Heimilispósturinn - 15.02.1951, Side 27

Heimilispósturinn - 15.02.1951, Side 27
F. R. BEECHDOLT: DOLORES AÐ var áður en stóru flutn- ingavagnarnir tóku að marka veginn til Santa Fé, að Philip Sublette var á leiðinni til borgarinnar með lest. Uppi í fjöllunum var lítil kapella, fjölsótt af Pueblo-Indíánum. Það vildi svo til, að hann nam þar staðar eitt kvöld. Presturinn hét faðir Lopez; menntaður og göfuglyndur mað- ur, sem hafði lent í þessum af- kima veraldar af einhverjum brögðum örlaganna. Þó að gest- urinn veðurbitni væri illa til fara, fann faðir Lopez undir eins, að hann var vel að sér og af góðum ættum. Úr hálftíman- um, sem Sublette hafði ætlað sér að dvelja, urðu því þrír tím- ar, og þeim þótti leitt að skilja. „Er nokkuð sem ég get fært yður frá Santa Fé?“ spurði Sublette. „Mér þætti vænt um, ef þér vilduð færa mér fréttir af Dol- ores Moraga. Hún ætlar að gift- ast í þessum mánuði. Ég vona, að hún verði gæfusöm, því að ég þekkti foreldra hennar, og hún hefur oft setið á knjám mér. Ég vonaði, að ég fengi að gifta hana.“ Sublette reið til Santa Fé og reyndi að afla sér upplýsinga um Dolores Moraga. En þegar dvöl hans var nærri því á enda, hafði hann lítið fengið að vita, nema það, að brúðgumi hennar héti Ferdinand Castro og væri af góðum ættum. Síðla eitt kvöld sat hann á gistihúsinu og var að ljúka við kvöldverðinn. Hann var að kveikja sér í vindl- ingi, þegar veitingakonan kom inn og gaf sig á tal við hann. Meðan þau röbbuðu saman, hófst hávaði mikill í næsta herbergi, djúp hlátrasköll og skrækar kvennaraddir. „Það skemmtir sér,“ sagði Sublette. Veitingakonan brosti. „Það er góður viðskiptavinur minn, sem er að slá síðasta slaginn. Hann ætlar að giftast eftir þrjá daga.“ „Og svo sjáið þér hann ekki oftar.“ Hún yppti öxlum hæðn- islega. „Ef ég ætti að lifa á piparsveinum einum, þá væri betra að loka gistihúsinu. Nei, — stúlkan er auðug, hún er und- ir forráðum frænda síns, og þessi Ferdinand Castro er skuld- um vafinn, en áhrifamikill, — svo að þér skiljið, að allir verða fegnir — nema ef til vill brúð- urin.“ Sublette stóð upp og gekk út. Hann var að hugsa um gamla prestinn og sorgina, sem þetta mundi valda honum. Hann gat ekki farið að sofa, og eftir mið- nætti var hann enn á gangi. Fyrir framan Maríulíkneski í kirkju einni í miðri borginni lá stúlka á bæn, sveipuð dökkri skikkju, sem huldi andlit henn- ar. Bænir hennar voru þöglar, því að of fullt hjarta á erfitt að finna orð. En hún trúði því, að hin heilaga mey gæti hjálp- að sér, — hjálpað sér til þess að forðast hið illa og samein- ast elskhuga sínum; því að Dol- ores litla átti elskhuga. Hún eignaðist hann í draumi, og í draumum sínum ann hún hon- um. ? S ? HEIMILISPÓSTURINN 25

x

Heimilispósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.