Heimilispósturinn - 15.02.1951, Side 25

Heimilispósturinn - 15.02.1951, Side 25
aði, þumbaralegur, eins og honum var tamt, og svo fór hann að ráða mér heilræði, sem hans var vandi. Og þessi maður hafði ekki merkt farangur sinn skilmerkilega, hafði ekki haft fýrirhyggju að biðja um klefa á bakborða, til þess að vera öruggur um góða loftrasstingu; samt fer hann að leiðbeina mér um tilfinn- ingamál mín. „Ungi maður,“ sagði Pel. „Ég er gamall í hettunni í Austurlöndum; ég hef aldrei vitað neina hamingju stafa af kynblöndun, og þegar menn koma frá Vesturlöndum í fyrsta skipti, tel ég skyldu mína að vara þá við að ánetjast." „í>að var þér líkt," hugsaði ég. „Ég skal segja yður sögu um bland- að hjónaband," hélt hann áfram. „Forstjóri Sampong-fyrirtækisins, ungur maður með góðar framtíðar- horfur, heilsugóður, dugandi maður, hérlendur, kvæntist enskri stúlku. Ég nefni aldrei nöfn né tala um hagi annarra, ef ég get komizt hjá því, en til eru mál, sem geta orðið öðr- um til vamaðar, og það getur ekki talizt lausmælgi að drepa á þau. Jæja, þessi maður, sem ég nafn- greini ekki, kvæntist stúlku af góð- um kaupmannsættum, enskri, og í nokkra mánuði virtist allt falla í Ijúfa löð. Og þessu hefði vafalaust farið fram, ef Norðurálfumaður hefði átt í hlut. En hann var Asiumaður, og skyndilega skaut upp í honum ákafri afbrýðisemi gagnvart öðrum manni, og gersamlega að ástæðulausu. Þessi maður hafði verið mikill vin- ur konu hans, áður en hún giftist, og þar sem þetta var saklaus vinátta, hvers vegna skyldi hún ekki geta haldið áfram ? Þarna kom það; frá vestrænu sjón- armiði var ástæðulaust að slíta henni, en þessi Asíumaður var ekki heilvita Norðurálfumaður. Hann gerðist hug- sjúkur af þessu, reyndi f jölkynngi, — það vitnaðist i réttarrannsókninni, — og þegar fjölkynngi kom fyrir ekki, stakk hann á sig kuta, og kvöld eitt eftir dansleik, þegar gestimir voru á förum, rak hann rýtinginn í hinn, en varð honum þó ekki að bana. Jæja, hann er nú i fangelsi og verð- ur fimmtán ár enn. Getið þér sett yður fyrir sjónir kringumstæður kon- unnar, sem er á lífi og verður að sjá fyrir ungu barni?" „Nei,“ sagði ég, „get ekki og vil ekki. Þér dragið ályktun af sér- stöku tilviki, alveg eins og austrænn maður, sem kæmi til Evrópu og færi inn í hjónaskilnaðarréttinn, kynni að álykta, að öll hjónabönd í Evrópu færu illa.“ „Ég álykta af kunnugleik og al- mennri skynsemi," sagði Pel, „og ég gæti sagt yður dæmi víðsvegar úr þessum eyjum. Sko, sjáið þér mann- inn, sem situr þarna við dyrnar ? Þetta er Klinkert, og hann gæti sagt yður margt um furður Austurlanda. Hann er embættismaður í Macassar, það er fjörug borg, eins og þér mun- uð sjá á morgun. Mér er sagt, að hann hafi verið á þönum um eyjarn- ar á eftir vinnustúlku af kyni Dyaka, þrettán ára gamalli, sem strauk með skartgripi húsmóður sinar, og um leið að leita að yndislegri konu, sem drap mann sinn á glersalla. Og ef þér spyrjið hann, mun hann vafa- laust geta sagt yður önnur dæmi og atvik, sem lýsa skaplyndi aust- rænna þjóða og kenjum þeirra." Ég þráttaði ekki við hann, því að ég bjóst við, að ég gæti haft gagn af honum að morgni, þó að mér væri ekki ljóst, hvemig það mætti verða. En mér virtist, að þessir alvitru menn gengjust öðrum fremur upp við skjalli, og hugði, að mér kynni að heppnast að telja hann á mitt band 5 $ ? HEIMILISPÖSTURINN 23

x

Heimilispósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.