Vinnan


Vinnan - 01.05.1945, Page 57

Vinnan - 01.05.1945, Page 57
kauplagsnefndar. Alþýðusambandið annaðist samningsgerðina fyrir verkamannafélagið. Aðalfundur Verkamannafélags Fljótamanna Aðalfundur Verkamannafélags Fljótamanna var haldinn um miðjan marz. I stjórn félagsins voru kosnir: Jón Hermannsson, formaður, Sæmundur Hermannsson, varaform., Valberg Hannes- son, ritari, Haraldur Hermannsson, gjaldkeri og Jón K. Olafsson, fjármálaritari. Aðalfundur Rakarasveinafélags Reykjavíkur Á aðalfundi Rakarasveinafélags Reykjavíkur voru eftirtaldir menn kosnir í stjórn: Gísli Einarsson, formaður, Karl Jónsson, ritari og Tómas Tómasson, gjaldkeri. Aðalfundur Verkalýðsfélags Grýtubakkahrepps Á aðalfundi Verkalýðsfélags Grýtubakkahrepps voru þessir menn kosnir í stjórn félagsins: Vilhelm Vigfússon, formaður, Alfreð Pálsson, varaformaður, Þórður Jakobsson, ritari, Arthur Vilhelmsson, gjaldkeri og Kristinn Jónsson, meðstjórnandi. Aðalfundur Verkalýðsfélags Akraness Aðalfundur Verkalýðsfélags Akraness var haldinn 18. febr. s.l. Stjórn félagsins var endurkosin og skipa hana: Hálfdán Sveinsson, formaður, Sveinbjörn Oddsson, varaformaður, Ing- ólfur Runólfsson, ritari, Guðmundur Kr. Olafsson, gjaldkeri. A aðalfundum deildanna, er voru haldnir nokkru síðar, voru þessi kosin til viðbótar í stjórnina: Skúli Skúlason (verkamanna- deildin), Guðmundur Sigurjónsson (sjómannadeildin), Þórunn Kristjánsdóttir, (verkakvennadeildin), Karl Benediktsson (vél- stjóradeildin) og Magnús Norðdahl (bílstjóradeildin). Samþykkt var á aðalfundinum að hækka árgjöld til félagsins úr 40 kr. í 60 kr. Aðalíundur Esju í Kjós Aðalfundur verkalýðsfélagsins „Esja“ í Kjós var haldinn 19. febr. s.l. I stjórn voru kosnir: Gísli Andrésson, formaður, Njáll Guðmundsson, ritari og Ásgeir E. Norðdal, gjaldkeri. Aðalfundur H. í. P. Aðalfundur Hins íslenzka prentarafélags var haldinn 20. marz s.l. Á fundinum var lýst stjórnarkosningu, er fram hafði farið að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu. Stjórnina skipa nú þessir menn: Stefán Ögnmndsson, formaður, Árni Guðlaugs- son, ritari, Magnús Ástmarsson, gjaldkeri, Helgi Hóseasson og Gunnar Sigurmundsson, meðstjórnendur. Nýir kjarasamningar á Raufarhöfn Þann 14. marz s.l. voru undirritaðir nýir kjarasamningar milli Verkamannafélags Raufarhafnar og Síldarverksmiðja rík- isins. Aðalbreytingar frá fyrri samningum eru sem hér segir: Tímakaup í almennri vinnu hækkar úr kr. 2.10 í kr. 2.30 um klst. Tímakaup í skipavinnu og við umhleðslu sements hækkar úr kr. 2.75 í kr. 3.00 um klst. Nýjum lið var bætt í samninginn: Sldpavinna við kol, salt, sement og öll lestarvinna, ennfremur losun síldar úr skipum og bátum, og greiðist við þá vinnu kr. 3.10 á klst. (Boxa- og katlavinna greiðist eins og áður með kr. 3.60 á klst.) Mánanðarkaup fastráðinna verkamanna hækkar úr kr. 436.00 í kr. 478.40. Kaup þróarmanna hækkar úr'kr. 479.60 í kr. 526.24 á mánuði. Kaup kyndara, kolalempara og pressu- manna hækkar úr kr. 