Vinnan - 01.04.1998, Side 9
Á heimasíðu ASÍ má lesa um Alpýðusambandið,
Vlnnuna, Mennlngan og Iræðslusamband alþýðu,
Listasalu ASÍ, Mími-Tómstundaskolann og
komast í tengsl við aðrar síður víðs vegar um
heim.
ASÍ-vefurinn er enn í þrnun og mun lara hratt
vaxandi á næstu vikum. Markmiðið er að hann
verði „gátt" verkafólks að veraldarvefnum. þar
sem það geti aflað sár allra upplýsinga um
störf verkalýðshreyfingar og stefnu, sátt sár
gögn og tengst fjölda annarra heimasíðna.
ASÍ vefinn
er að finna á
http://www.asi.is
ASÍ-vefurinn er enn í þróun og
mun fara hratt vaxandi ánæstu
vikum. Markmiðið er ASÍ-vefur-
inn verði „gátt“ verkafólks að
veraldarvefnum, vefurinn sem
fólk heimsækir fyrst af öllum til
að nálgast þar allar upplýsingar
um störf verkalýðshreyfingar
og stefnu, sækja sér gögn og
tengjast fjölda annarra heima-
síðna um verkalýðsmál, bæði
aðijdarfélaga og sambanda
ASÍ, stofnana sem snerta hags-
muni launafóks innan lands og
utan, auk hins alþjóðlega
verkalýðsvefs.
Hverju breytir ASI vefurinn fyrir
vekalýðsfélögin ?
I fyrsta lagi gerir þessi upplýs-
ingabanki verkalýðshreyfingarinnar
hverju einstöku félagi mun léttara
að koma sér upp eigin heimasíðu á
netinu. Félög og sambönd geta ein-
faldlega byrjað á því að koma sér upp
tiltölulega einföldum vef með helstu
upplýsingum og aukið gild hans með
því að tengjast við ASI-vefmn.
í öðru lagi verður hægt að nálgast
fjölda gagna á tölvutæku formi beint
á ASÍ-vefnum. Þar má nefna sam-
þykktir og fréttatilkynningar, upplýs-
ingar og leiðbeiningar um mál á borð
við Evrópureglur og samninga, upp-
lýsingar um vinnurétt og margvísleg
réttindamál, greinar og fréttaskýring-
ar úr Vinnunni og loks er stefnt að
því að koma upp „Upplýsingahand-
bók ASÍ og MFA“ á vefnum. Með
því að tengjast henni verður hægt að
fá flestar þær upplýsingar sem nú er
að finna í handbókum fyrir trúnaðar-
menn auk hagnýtra leiðbeininga fyrir
stjómir og starfsmenn stéttarfélaga á
mörgum sviðum.
Afhverju á verkalýðshreyfingin að
netvœðast ?
I fyrsta lagi leggur hin alþjóðlega
verkalýðshreyfing sífellt meiri
áherslu á að nýta veraldarvefinn til að
miðla upplýsingum og vinna sjónar-
miðum hreyfingarinnar fylgi.
I öðru lagi er hægt að nýta verald-
arvefinn til að nálgast mikið af gagn-
legum upplýsingum, bæði innlendum
og erlendum.
I þriðja lagi fylgir netvæðingunni
samband með tölvupósti en sú leið
þýðir að við getum skipst á gögnum á
tölvutæku formi með leifturhraða.
I fjórða lagi má nýta þéttriðinn
verkalýðsvef við kynningu á verka-
lýðshreyfingunni, t.d. í skólum lands-
ins. Unga fólkið hefur gaman af að
sækja sér upplýsingar og vinna verk-
efni sem tengjast þessum miðli.
Afhverju tölvupósttengingu ?
Hver vildi vera án faxtækis í dag?
Tölvupósttenging er einfaldlega
næsta skref: Við skrifum texta og
setjum upp í ritvinnsluforriti eða
vinnum útreikinga í töflureikni og
setjum upp í litrík gröf. Þessi skjöl
getum við svo sent með leifturhraða
til skrifstofu hvaða verkalýðsfélags
sem er og þar geta viðtakendur unnið
með þessi gögn, prentað út, sett í
fréttablöð sín, prentað út á glærur fyr-
ir fundi, vistað til síðari tíma nota eða
gert athugasemdir og leiðréttingar og
sent til baka.
Skoðanaskipti, boðanir funda,
hvatning til aðgerða - möguleikamir
1 ! & 11 © o* a
| Bwk | Hom» | | R*lo«d Op*c Prlnl FW
|http //yjr
fvhtt'»Nr^?l|vhtt'»C<át7]| p.iUMttw'i || N>t Snrch 11 P«opW |f Softw«r. |
twmwt.tl
IS
Velkommen til
Landsorganisasjonen
I N o r g e
f 'Sf
Hjndl.ngiprogr.immct LO I Nocgc
('§§
Lovot & avUÍOT
e>
Sommcrp Jtrul|cn B«m»Mt>OTd
I. m*l 1998
LO-todtr Yntvt HtgenMn besoHer Osto oj 03öold Mens Oerd-Lnr Vells og Jen
Kr. Beleted beeaker henhoMavu Rotelend o* Nordlend.
