Vinnan


Vinnan - 01.05.1945, Blaðsíða 26

Vinnan - 01.05.1945, Blaðsíða 26
leiðslutækin verði nýtt til hins ýtrasta og hægt verði að sjá öllurn fyrir vinnu og vaxandi velmegun um allan heim. Heimsráðstefna vor lagði sérstaka áherzlu á þær skyldur, er ríkisstj órnir verða að rækja gagnvart körl- um og konum, er gegna herþjónustu, og hvorki hafa sparað líf eða heilsu í baráttunni fyrir sigri. Ráðstefn- an krafðist þess, að öryrkjum stríðsins yrði séð fyrir ókeypis læknishjálp og nægilegum sjúkrastyrk meðan þeir eru óvinnufærir og þeim yrði veitt ókeypis þjálfun til að taka aftur upp vinnu í iðnaðinum; að þeim, sem eru öryrkjar ævilangt, verði veittur lífeyrir, er tryggi þeim og fjölskyldum þeirra eðlileg og skapleg lífskjör. Heimsráðstefna vor var einnig á einu máli um það, að berjast fyrir virkri verkamannálöggjöf í öllum lönd- um heims, þar á meðal í nýlendum og öðrum löndum, sem lítt eru á veg komin, til verndar verkamönnum í öllum framleiðslustörfum. Á annan hátt verður ekki tryggt samtakafrelsi né helgustu samfélagsréttindi manna; á annan hátt fá verkalýðsfélög og önnur sam- tök verkamanna ekki tækifæri til að vaxa og þróast frjáls og óháð né heldur að taka þátt í og marka at- vinnumálastefnuna í hinum ýmsu löndum. Verkalýðsfélög heimsráðstefnu vorrar hafa tekið hina mikilvægustu ákvörðun um að efla skipulags- bundna sameiningu hinnar alþjóðlegu verkalýðshreyf- ingar. Ráðstefnan samþykkti einróma að stofna heims- samtök verkamanna, er telji innan vébanda sinna öll verkalýðsfélög frjálsra landa á grundvelli jafnréttis, án tillits til kynþátta, trúar eða stjórnmálaskoðana, svo að engum verði skipað utan garðs né á óæðra bekk. Vér erum að skapa eins skjótt og tök eru á volduga alþjóða- stofnun, sem sameinar alla, og getur beitt áhrifavaldi sínu til framdráttar yfirlýstum stefnuskráratriðum vor- um. Vér kusum 45 manna nefnd á heimsráðstefnu verkalýðsfélaganna, skipaða fulltrúum allra deilda ráð- stefnunnar, og hefur nefnd þessi aðsetur í París. Nefnd- in mun kveðja aftur til heimsráðstefnu í september- mánuði 1945, til að samþykkja grundvallarlög sam- takanna og stofnun varanlegs skipulags. En á meðan mun hún verða oddviti ráðstefnunnar og koma ákvörð- unum hennar á framfæri. Hún mun túlka kröfur hinn- ar alþjóðlegu verkalýðshreyfingar um þátttöku og hlut- deild í öllum málum varðandi friðinn og málaskipan alla eftir styrjöldina, urn fulltrúa og friðarráðstefnu og öllum alþjóðanefndum varðandi friðarskipanina frá upphafi til enda, allt frá ráðstefnunni í San Francisco í apríl. Heimsráðstefna vor gerði þessa kröfu í þeirri sann- færingu, að alþýða hinna sameinuðu þjóða hefði rétt til þess að leggja orð í belg, þegar friður verður sam- inn. Krafa vor er byggð á þeirri sannfæringu vérka- lýðsfélaganna sér í lagi, að þau hafi mikið verk að vinna í nýsköpun heimsins. Heimsráðstefna vor trúir því, að með áframhaldandi náinni samvinnu og skjót- um aðgerðum hafi stjórnirnar og alþýða hinna sam- einuðu þjóða þegar unnið hálfan sigur, en að takast muni að ráða fram úr hinum erfiðu viðfangsefnum framtíðarinnar og leysa hvern vanda, sem að hönd- um ber. Heimsráðstefna verkalýðsfélaganna vottar öllum þeim, sem fallið hafa fyrir málstað frelsisins, virðingu sína. Hún hyllir hina hugrökku heri hinna sameinuðu þjóða, skæruliðasveitirnar, andstöðuhreyfingarnar og meðlimi varnarliðs borgarsveitanna. Hin félagsbundna verkalýðsstétt hefur lagt fram sinn fulla skerf í orustum vígvallanna og á sviði framleiðsl- unnar til að skapa og vígbúa hinn gríðarlega herafla, sem hefur þegar komið fasismanum á kné og mun innan stundar brjóta hann á hak aftur fyrir fullt og allt. Hin sögulega ráðstefna vor, sem er háð þegar styr.jöldin stendur sem hæst, er talandi tákn um einingu verka- lýðsstéttarinnar og ber vitni siðferðilegum sigri hinna sameinuðu þjóða á hinum illu öflum fasismans. Hin skipulagsbundna verkalýðsstétt, sem hefur átt svo mik- inn þátt í að vinna þessa styrjöld, getur ekki látið aðra um það að bera alla ábyrgð á friðarskipaninni, hversu góður sem tilgangur þeirra kann að vera. Friðurinn, sem koma skal, mun því aðeins verða góður friður — varanlegur friður — friður, sem er verður þeirra fórna, er goldnar hafa verið sigrinum, ef hann fær tjáð vilja frjálsra þjóða, hagsmuni þeirra, þrá og þarfir. Vér sendum því þetta ávarp heimsráðstefnu vorrar öllum verkamönnum heimsins og öllum góðviljuðum körlum og konum, er vilja helga sig því starfi að skapa betri heim með sömu þjónustulund og fórnfýsi og þeir hafa lagt fram til að vinna sigur í styrjöldinni. Undirritað af nefndinni fyrir hönd heimsráðstefnunnar. ÖSrum til aS dreifa Norður í Þingeyjarsýslu bjó eitt sinn bóndi, sem . Kristján hét. Hann var afrendur að afli, meinslunginn maður og svo hirðusamur, að mœlt var, að hann hirti eigi síður annarra eigur en sínar eigin og fór dagfari og náttfari að afla björg búi sínu. Eigi var hann þó illa látinn af nágrönnum sínum, sem sjá má af eftirfar- andi vísu, sem Indriði Þórkelsson skáld á Fjalli orti að Kristjáni látnum: Muna skulið þið mœlgisþý mannorði hans, sem láguð í: ef eilthvað hverfur enn á ný, ekki hefur Kristján stolið því. 80 VINNAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.