Heimilispósturinn - 15.02.1951, Qupperneq 7

Heimilispósturinn - 15.02.1951, Qupperneq 7
andi. Hvað eru það margar míl- ur?“ „Ef þér farið gegnum skóg- inn, eru það fjórar mílur. En ef þér farið meðfram sjónum, eru það sex mílur. Það er skemmtilegri leið.“ Það var eins og hún væri að tala við barn. Þau höfðu bæði gleymt uppá- stungu hans að síma; og hann hafði gleymt töfrum skógarins. Það var þögn. Honum fannst sem hann væri að tefla skák — minn leikur. Þá sá hann stúlk- una aftur . . . aðeins hana . . . hún brosti hæversklega, en beið vafalaust eftir að hann færi. Hann var búinn að steingleyma skóginum; allur umheimurinn var gleymdur. „Ekkert pláss fyrir mig, hverqi?“ sagði hann. „Nei, hvergi,“ svaraði hún hægt. „Og eru allir gestir yðar hátt- aðir ?“ „Við förum snemma að hátta hér, herra. Kvöldlestin er síð- asti viðburður dagsins. Póstur- inn er ekki borinn út fyrr en morguninn eftir.“ Hann hélt á hattinum í vinstri hendinni; hann lagði hann á borðið. Og hann fór að tromma með fingrunum á borð- plötuna. „Ef þér væruð góð stúlka,“ sagði hailn og var erfitt um mál, „ef þér væruð góð, þá mynduð þér ekki senda mig sex mílna veg, þegar svona er áliðið — til heyrnarlausrar kerling- ar.“ Hann var þurr í munninum, og það var eins og hann tæki varla eftir því, sem hann sagði. „Þér mynduð lofa mér að vera. Þér mynduð finna — þér mynduð finna einhvern stað, þar sem ég gæti hallað mér.“ Hann furðaði sig á, hve rödd hans var skær. „Þér hafið herbergi?“ Andartak mættust augu þeirra. Hún leit til stigans, sem var á bak við hana. „Farið þarna upp og bíðið.“ Það var engin tilfinning í svip hennar, enginn skilningur. Hann tók hatt sinn og lagði pokann á gólfið hjá borðinu. Það var ekki gestastiginn. Það var mjór hringstigi og dimmt í honum. Hann stóð hreyfingarlaus í myrkrinu og beið. Hann þorði ekki að láta á sér bera af ótta við að vekja einhvern. Hann beið lengi. Hann heyrði fótatak. Ljós- gíætu brá fyrir niðri í stigan- um; það var eins og merki úr f jarlægð. Hann fann, að hún var að koma til hans. Öxl hennar straukst við hann. Hann gekk á eftir henni í myrkrinu; fullur vissu, en án þess að hugsa, án þess að sjá. Dyr féllu að stöf- um að baki þeim; hann heyrði að þeim var læst. Hann vaknaði í dögun. Þegar hann lauk upp augunum, sá hann höfuð stúlkunnar á kodd- anum hjá sér. Hún svaf. Hár hennar féll laust, augnalokin titruðu ofurlítið og hönd henn- ar lá opin ofan á sænginni. Hann sté fram úr rúminu, klæddi sig og fór út. Þegar hann kom niður að sjónum, snaraði hann sér úr fötunum og lagðist til sunds. Klukkan níu var sólin komin hátt á loft og hann taldi óhætt 9 9 9 HEIMILISPÓSTURINN 5

x

Heimilispósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.