Vinnan


Vinnan - 01.05.1945, Blaðsíða 48

Vinnan - 01.05.1945, Blaðsíða 48
/ 's INGÓLFUR JÓNSSON frá Prestsbakka: Einu sinni var Það spruttu rauðar rósir á reitnum heim við bæinn — sem voru allra yndi og ilmuðu lengstan daginn — báru blíðan svip í byggðinni við sœinn. Það spruttu rauðar rósir en reyndar dóu þœr — síðan ekkert antiað til yndis þarna grœr — bráðum hylur bœinn blár og kaldur sœr. V__________________________________________________) rétt á að fá land á leigu, — til að hjálpa til þess að auka framleiöslu þjóÖarinnar, sagði skrifarinn. ... — Til að koma þessu í kring stakk hann upp á að jarðar- afgjaldið væri lækkaö við þá, sem hafa stór svæði á leigu, en hækkað um tuttugu af hundraði við þá, sem hafa lítil svæði á leigu. Héðan í frá á að borga jarðar- afgjöldin í landaurum, einkum sykurrófum, og verðið verður ákveðiö í skrifstofu Torlonia prins.... Þeir, sem hafa lítil svæði á leigu, verða að borga 720 lírur fyrir hektarann.... Ég get líka trúað ykkur fyrir því, að uppástungan frá fulltrúa kafóníanna var samþykkt með mikilli ánægju, og einnig hinu, að allir kafóníarnir frá Fucino voru saman komnir í borginni og létu í ljós gleði sína yfir þessu með háværum húrrahrópum fyrir ráðherranum, amtmanninum og hinum embættismönn- unum. ... Var það nokkuð fleira, sem þið vilduð fá að vita? — Nei, þetta er ótvírætt, sögðum við. Þetta var alveg ótvírætt. Götulj óskerin báru skæra birtu. Það var orðið fram- oröiö, en bjart var á vegunum. Okkur var allt Ijóst. I Avezzano var allt á tjá og tundri. I augum okkar var hún eins og heimur, sem er að ganga af göflunum. Ég sá fólk, sem fór inn í kaffihús og veitingahús og söng og dansaöi og talaði af mikilli æsingu um allt milli himins og jarÖar, og ég varð að beita allri athygli minni til að geta skilið það, sem borið hafði við. Ég spurði sjálfan mig að því, hvort þetta væru allt sjón- hverfingar, eða hvort allir væru gengnir af göflunum, án þess þeir vissu það sjálfir. Úr veitingahúsunum hljómaði fylliríissöngur, og þaðan fundum við lykt af steiktum fiski. Við vorum soltnir og þyrstir, en okkur hryllti við þessum veitinga- húsum. — Borgarbúarnir skemmta sér, sagði Berardo.... Borgarbúarnir eru glaðlyndir.... þeir drekka.... þeir borða.... en það er bara gert gys að kafóní- unum. Hópur syngjandi fullra drengstaula gekk fram hjá okkur. Þeir slógu taktinn með viðbjóðslegum líkams- hreyfingum. Vísan var á þessa leið: „Húðin þín og húðin mín höfð mun verða í loðskinn fín.“ Á eftir fyrsta hópnum kom annar hópur, og í hon- um voru svartskyrtumennirnir, sem höfðu tekið af okk- ur San Rocco-fánann. Þeir höfðu ekki fyrr komið auga á okkur en þeir kölluðu: „Húrra fyrir San Rocco“ og létu rigna yfir okkur óþverraorðum. Þeir tókust í hend- ur, slógu hring um okkur, viðhöfðu hvílubragðahreyf- ingar og sungu: „Lærin þín og lærin mín láta ei ganga í verkin sín.“ Við hirtum ekki um þá. Engan langaði til að sýna mótþróa. Við botnuöum ekki neitt í neinu, Við vorum í framandi veröld. Við vorum meðal borgarbúa. Strákarnir fóru frá okkur og sungu „Teresa káta“ við lag Garibaldakvæðisins. Þá kom maður til okkar. Hann hafði elt okkur stund- arkorn. Hann var vel búinn, rauður á hár og skegg og með ör á hökunni. — Eruö þið ekki frá Fontamara? spurði hann. — Við önzuðum honum ekki. — Vitið þið, að yfirvöldin eru hrædd við ykkur? Þau vita, að þið eruð andvígir stjórninni. . . . Við lofuöum honum að þvaðra. Framhald Kynleg þögn / sjávarþorpi einu norðanlands bjó eitt sinn maður, allhávaðasamur í tali, og var af gárungum nefndur „hvinur“. Þar kom, að maður þessi andaðist sem aðrir menn og var grejtraður. En svo stóð á, að nýr prestur var kominn í prestakallið, og hafði hann ekki hugmynd um viðurnefni hins framliðna, sem liann átti að jarð- setja. Prestur þessi var greindur vel og ræðumaður góður og hóf líkrœðuna á þessum hjartnœmu orðum: „Þú ert liljóður í dag, vinur.“ Mælt er, að jarðarfararsvipurinn hafi snöggvast þurrkast af andlitum sumra líkfylgdarmanna. 102 VINNAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.