorum einhuga um þau markmið,
er vér sem verkamenn, eigum ásamt öllum þjóðum, er
frelsinu unna. Umræður vorar á heimsráðstefnunni
voru slíkar, að vér getum lýst því yfir, án hiks eða
vafninga, að verkalýðsfélög alls heimsins eru reiðubúin
til þess að starfa með öllum samhuga þjóðum að því,
að fullur og afdráttarlaus sigur verði unninn á fasista-
veldunum, er reyndu að granda frelsi og lýðræði; að
þau vilja koma á öruggum og varanlegum friði og efla
alþjóðlega samvinnu í fj árhagsmálum og atvinnumál-
um, svo að nýta megi hinar miklu auðlindir jarðarinn-
ar öllum þjóðum hennar til blessunar, tryggja vinnu
handa öllum, efla velmegun fólksins og skapa félagslegt
öryggi handa konum og körlum með öllum þjóðum.
Til þess að þessum háleitu markmiðum verði náð
hefur heimsráðstefna vor skuldbundið milljónasamtök
þau, er falið hafa oss umboð sitt, til að styðja hetju-
heri hinna sameinuðu þjóða í þeim orustum, sem enn
verða háðar áður en lokasigri er náð. Sókn sovétherj-
anna í austri, efld og studd af sókn Englendinga og
Ameríkumanna í vestri og þj óðfrelsishersveitum Frakk-
lands, Rúmeníu, Júgóslavíu og Búlgaríu, hlýtur að
verða hin skjóta úrslitasókn, er kúgar þýzka ríkið til
landi til umræðu og athugunar fyrir september-fund-
inn.
Að kveldi 22. febr. var svo fundi nefndarinnar slitið
og fóru þá íulltrúarnir að hugsa til heimferðar.
Þegar ég les yfir það, sem ég hef skrifað um þessa
merkilegu Heimsráðstefnu, verður mér Ijóst, að mér
hefur ekki tekizt að gefa nema mjög ófullkomna mynd
af því, sem þar fóf fram.
Það, sem að mínu áliti var mest áberandi við þessa
Heimsráðstefnu var hinn sterki einingarvilji er þar var
ríkjandi og sú óbifanlega vissa að verkalýðssamtökin
myndu reynast fær um að rækja það hlutverk sitt að
móta heirn eftirstríðsáranna í samræmi við óskir og
þarfir alls vinnandi fólks.
Með þátttöku sinni í þessari Heimsráðstefnu hefur
Alþýðusatnband Islands sýnt að einnig það vill leggja
sinn Htla skerf til þeirrar nýsköpunar.
78
VINN AN