Vinnan


Vinnan - 01.05.1945, Blaðsíða 29

Vinnan - 01.05.1945, Blaðsíða 29
um, sem ríma v.ið spurnarorðið. Þreytan lamar þannig æðri hugsun, en venja og frumræn andsvör fá yfir- höndina. Þreyta hefur að ýmsu leyti svipuð áhrif á starf og hugsun manna og áfengisneyzla.* Dauðþreyttir menn halda sér oft uppi á grófri og lélegri fyndni, sem svipar til fyndni drukkinna manna. Alls gáður rnaður, sem kernur í hóp drukkinna manna, hefur ekkert gaman af orðaleikjum þeirra, honum finnst þeir heimskulegir. Alkunna er, að sumir hagyrðingar eru í essinu sínu, þegar þeir eru orðnir hálfir eða vel það. Sjálfsgagn- rýnin setur þeim ekki lengur hömlur, allt þykir gott sem rírnar. Málið yrkir fyrir þá. Aftur á móti er mjög fátítt, að veruleg skáld yrki undir áhrifum áfengis, jafnvel þau, sem þykir gott í staupinu. Starísrit og þreytupróí Orkumyndun líkamans, í hvíld og starfi, hefur verið rnæld á ýmsan hátt, einkum með sérstökum efnaskipta- tækjum. Er þá mælt, hve mikið súrefni maðurinn notar á ákveðnum tíma, en síðan reiknað út, hve mikill bruni hafi átt sér stað í líkama hans þenna sama tíma eða hve margar hitaeiningar hafa myndazt, en hitaeining er það hitamagn, sem þarf til þess að hita einn lítra af vatni úr 0° upp í 1° á Celsíus. Fyrir hvern lítra af súrefni, sem líkaminn brennir, myndast um 5 hitaein- ingar. Með þessu móti hefur verið leitt í ljós, að orku- myndun í líkama fullorðins manns í algerri hvíld er um 1700 hitaeiningar á sólarhring, en nokkuð er þó þetta breytilegt eftir líkamsstærð, aldri og kyni. Þegar mað- urinn starfar líkamlega eða andlega, eykst orkumynd- unin, og fer þá nokkur hluti hennar til starfsins. Við erfið störf verður hún um 3500—5000 hitaeiningar á sólarhring.** Ymsum aðferðum er beitt til þess að búa til þreytu- rit, og eru áhöld notuð í þessu skyni, einkum krafta- mælar (ergometrar) og ýmsar tegundir starfsrita (dyna- mometrar, dynamographar). Tilraunir, sem kraftamælir er notaður við, fara fram á eftirfarandi hátt: Maðurinn lyftir tilteknum þunga með allri hendinni eða einum fingri, oftast með á- kveðnu rnillibili. Áreynslan hvílir alla tilraunina á enda á sömu vöðvum eða sama líkamshluta. Er áhaldið þannig gert, að áreynslan geti ekki lent á öðrum vöðv- um, þegar maðurinn fer að þreytast. Rétt er þó að geta þess, að oft er torvelt að takmarka áreynsluna við á- kveðinn líkamshluta eða vöðva. I sambandi við krafta- rnælinn er svo áhald, sem býr til línurit af átökunum, meðan á tilrauninni stendur. Hj á sumum minnka átökin því sem næst jafnt (bein starfslína), hjá öðrum minnka þau lítið í fyrstu, en síðan skjótlega (kúpt starfslínai, * Sjá t. d. Mc Dougall: An Outline of Abnormal Psychology, Chap. III. Fatigue, Drugs, and Sleep. ** Jóhann Sæmundsson, sama rit, bls. 171. og hjá enn öðrum minnka átökin fljótt framan af, en síðan hægar (íhvolf starfslína). Sjást þessar þrjár teg- undir starfsrita á eftirfarandi mynd: Bein starfslína ■ Kúpt starfslína íhvolf starfslína Línuritin lesist frá hægri til vinstri. Við slíka tilraun ber margs að gæta: Ekki má líða oflangt milli átaka, svo að vöðvarnir fái hvílt sig til fulls. Þunginn, sem lyft er, má ekki vera of lítill, því að með því móti getur maðurinn haldið áfrarn að lyfta þunganum því nær endalaust, og öll átökin verða jöfn eða því sem næst. Hins vegar má þunginn ekki vera of mikill, því að þá ofreynir maðurinn sig í einu eða tveimur átökum og getur svo ekki meir. Ef lagt er fyrir manninn að lyfta þunganum með j öfnu millibili, verður bilið milli átakanna að vera lengra, þegar um mikinn þunga er að tefla, en þegar þunginn er lítill. Af tilraun- um þessum hefur komið í ljós, að kraftar og þol fara ekki ávallt saman. Kraftalítill maður getur verið miklu þolbetri í hlutfalli við afl en burðamikill maður. A þennan hátt hefur mönnum tekizt að mæla afköst við ýmis líkamleg störf og gera sér grein fyrir áhrifum þreytunnar á þau. En miklu torveldara er að gera þreyturit yfir andleg störf. Verður að finna þrautir, sem eru svo líkar, að hver þraut jafngildi hinni, en séu jafnframt svo ólíkar, að lausn þeirra þrauta, sem á undan fara, geri mönnurn ekki hægara fyrir að ráða fram úr þeim þrautum, sem á eftir koma. Fer oftast svo, að verkefnin verða of lík, lausn þeirra verður brátt auðveldari með vana og æfingu eða þá, að verkefnin verða svo sérhæfð og einskorðuð, að þau veita næsta ófullkomna hugmynd um það, sem venjulega er kölluð andleg vinna. Þá hefur sú aðferð verið höfð að láta manninn þreyta sig fyrst á andlegri vinnu og prófa síðan líkamlega orku hans. Ef í ljós kemur, að maður- inn þreytist þá fyrr við líkamlega vinnu en venjulega, er ályktað, að orkumismunurinn hafi farið í andlegu vinnuna. Þessi mælingaraðferð er þó ónákvæm, því að andleg þreyta verður að vera kominn á allhátt stig til þess, að áhrifa hennar gæti á líkamleg afköst. Sakir hins rýra árangurs, sem náðst hefur með slík- um rannsóknum, hafa menn enn reynt að mæla tálmun þá, sem andleg vinna veldur á líkamlegu starfi, þegar þau eru framin samtímis. Maðurinn er þá látinn leggja saman tölur, finna svarorð, sem standa í ákveðnu sam- bandi við spurnarorðin, lesa o. s. frv., á meðan hann togar í kraftamæli með einum fingri eða allri hendinni. Sýna starfsrit þessi, að andleg vinna dregur meira og rninna úr líkamlegum afköstum. En allar þessar aðferð- VIN N A N 83
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.