Heimilispósturinn - 15.02.1951, Page 8
að snúa aftur heim til gisti-
hússins. Hann hafði gert hern-
aðaráætlun sína.
Forsalurinn var nú breyttur
frá því kvöldið áður, því að
hann var nú fullur af fólki,
körlum og konum, sem stóð í
smáhópum og ræddist við.
Bak við afgreiðsluborðið sat
holdug og rjóðleit kona. Hún
var eigandi gistihússins.
„Góðan daginn,“ sagði hann
og brosti.
Hún starði á hann eins og
tröll á heiðríkju. Koma hans var
svo óvænt, af því að hún var
hvorki í samræmi við ferðir
strætisvagnsins né lestarinnar.
Hann benti á malpoka sinn,
sem var á sama stað og hann
hafði látið hann kvöldið áður.
,,Ég kom hingað seint í gær-
kvöldi. Það var ekkert herbergi
laust, svo að ég skildi eftir pok-
ann minn og fór. Nóttin var
yndisleg. Getið þér lofað mér að
vera í dag? Mig langar til að
dveljast hérna dálítinn tíma.“
Svipur konunnar bar vott um
undrun og gremju.
„Komuð þér hingað í gær-
kvöldi ?“
Hann kinkaði kolli.
„Ekkert herbergi, segið þér?“
„Ég missti af vagninum . . .
Unga stúlkan tók mér með
mestu prýði. En það var ekkert
herbergi laust.“
„Hún sagði, að ekkert her-
bergi væri laust! Það var ein-
kennilegt. Og þér hafið orðið að
þramma alla leiðina til baka til
þorpsins! Það var leiðinlegt.
Hvað stúlkan getur verið kæru-
laus! Auðvitað var herbergi
laust!“
A
5KRÝTLUR.
„Ekki vera reið, mamma, ég kom
ekki nema með stóra köttinn inn.“
*
„Konan yðar minnir mig svo mik-
ið á elztu systur mína."
„Mig er hún alltaf að minna á
fyrri manninn sinn.“
*
Prestur einn fór í sjóferð, og var
að finna að því við skipstjórann,
hvað hásetarnir bölvuðu mikið.
„Það er ekki nema ljótur vani,“
sagði skipstjórinn. „Þegar þeir kom-
ast í hann krappan, þá hætta þeir
því.“
Daginn eftir gerði ofsarok, og bryt-
inn kom inn í káetu prestsins.
„Þetta er ægilegt veður," sagði
presturinn. „Bölva hásetarnir enn?“
„Já, ég held nú það,“ svaraði bryt-
inn,
„Guði sé lof!“ andvarpaði prest-
urinn.
*
Frú Rápan var meðlimur í mörg-
um kvenfélögum, og þar af leiðandi
aldrei heima; alltaf á fundum og
í samkvæmum. Einn daginn sagði
Rápan við hana:
„Þú ert eins og forsíðumynd í
„Vikunni", elskan min.
„Finnst þér ég svo lagleg, hjart-
að mitt.“
„Ekki beint það; en ég sé þig ekki
nema einu sinni í viku.“
6
HEIMILISPÖSTURINN
$ $ 9