Vinnan


Vinnan - 01.05.1945, Blaðsíða 28

Vinnan - 01.05.1945, Blaðsíða 28
ætla að óreyndu, dregur þreyta ekki ávallt úr afköstum. Lítils háttar þreyta eykur þau oft töluvert og örvar manninn til áreynslu. Þegar menn vinna, verða þeir að samhæfa hreyfingar sínar, svo að þær samsvari markmiði. Sakir þessarar samhæfingar haldast ýmsar aðrar frumrænar og eðlis- lægar hreyfingar og viðbrögð í skefjum, því að þær myndu ekki samsvara markmiði því, sem vinnan stefnir að. Vinnan er því ekki eðlislæg, heldur áunnin starf- semi. Hinn vinnandi maður má ekki svara ytri áhrif- um að vild né hlýða kalli eðlishvata sinna. Við öllurn glepjandi áhrifum verður vinnandi maður að setja hömlur. Ef markvís samhæfing eða stjórn bilar, slakn- ar á hömlunum, sem eðlislægum hreyfingum voru sett- ar, meðan á vinnunni stóð. Leiðir þetta til margs konar mistaka og jafnvel til slysa, ef svo ber undir. Nú er staðreynd, að áhrifa þreytu gætir fyrst á hinar æðri starfsdeildir, þ. e. því margbrotnari og sérhæfari sem samhæfing hæfileikanna er, því fyrr kennir áhrifa þreytu á þær. Þetta er skiljanlegt. Þegar yfirstjórn á beitingu hæfileikanna fer að lamast, leika þar með laus- um hala ýmis konar hvatir og andsvarshættir, sem mað- urinn hélt áður í skefjum og braut til hlýðni og þjón- ustu við markmið sitt. Athugum til dæmis áhrif þreytu á skynjunina. Æðri skynjunarhættir eru ekki einungis fólgnir í því að nema skynáhrifin, heldur í skyngreiningu, í því að bera þau saman, greina þau hvert frá öðru, mynda úr þeim heildir. Æðri skynjun er samfara dómstarf og mat. Lægri skynjunarhættir eru aftur á móti fólgnir í því að nema bein áhrif einhvers áreitis á skynfærin án þess að túlka þau með samanburði við eitthvað annað eða greina þau frá einhverju öðru. Þreyta eykur t. d. næmi manna fyrir sársauka. Skynáhrif, sem óþreyttum manni finnast þægileg eða hvorugt, verða þreyttum manni ó- þægileg eða jafnvel sársaukafull. Mælt hefur verið, hve fast þurfi að þrýsta með þar til gerðu áhaldi á hörund manns til þess, að snertingin valdi honum sársauka. Á hörund óþreytts manns þarf að styðja allfast til þess, að snertingin hafi sársauka í för með sér, en eftir því sem maðurinn er þreyttari, þarf minni þrýsting til, og ör- þreyttum manni getur jafnvel fundizt óþægilegt, hvað lítið sem við hann er komið. Þannig er þessu farið á öðrum sviðum. Það, sem var þægilegt, missir aðdráttar- afl sitt og verður til æ meiri ama og þjáningar, eftir því, sem þreyta vex. Af framansögðu verða okkur ýrnis tiltæki og háttsemi þreyttra manna skiljanleg, svo sem hvers vegna þeir sækjast í áfengi eða önnur deyfilyf til þess að firra sig vanlíðan. Ymsir deyfilyfjaneytendur hafa byrjað að taka þau til þess að bægja frá sér þján- ingu ofþreytunnar, en misst svo stjórn á nautn þeirra. Nú skiljum við líka, hvers vegna þreyttum manni hættir við að vera önugur og gefa skapillsku sinni laujan tauminn. Þótt nærni manna fyrir sársauka aukist við þreytu, minnkar jafnframt hæfi þeirra til þess að greina milli skynáhrifa, eins og eftirfarandi dæmi sýnir: Stutt er á hörund manns með áhaldi, sem hefur tvo odda, og má minnka eða stækka bilið milli þeirra að vild. Ef rnjög stutt bil er milli oddanna, finnst manninum sem ein- ungis hafi verið stutt á einn stað á hörundi hans, en ekki tvo. Hver staður á líkamanum hefur sitt sérstaka greini- bil, þ. e. svo og svo langt bil þarf að vera milli oddanna til þess, að hann skynji, að stutt sé á hörund hans á tveimur stöðum. En eftir því sem þreytan vex, stækkar þetta bil, þ. e. skyngreiningarhæfi mannsins minnkar. Þreytan lamar fyrst hina æðri hugarstarfsemi, eins og sjá má af eftirfarandi dæmum. Svo sem kunnugt er, finnst okkur pundslóð þyngra en dúnpoki, sem vegur pund. Ef við veguin í höndum okkar tvo hluti jafn- þunga, en misstóra, finnst okkur hinn stærri vera léttari. Þessi skynvilla er til staðar hjá öllum mönnum, að und- anteknum smábörnum og fávitum. Mjög dregur úr skynvillu þessari hjá þreyttum mönnum, svo að hennar gætir lítt eða ekki. Auðsætt er, að hún á rót sína að rekja til æðri hugarstarfsemi: Við ályktum ósjálfrátt, að því stærri sem hluturinn sé, því þyngri sé hann. Við búum okkur ósjálfrátt undir meira átak til þess að lyfta dúnpokanum en blýlóðinu, og því finnst okkur dúnpok- inn léttari. Hin misjafna stærð hlutanna glepur okkur, er við metum þyngd þeirra, en aftur á móti ruglar þessi hugmynd ekki óvita né smábarn — og um þreyttan mann gegnir líku máli. — Þá koma áhrif þreytu greini- lega í ljós við rannsókn á hugrenningartengslum. Les- inn er upp fyrir manninn orðalisti, og á hann að svara hverju orði eins fljótt og hann getur með fyrsta orði, sem honum kemur í hug. A eftir er svo athugað sam- bandið milli spurnarorða og svarorða. Af þessari ein- földu þraut getur glöggur sálfræðingur margt ráðið. Henni er beitt við sálkönnun, hún er allgott gáfnapróf, og loks er hún notuð við þreyturannsóknir. Hjá greind- um óþreyttum manni ber mjög á því, að eitthvert skyn- samlegt samhengi sé yfirleitt milli spurnarorða og svar- orða. Ef spurnarorðið er hestur eru líkindi til þess, að svarorðið hjá gréindum óþreyttum manni sé eitthvað á þessa leið: dýr, húsdýr, spendýr, hófdýr, þ. e. hann svarar spurnarorðinu með orði, sem hefur líka rnerk- ingu eða merkir hugtak sömu tegundar eða stendur loks í nánu sambandi við spurnarorðið, eins og þegar hann svarar með: hnakkur, skeifa, maður, hundur. Við at- hugun á hugrenningartengslum þreyttra manna hefur komið í ljós, að hugtakalíkingin milli spurnarorða og svarorða rnáist fyrst. Onnur auðveldari hugrenninga- tengsl verða ofan á, og loks svarar maðurinn helzt með einhverjum algengum orðum eða orðurn og orðskríp- 82 VINNAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.