Heimilispósturinn - 15.02.1951, Síða 30

Heimilispósturinn - 15.02.1951, Síða 30
Maðurinn með skærin. Gömul og sígild saga frá Hollywood. LÖGREGLUBIFREIÐIN ók fram hjá „Café Henry“ í Hollywood. Stuttu síðar heyrð- ust bjöllur sjúkrabifreiðarinn- ar. Þeir sátu þar á kaffihúsinu eins og þeir voru vanir, Char- lie Chaplin, Harry Crocher, Nils Asther og Wallace Beery. Chaplin sneri sér að Frank Lawrence, sem sat þar einnig, og sagði: „Þarna fer eitt af fórnardýr- um þínum, Lawrence.“ Hinn yppti öxlum. Það varð þögn við borðið, gestirnir urðu daprir á svipinn, og fóru smátt og smátt að tín- ast burtu. Leikstjórinn Sam Wood sat í einu horni kaffihúss- ins, og þegar allir voru farnir, sagði hann sögu mannsins með skærin. Það koma árlega um 15 þús- und karlar og konur með kvik- myndaæði til Hollywood. Það er löng og hörð barátta fyrir flest þetta fólk — það sveltur heilu hungri, og þeir sem fá nokkra daga atvinnu fyrir 5— 10 dollara á dag, geta kallazt heppnir. En Lawrence hefur ekkert að gera með örlög þessa fólks. Hann er sá, sem klippir úr kvik- myndunum það sem ofaukið er. Til þess að vera viss um, að myndin heppnist, eru oft tekin um 100 þús. fet af mynd, sem á ekki að verða nema sex þús- und feta löng. Hitt er klippt burtu, og þar með fara oft von- ir og starf þeirra, sem hafa fengið byrjendahlutverk í myndinni. Þeir koma aldrei fyr- ir sjónir áhorfendanna. Annálar lögreglunnar í Hollywood bera vitni um það, hve mörg sjálfsmorð eru fram- in af þessum ástæðum. Eg skal nefna dæmi. Lousie B. var kaupmanns- dóttir frá Virginia. Hún hafði fengið fegurðarverðlaun í fæð- ingarborg sinni, hafði töluverð- ar leikgáfur, og áleit þetta nóga ástæðu til þess að freista gæf- unnar í Hollywood móti vilja foreldra sinna. Hún kom þang- að með nokkra spariskildinga í vasanum, og henni heppnaðist von bráðar að fá loforð eins leik- stjórans um hlutverk í nýrri kvikmynd. Það var ekkert stærðarhlutverk, en þó svo, að það gat borið eitthvað á henni, og hún gat sýnt hvers hún var megnug. Hún vandaði sig við hlutverkið og leikstjórinn hrós- aði henni, og sagði, að hún mundi geta komizt langt á þess- ari braut. Hún skrifaði heim til foreldra sinna, og þau fóru að hugsa sem svo, að stúlkan ætti þó einhverja framtíð fyrir sér. Nú líður og bíður, og það kemur að þeim degi, þegar átti að sýna myndina í fyrsta skipti. ! Það var í einu stærsta kvik- myndahúsi borgarinnar. Louise var frá sér numin af gleði og lét föður sinn koma til Holly- wood, til þess að vera viðstadd- j an þennan mikla atburð. Miljón- ir manna áttu að fá að sjá þessa mynd, framtíð hennar var undir ; myndinni komin. Faðir og dótt- ir sátu í eftirvæntingu. En þau biðu og biðu, myndinni var tek- 28 HEIMILISPÖSTURINN 9 5 9

x

Heimilispósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.