Vinnan


Vinnan - 01.05.1945, Page 30

Vinnan - 01.05.1945, Page 30
ir hafa reynzt ónákvæmar til þess aS mæla andlega þreytu. Starfsrit sama manns eru í höfuSdráttum mjög lík, hvert sem starfiS er og hvort um er aS tefla andlega eSa líkamlega vinnu, en aftur á móti eru starfsritin mjög breytileg eftir einstaklingum. Þetta gildir ekki ein- ungis um vinnuþoliS, hve fljótt og meS hverjum hætti afköstin minnka, heldur og mun flest annaS, sem máli skiptir: vinnugæSi og mistök, hraSa og seinvirkni. í öllu starfi birtist því persónugerS mannsins. Orkueyðsla og þreyta Athugun sýnir, aS starfslínan lækkar ekki í jöfnu hlutfalli viS orkueySsluna, eins og vatn í íláti, sem veriS er aS tæma. Afköstin ná ekki alltaf hámarki þeg- ar í staS, heldur að nokkrum tíma liðnum. SíSan fer aS draga úr afköstunum, en misjafnlega hratt og mis- jafnlega reglulega. Þau aukast stundum lítils háttar annað veifiS, þótt úr þeim dragi í heild. HvaSa ástæSur liggja til þess, aS þreyta helzt ekki í hendur viS orku- eySslu? Þýzki sálfræðingurinn Kraepelin rannsakaSi fyrstur manna ýtarlega hin ýmsu atriði, sem þarna koma til greina. Tökum til dæmis eitthvert einfalt verk, eins og að lyfta þunga. Ef endurtekning verknaSarins leiSir ekki brátt til minni afkasta, er þaS m. a. vegna þess, aS endurtekningin rySur úr vegi ýmsum byrjunartálm- unum, sem stafa af því, aS maSurinn er verkinu óvanur. Sakir endurtekninga lagar maSurinn sig aS starfinu, og þessi aSlögun hamlar fyrst um sinn ekki einungis móti þreytunni, heldur geta og afköstin aukizt um hríS. Eins og afköst manna eru yfirleitt lítil á laugardögum, vegna þreytu eftir vikuverkiS, þannig eru og afköst þeirra á mánudögum einnig yfirleitt léleg, af því aS þá eru þeir stirSir og þurfa tíma til þess aS liSkast eftir sunnu- dagshvíldina. Mjög er misjafnt, hve menn eru fljótir aS laga sig aS vinnu í hvert sinn. Sumir laga sig svo aS segja á svipstundu aS verki, en áhrifa aðlögunarinnar gætir skamma stund. ASrir eru lengi aS laga sig að verki, en áhrifa aSlögunarinnar á afköstin gætir leng- ur. Æfing hefur yfirleitt þau áhrif á afköstin, aS maS- urinn fylgir fremur þeim vinnuhraSa, sem honum er eSlilegastur, en hinum mesta vinnuflýti, sem hann get- ur náð. Kraepelin greinir einnig aS örvun eSa áhuga, sem vaknar af starfinu (Anregung og Erregung) og hneigS- ina til þess aS láta hugann hvarfla frá því (Ablenk- barkeit). Þannig geta líkamleg afköst aukizt viS and- lega starfsemi og andleg afköst aukizt viS líkamlegt starf, t. d. aS ganga um gólf. Þau áhrif, sem glepja manninn frá vinnunni, geta ýmist veriS persónuleg, sprottin af líkamslíðan eSa sálarástandi mannsins eSa ytri áhrifum er til aS dreifa. Kraepelin ruglar sums staSar saman næsta sundurleit- urn hugtökum. Þannig merkir æfing (Ubung) tvennt ó- líkt hjá honum. Annars vegar kallar hann æfingu stund- araSlögun mannsins aS vinnunni, en hins vegar nefnir hann einnig verknámiS sjálf æfingu. ASlögunarhæfi mannsins kemur fram í því, aS maðurinn þarf að vera nokkra stund viS verkiS, í hvert sinn áSur en afköst hans ná hámarki. Afköstin eru t. d. minnst fyrstu 5 mínúturnar, meiri þær 5 næstu o. s. frv., unz hámarki er náS og þreytan fer aS hamla á móti. En æfingar í hinni merkingunni gætir frá einni tilraun til annarr- ar. Þannig afkastar einhver maSur miklu meira á til- teknum tíma, þegar hann vinnur verk, sem honum er orSiS vel tamt, en hann gerSi, meSan þaS var honum ótamt. Áhrif æfingarinnar í þessari síSari merkingu eru miklu langærri og annars eðlis en í hinni fyrri. Er aug- ljóst, að ekki má rugla saman verkkunnáttu mannsins og aSlögun hans aS verkinu í hverri einstakri tilraun, þ. e. hve langan tíma tekur hann aS liSkast við verkið í hvert sinn. Helstu tilefni þreytu 1. Rö/ig vinnubrögð er eitt algengasta tilefni þreytu. Við flest verk er vinnubrögðum manna meira og minna áfátt. Þeir gera ónauðsynlegar hreyfingar og eyða því mikilli orku til einskis. Mikill orkusparnaður er því að réttu vinnulagi. Skammt er síðan farið var að rann- saka vinnubrögð á vísindalegan hátt, en nú þegar hefur mikið áunnizt í þessu efni, einkum að því er varðar verksmiðjuvinnu og ýmis einföld störf. Undir vísinda- legri stjórn geta afköst manna við sum verk stóraukizt. jafnvel margfaldazt, en þeir þó eytt í þau minni orku en áður fyrr, meðan þeir unnu með hefðbundnum og óhagkvæmum aðferðum. Nú er það ekki einungis vont vinnulag í þrengri merkingu, sem leiðir til orkusóunar og þreytu, heldu'r einnig röng skipulagning vinnunnar. Fáir gera nokkra áætlun að morgni um, hvernig þeir ætli að haga störfum um daginn. Margir hlaupa sífellt úr einu í annaS, sóa kröftum sínum í smámuni, allt fer hjá þeim á ringulreið, þeir sjá aldrei fram úr því, sem þeir þurfa að gera, og hiS mikilvægasta situr þá stund- um á hakanum eða þeir þvinga sig til vinnu örþreyttir. Slíkir menn kvarta oft undan því, að þeir hafi aldrei tómstur.d sér til skemmtunar eSa menntunar. Þeir hafa aldrei komið skipun á vinnu sína og eru þrælar hennar. Þótt þeir séu ávallt önnum kafnir, fara afköstin ekki eftir erfiðinu. Margir miklir afkastamenn virðast hafa tíma til alls. Þeir hafa stundir aflögu til að skemmta sér og til að vera með konu sinni og börnum. Stafar þetta af hagkvæmum vinnubrögðum og góðri skipun á störfum þeirra. En röng vinnubrögð og léleg skipan á vinnunni draga mjög úr starfsgleði manna. 2. Of langur vinnutími. — Onnur helzta orsök þreytu 84 VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.