Heimilispósturinn - 15.02.1951, Side 29
Valli, Joseph Cotten og Trevor Howard í „Þriðji maðurinn".
i
segjá, — og sá hann heilsa.
„Það voru einhverjir að slást,
ungfrú, og við vorum að leita
að tveimur —
„Leitið þið þá áfram og látið
þig mig vera í friði,“ sagði hún
rólega.
Þegar menn eru ungir, er tím-
inn ekki til mikillar fyrirstöðu.
Og Sublette hafði tvo daga enn,
þangað til hann færi frá Santa
Fé.
Og þannig gerðist það, að faðir
Lopez var á gangi í garðinum
sínum nokkrum kvöldum síðar,
og sá þá hana Dolores litlu
koma upp veginn, með unnusta
sínum. Og ósk hans um að hann
fengi að gifta hana rættist. Og
meira en það; því að þegar hann
sá hana leggja út í löngu ferð-
ina til St. Louis með manni sín-
um, þá vissi hann, að gæfan,
sem hann hafði beðið um, var
komin til hennar. X.
SKRÝTLUR
Presturinn (við skírn): „Og við
vonum öll, að þetta barn verði sann-
kallað valinmenni og karlmenni, þeg-
ar það kemst til vits og ára. — Hvað
á barnið að heita?“
Móðirin: „Ingibiörg."
*
Kerlingu einni í Borgarfirði bár-
ust þau tíðindi síðla sumars 1914,
að heimsstyrjöld væri hafin. Þá
komst hún svo að orði:
„Það er meiri gangurinn í mönn-
unum. Það er ég viss um, að þeir
hætta ekki fyrr en þeir drepa ein-
hvern.“
*
Læknirinn: „Það bezta, sem þér
getið gert, er að hætta að reykja
og drekka, og fara í rúmið kl. 10 á
hverju kvöldi."
Sjúklingurinn: „Humm —. Og það
næstbezta ?“
*
„Frúin: „Við erum vön að drekka
kaffi kl. 8 á hverjum morgni.“
Nýja vinnukonan: „Jæja, en ef
ég skyldi ekki ve»a komin á fætur,
þá blessuð verið þið ekki að biða
eftir mér!“
9 2 5
HEIMILISPÓSTURINN
27