Vinnan


Vinnan - 01.10.1946, Blaðsíða 20

Vinnan - 01.10.1946, Blaðsíða 20
V erkak vennasamtökin í Vestmannaeyjum 20 ára Það er upphaf að samtökum verkakvenna í Vestmannaeyjum, að þann 28. febrúar 1926 eru samankomnar 68 konur í kvikmyndahúsinu ,,Borg“, að tilhlutan Verkamannafél. „Drífandi“. Voru þar mættir af hálfu „Drífanda“ Kjartan Norðdahl og ísleifur Högnason. Hvöttu þeir kon- ur mjög til að stofna sitt stéttarfélag. Var þá stofnað verkakvennafélagið „Hvöt“. — Fyrstu stjórn félagsins skipuðu þessar konur: Kristín Jakobsen, Þóranna Ögmundsdóttir, Krist- ín Óladóttir, Jóhanna Einarsdóttir og Ingibjörg Magnúsdóttir. Kristín Jakobsen var kosin formaður og gegndi þeim starfa meðan félagið lifði. Félagið gekk þeg- ar í Alþýðusanrband íslands. Á þrem næstu fundum er Karólína Ziemsen gestur félagsins. Eggjaði hún félagskonur til starfs og dáða. Var við all-ramman reip að draga, samtökin á frumstigi, skilningsleysi sumra vinnandi manna á gildi samtakanna og andúð atvinnurekenda. Aðalmál félagsins var að sjálfsögðu kaupgjalds- málin. Urn þessar mundir var kvennakaup 70 aurar á klst., en þá setti „Hvöt“ nýjan taxta, þar Kristín Óladóttir formaður Verkakvfél. Hvöt Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir núverandi formaður Snótar sem tímakaup er 90 aurar í dagvinnu en kr. 1.25 fyrir eftir- og næturvinnu. Þó náðust ekki form- legir samningar um þetta kaup. Félagið var í allmiklum vexti fyrst í stað, en brátt fer að dofna yfir því. Mun það hafa starfað fram til ársins 1929, en þá lognast það út af. Mun þar hafa miklu um valdið, að samtökin voru á tilraunastigi, konur lítt félagsvanar og eining ekki 'sem bezt. Þegar félagið var liðið undir lok hríðlækkaði kaupið svo, að 1929 var það komið niður í 55 aura á klst. Þegar hér var komið, sáu verkakonur að við svo búið mátti ekki standa. Var því árið 1930 stofnað verkakvennafélag, er gekk í Verkamanna- félagið „Drífanda“ sem deild. Formaður deildar- innar og fulltrúi kvenna í stjórn „Drífanda“ var Guðrún Jónsdóttir, Auðsstöðum. Hún er nú bú- sett í Reykjavík. Deildin varð brátt all-fjölmenn og starfaði af áhuga. Helzta átak félagsins á þessum árum var deilan við Kveldúlf 1932, um vorið. Var deilt um fisk- þvottakaupið eða öllu frekar flokkun fiskjarins, er var verkafólkinu mjög í óhag. Deilan var mjög hörð og stóð hálfan mánuð. Konurnar stóðu sig 286 VINNAN

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.