Vinnan - 01.10.1946, Side 5
VINNAN
10. tölublað
Október 1946
4. árgangur
Reykjavík
Ritnefnd:
Björn Bjarnason
Helgi Guðlaugsson
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUSAMBAND ÍSLANDS
JOHN KEATS:
La belle dame sans merci
EFNISYFIRLIT:
Halldór E. Arnórsson: Lax að stökkva, kápu-
mynd
John Keats: La belle dame sans merci, kvæði
Af alþjóðavettvangi
Guðmundur Vigfusson: Verkefni og viðhorf, for-
ystugrein
Herstöðvamálið
Júlíus Jóhannesson: Sýnd veiði en ekki gefin
Böðvar Steinþórsson: Innlend veitinga- og gisti-
húsamenning
Verkakvennasamtökin i Vestmannaeyjum 20 ára
Jón Jóhannesson: Dagur við ský (brot)
Juri Semjanoff: Brauð gulu þjóðanna
Framhaldssagan
Skák
Sambandstiðindi
Kauþskýrslur o. fl.
\____________________________________________________/
„Riddari góður, því ráfar þú
raunamæddur og grár á kinn?"
Fuglar án söngs og sefið fölt
sem svipur þinn.
„Riddari góður, því ráfar þú
rúinn gleði og tærð þín brá?"
Rjúpan hefur nú harðan sarp,
og hætt að slá.
Kinn þín ber lit sem bjarkarblað
búið við falli, daggarsvalt.
Á enni þér rós, sem víst var væn,
en varð of kalt.
Á enginu hitti ég yndismey
álfum líka með hárið gyllt.
Öll var hún fögur, með ungan fót,
en augun villt.
Hún stakk mig þorni sætt í svefn,
en svo mig dreymdi, ó, fár og mein!
Seinastan minna drauma draum
við draugastein.
Kónga og hirðmenn ég hjá mér sá,
hirðmenn föla, sem æptu á mig.
Þeir sögðu: La belle dame sans merci,
hún seiddi þig.
Varatærðir þeir vöruðu mig
vofumunni, sem bleikur gein.
Ég vaknaði dauðadraumnum af
við draugastein.
Því reika ég. Ég ráfa nú
raunamæddur og grár á kinn.
Fuglar án söngs og sefið fölt
sem svipur minn.
VINNAN
271