Vinnan - 01.05.1945, Qupperneq 61
Bókabúð
Máls og menningar
Laugavegi, 19 . Sími 5055 . Pósthólf 392 . og
Bókabúð Vesturbæjar
Vesturgötu 21
Fáum allar nýjar íslenzkar bæk-
ur jafnóðum og þær koma út og
útvegum allar fáanlegar eldri
bækur íslenzkar. Höfum jafnan
úrval af ritföngum og pappírs-
vörum, erlendar bækur, blöð og
tímarit. — Alþýðufólk um land
allt! Verzlið við okkur! Með því stuðlið þið að aukinni og bættri útgáfu handa ykk-
ur sjálfum og ykkar félagi, Máli og menningu. Allur ágóði af verzluninni rennur til
félagsins og getur þannig gert því kleift að gefa út fleiri bækur.
Nýjustu bœkurnar eru:
Sjómannasaga
eftir Vilhjálm Þ. Gíslason. Saga sjávarútvegsins, rakin með sérstöku tilliti til Faxa-
flóa og Reykjavíkur, einkum eftir að Reykjavík er orðin höfuðstaður landsins og
miðstöð útgerðarinnar. Verð 75 kr. ób., 125 kr. í skinnbandi.
Hinn gamli Adam í oss
Ritgerðasafn, eftir Gunnar Benediktsson. Verð 25 kr. ób.
Austantórur I
Frásagnir um menn, veðurmerki og veðurspár í Árnessýslu o. fl., eftir Jón Pálsson.
Verð 20 kr. óbundin.
í skugga Glæsibæjar
Skáldsaga eftir Ragnheiði Jónsdóttur. Verð 20 kr. ób., 30 kr. íb.
Orustan um Stalíngrad
Frásögn um einn afdrifaríkastan þátt heimsstyrjaldarinnar með 67 myndum.
Verð 20 kr. ób.
FerSabók Dufferins lávarðar
Safn bréfa, er höfundur ritaði móður sinni frá ferðalagi hans til Islands og annarra
norðlægra landa sumarið 1856. Verð 32 kr. ób., 62 kr. í skinnb.
Sent gegn póstkröfu um land allt
VINNAN