Vinnan


Vinnan - 01.10.1946, Síða 29

Vinnan - 01.10.1946, Síða 29
að segja í mýrarhéruðunum. Öll þessi varúð varð til þess eins að draga úr rísræktinni, án þess þó að malarían minnkaði vitund. Menn komust að raun um, að það var ekki rísinn heldur moskítóflug- urnar, sem ollu malaríunni. I ítalska héraðinu Novara sýndi reynslan það, að malarían dvínaði eftir því sem rísyrkjan óx. Fyrir stríð var dánartal- an úr malaríu 14 af hverum 100.000 ítölum, en í héruðunum Novara og Pavía, þar sem rísyrkjan er mest, aðeins 2,4. Skýringin á þessu er sú, að rísakrarnir eru vökvaðir með rennandi vatni, og til þess að fá vatnið, varð að safna því saman úr mýrunum. En í Kaliforníu, þar sem hart er um vatn, spara Ameríkumenn það, safna því saman á ökrunum, svo að úr verður reglulegt f.oræði, — en samt er malarían óþekkt á þessum slóðum. Leyndardómurinn er sá, að moskítóflugunum er útrýmt samtímis rísræktinni. Olíu er helt yfir vatn- ið, og hún leggst eins og þunnt skæni yfir það og kæfir lirfurnar. Rísyrkjumenn í Evrópu hafa komizt að því fyrir löngu síðan, að moskítóflugurn- ar eiga sök á allri ógæfunni. í Ungverjalandi og Ítalíu hafa menn því lengi notað rísáveiturnar sem klakstöðvar fyrir karfa, tannkarfa, elritser og aðra smáfiska, sem éta moskítólirfurnar. Gulu þjóðunum er rísinn daglegt brauð eins og rúgurinn og hveitið er okkur. Það er umvafið Ijóma trúarhelgisiða og þjóðkvæða. Bókmennt- irnar urn rísinn eru ótæmandi. Ágætar vísinda- stofnanir rannsaka og prófa eiginleika þeirra 200 rístegunda, sem gulu þjóðirnar hafa ræktað sitt langa söguskeið. Bændur Austurlanda eru og hafa alltaf verið fátækir og kúgaðir. Þó hafa þeir þreifað sig áfram til hinnar fullkomnustu rís- yrkju. Löngu áður en tímatal okkar hefst, báru Kínverjar á rísakra sína eftir öllum vísindanna reglum og kunnu að veita á þá vatni. Tæknin hefur að vísu tekið miklum framförum síðan, en í dag eins og fyrir þúsundum ára síðan biður Kínverjinn gesti sína að gera honurn þann heið- ur að skilja eftir á landareign sinni það, sem að- eins er til þyngsla fyrir hinn „hávelborna“ maga

x

Vinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.