Vinnan


Vinnan - 01.10.1946, Blaðsíða 26

Vinnan - 01.10.1946, Blaðsíða 26
JURI SEMJONOFF: Brauð gulu þjóðanna Engin planta er jafn nátengd menningunni á vissum landsvæðum og rísinn. Hann er sérkenni- legur fyrir monsúnhéruð lieimsins. Hinir þrot- lausu suðvestan vindar, sem blása yfir Indlands- haf, frá því í júní og fram í október, flytja með sér mikinn raka inn yfir meginland Asíu. Þess vegna fellur saman rigningatíminn og sumarhit- arnir í monsúnlöndunum. Þannig skapast þau kjör, sem henta rísnum bezt. Satt er það að til er svo nefndur „fjallarís“, sem ekki þarf eins mik- inn raka og „fenjarísinn“, en hann er aðeins ann- ars flokks framleiðsla, sem gefur minni og verri uppskeru. Viltur rís hefur fundizt bæði í Afríku og Norð- vestur-Afríku. En rísrækt hefur þó vafalaust haf- izt í Kína. Þaðan fluttist rísinn til Japans, til Austur-Indísku eyjanna og í vestur, — til Ind- lands og hins núverandi Afghanistans. Þaðan hef- ur leiðin legið eins og hjá öðrum nytjaplöntum ust beztu drengir. En þegar dagar liðu, tóku þeir til að bölva í sand og ösku á sínu annarlega tungu- rnáli og sögðust ekki vera komnir til að moka skít heldur heimtuðu að fá að drepa fólk. Stundum fóru þeir á fyllirí og skutu úr byssunum sínum inn um glugga hjá taugaveikluðum konum. Stundum nauðguðu þeir heimasætum bak við öskutunnur í porti eða hrintu farlama kerling- um niður í skurð. Stundum fengu þeir grunlausa bílstjóra til að aka með sig út fyrir bæinn, svo þeir gætu rotað þá með tómum viskíflöskum og stolið peningunum þeirra upp á þægilegan máta. Stund- um gáfu þeir öllum súkkulaði. Og morgnarnir héldu áfram að koma. Og það var sólskin og dögg á stræti, og húsin risu björt og hrein úr baði næturinnar, og loftið var blátt og tært og hlýtt. Og stundum komu morgnarnir með regni og kulda, eða fjúkandi ryki á götunt og stormskýjum yfir Esjunni. En hvernig sem morgnarnir komu, biðu dagarnir að baki þeirra allra með fangið fullt af gulli. yfir Ferghanadalinn til persnesku landanna, sem ná alla leið að Kaspíhafinu, — Gilan og Masen- deran —, til Transkákasus og Sýrlands. Þar kynnt- ist Alexander mikli rísnum. Grikkir ræktuðu hann í Þessalíu, en Rómverjar þekktu hann að- eins sem dýrmæta og sjaldséða innflutningsvöru, sem notuð var til lækninga. Það voru hvorki Grikkir né Rómverjar, held- ur Arabar, sem fluttu rísinn til Evrópu. í fornöld var rísinn hvorki til í Palestínu né Egyptalandi. Hann er ekki nefndur á nafn í heimildarritum Egypta né Kaldea, og hans er hvorki getið í Gamla- né Nýja-testamentinu. Það er fyrst við komu Arabanna, að rísrækt hefst í Egyptalandi og berst eftir norðurströnd Afríku til SuðurSpán- ar. Hermenn Karls V. fluttu hann til Ítalíu, svo að hann vann sér griðland á Pósléttunni, og það voru Tyrkir, sem fluttu hann til Balkanskagans. Sá heiður, að hafa flutt rísinn til Vesturálfu, fellur ekki í skaut Spánverja, heldur Englend- inga eða réttara sagt Hollendinga. Árið 1647 var ríssekkur fluttur til Virginíu og fenginn í liend- ur landsstjóranum. Rísnum var sáð, og uppsker- an varð 16 sekkir. Þetta virtist vera góð byrjun, en — rísinn var étinn upp til agna, og ekkert hugsað um að sá aftur, orsakir þess vita menn ekki. Sagnaritari nokkur getur þess, að lands- stjórinn, Sir William Berkeley, harðjaxl hinn mesti, alkunnur fyrir grimmd og trúarofstæki, hafi verið því mótfallinn. Jafnvel þó að Sir Willi- am hafi vafalaust verið þrjózkur, var hann þó enginn fáráðlingur. Við verðum því að gera ráð fyrir, að einhverjar aðrar orsakir hafi legið því til grundvallar, að hann vildi ekki byrja á rísyrkju. Fimmtíu árum seinna var annar ríssekkur sendur öðrum landsstjóra, Thomas Smith. Hann sáði þeim í garð sinn á heppilegum, rökum stað. Rís- inn óx ágætlega, og aðrir nýlendumenn fóru að dæmi landsstjórans og byrjuðu að rækta rís. Hvers vegna var það annar en ekki fyrsti sekkur, sem lagði grundvöll að rísyrkju Ameríkumanna? Nán- ari saga seinni sekksins svarar þessari spurningu. 292 VINNAN

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.