479.60 í kr. 545.38 á mán. Kaup vindu- manna verður kr. 502.32 á mán. (nýr liður). Sú hækkun, sem verkamenn á Raufarhöfn hafa fengið með þessurn samningum, nemur frá 10—15% á hinum ýmsu liðum kaupgjaldsins. Alþýðu- sambandið annaðist samningsgerðina fyrir verkamannafélagið. Nýir kjarasamningar á Þingeyri Þann 28. febrúar s.l. voru undirritaðir nýir samningar um kaup og kjör milli verkalýðsfélagsins „Brynja“ á Þingeyri og atvinnurekenda þar. Breytingar frá fyrri samningum eru m. a. þessar: Almenn vinna hækkar úr kr. 1.90 í kr. 2.20 um klst. í dagvinnu. Skipavinna hækkar úr kr. 2.30 í kr. 2.50 um klst. í dagvinnu. Vinna við kol, salt og sement hækkar úr kr. 2.60 í kr. 2.90 um klst. í dagv. Kaup drengja 14—16 ára hækkar úr kr. 1.40 í kr. 1.60 um klst. í dagv. og kaup kvenna úr kr. 1.40 í kr. 1.50 um klst. í dagv. Ráði fólk sig upp á mánaðarkaup skal því greitt: Karlmönnum: kr. 400.00 og konum kr. 300.00 (grunnkaup), áður var konum greitt kr. 270.00, en körlum kr. 360.00. Einn atvinnurekandinn, Anton Proppé, undirritaði ekki samn- inginn fyrr en 10. marz og hafði þá félagið gert ráðstafanir til vinnustöðvunar hjá fyrirtæki hans. ASalíundur Verzlunarmannafélags Vestmannaeyinga Á aðalfundi Verzlunarmannafélags Vestmannaeyinga, er hald- inn var um miðjan febr. s.L, voru þessi kosin í stjórn: Ingi- bergur Jónsson, formaður, Elly Guðnadóttir, ritari, Sigrún Jón- atansdóttir, gjaldkeri, Ásta Vigfúsdóttir og Jón Scheving með- stjórnendur. Kjarasamningur á Vatnsleysuströnd Þann 17. febr. s.l. var undirritaður kjarasamningur milli hins nýstofnaða Verkalýðsfélags Vatnsleysustrandar og atvinnurek- enda þar í hreppi. Kaup karlmanna í almennri dagvinnu er kr. 2.40 á klst. 50% álag greiðist í eftirvinnu og 100% álag í nætur- og helgidagavinnu. Heimilt er að vinna í vöktum við frystihús og í niðursuðuverksmiðjum. Dýrtíðaruppbót greiðist mánaðar- lega samkvæmt útreikningi kauplagsnefndar. Aðalfundur Matsveina- og veitingaþjónafélags Islands Matsveina- og veitingaþjónafélag Islands hélt aðalfund sinn 21. marz s.l. Lýst var stjórnarkosningu, er fram hafði farið að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu, og skipa nú stjórn félagsins þessir menn: Friðsteinn Jónsson, formaður, Gísli Guðmundsson, ritari og Böðvar Steinþórsson, gjaldkeri. Aðalfundur Vals í Búðardal Verkamannafélagið „Valur“ í Búðardal hélt aðalfund sinn 10. marz s.l. Stjórn félagsins var endurkosin og skipa hana þessir menn: Ragnar Þorsteinsson, formaður, Sæmundur Bjarna- son, ritari og Þorsteinn Jóhannsson, gjaldkeri. Félagið hefur sagt upp gildandi kjarasamningum. 10 ára afmælishátíð Sóknar Starfsstúlknafélagið „Sókn“ minntist 10 ára starfsafmælis síns með samsæti að samkomuhúsinu Röðli 28. marz s.l. 10 ára afmælishátíð Iðju, fél. verksmiðjufólks . Iðja, félag verksmiðjufólks, í Reykjavík, minntist 10 ára af- mælis síns með samsæti að Hótel Borg miðvikudaginn 28. marz síðastliðinn. VIN N A N 111

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.