Vinnan - 01.10.1946, Page 18
Frá sveinsprófi á Þingvöllum 19. sept 1945 (framleiðslumenn). Talið frá vinstri: Trausti Magnússon, Teódór Ólafsson,
Edrnund Eriksen (prófdómari), Steingr. Jóhannesson (form. prófnefndar), Helgi Rósenberg (prófdómari), Stefán Þorvaldsson,
Tryggvi Steingrímsson, Árni Jónasson.
Það hlýtur því að vakna sú spurning, hvort
veitinga- og gistihússrekstur hér á landi eigi að
vera gróðafyrirtæki einhverra ófaglærðra auð-
manna, með fagmenn í þjónustu sinni, eða sjálf-
sagður rekstur fagmanna einna.
Veitingahússrekstur hefur ekki verið mikils-
metin atvinnugrein hér á landi hingað til. All-
mörg veitinga- og gistihús hafa verið byggð, með
vistlegum herbergjum og fallegum, rúmgóðum
sölum. En vinnuskilyrðin, sem bak við eru, þar
sem vinna á að framleiðslu Jjeirri, sem á boðstól-
um er, hafa ætíð notið minni umhugsunar, og af
þeim ástæðum hafa framleiðsluvörurnar verið
ófullkomnari en til var ætlast í upphafi.
Hefðu fagmenn verið hafðir með í ráðum við
byggingu slíkra húsa, hefði meira verið gert til
þess að hafa skilyrðin fyrir starfsfólkið þannig, að
auðvelt væri að vinna að nægilegri framleiðslu,
með þeim fyllstu kröfum, fyrir þann fjölda
manna, sem salnum er ætlað að taka á móti.
Það eru mörg dæmi þess, að veitinga- og gisti-
húsarekstur hefur farið öðruvísi í framkvæmd-
inni, en til var ætlast í uppphafi, einungis af þeim
sökum, er að framan getur.
Fari svo, að veitinga- og gistihúsarekstur geti
ekki þróast hér á landi, nema fluttir séu til lands-
ins erlendir fagmenn til þess að annast þann
rekstur, þá er illa farið hinu unga íslenzka
lýðveldi.
Til þess að lýðveldi okkar geti talizt alíslenzkt,
verður að skapa innlenda fagmenn í öllum grein-
um, bæði þeim, er hér liafa verið nefndir,
og öðrum.
Þegar erlendir ferðamenn koma og skoða okkar
fagra land, er það ábyggilega bezta auglýsingin
fyrir land vort og þjóð, að í hinum ýmsu starfs-
greinum séu innlendir menn, með fagkunnáttu,
sem reki atvinnugreinina og vinna við hana. Þetta
finnst öllum rétt hugsandi mönnum vera alveg
sjálfsagður hlutur.
Því á það ekki að vera eins með veitingahús og
gistihúsrekstur?
Þessar línur eru ekki skrifaðar sem ádeila á þau
veitingahús og gistihús, sem rekin eru og stjórn-
284
VINNAN