PS DnAi htemmejtder Itenduje hvor evrtje tUUtsveJ** í LO oj tniiovelgte i DnA
ekel hokle teler ved íreo 1 mel íeierin*. ►
ítírxUtfM jikv.?.i
Hjrtt (ra LOs ackrcteriet
Sekretenetet i LO behendlet 1 de« hðrtn(»unelelser om prej jestonen o(
eoblertntjsvpp (or ktopesentre Her ken du leje haringsunelebene 1 jm helhet. ►
tiDtUKAvJy. juvyJ
Heimasíða norska
alþýðusambandsins, LO.
Alþjóðlegi verkalýðsvefurinn flytur fréttir af
verkalýðsmálum um heim allan og þar er
hægt að tengjast stéttarfélögum og stofnunum
tengdum verkalýðsmálum um allan heim. A
verkalýðsvefnum er m.a. listi yfir þau átök á
vinnumarkaði sem eru í gangi á hverjum tíma.
http://www.gn.apc.org/laboumet/
Verkalýðsfélög um heim allan em talin upp á
þessum yfirgripsmikla lista:
http://www.fnv.nl/~Marcel/unionsen.html
Verkalýðsfréttir og valdir vefir birtast í sam-
antekt Eric Lee á vefsíðu sem hann vinnur við á
milli þess sem hann mjólkar kýmar á ísraelsku
samyrkjubúi. Hann safnar saman fréttum af
starfi verkalýðshreyftngarinnar um heim allan
og velur vikulega verkalýðsvef sem hann mælir
sérstaklega með. Forvitnileg síða þar sem m.a.
er hægt að nálgast sjálfvirkan fréttalesara um
verkalýðsmál sem birtir nýjustu fréttir jafnóðum
á skjáborði þeirra sem em sítengdir. Að auki er
opin spjallrás um verkalýðsmál á hverjum
mánudegi klukkan fjögur síðdegis.
http://www.solinet.org/LEE/
Alþjóðavinnumálastofnunin, ILO, er elsta
stofnun Sameinuðu þjóðanna og stendur vörð
um réttindi launafólks um heim allan. Á heima-
síðu stofnunarinnar er hægt að fá góða yfirsýn
yfir verkefni ILO og stefnumál.
http://www.ilo.org/
Alþjóðasamband frjálsra verkalýðsfélaga
(ICFTU) sem berst fyrir mannréttindum og
frelsi launafólks um heim allan. ICFTU hefur
meðal annars beint sjónum srnum að bama-
þrælkun og hörmulegum vinnuaðstæðum
kvenna víða um heim á undanfömum ámm.
http://www.icftu.org/
Evrópusamtök verkalýðsfélaga (ETUC)
gegna sífellt mikilvægara hlutverki í þróun fé-
lagsmála á Evrópuvettvangi. ASI tekur virkan
þátt í starfi ETUC sem kynnt er á ETUC vefn-
um. http://www.etuc.org/
Verkalýðsfélög og alþýðusambönd Evrópu
eru talin upp á ETUC vefnum. Fjöldi þeirra hef-
ur komið sér upp heimasíðum sem fróðlegt er að
kynna sér.
http://www.etuc.org/info/inf0004en.htm
EIRO er rannsóknarstofnun á sviði vinnu-
markaðsmála í Evrópu. 22. janúar 1998 opnaði
EIRO upplýsingavefinn Eironline þar sem hægt
er að skoða fréttir, upplýsingar og rannsóknir.
Omissandi vefur fyrir þá sem vilja fylgjast
grannt með þróun vinnumarkaðsmála í Evrópu.
http://www.eiro.eurofound.ie
Evrópusambandið er með mjög ítarlegan
upplýsingavef þar sem m.a. er hægt að kynna
sér þau mál sem eru í undirbúningi hverju sinni.
I ljósi þess hve ráðandi þróunin í Evrópu er fyrir
réttindamál launafólks, vinnuvemd og ýmis fé-
lagsleg ákvæði á íslenskum vinnumarkaði er
mjög mikilvægt að fylgjast með grannt með
þróun mála. http://europa.eu.int/
Alþýðusamböndin í Danmörku (LO Dan-
mark) http://home.lo.dk/lo/
Noregi (LO Norge) - http://www.lo.no/
Svíþjóð (LO Sverige) - http://www.lo.se/ og
Finnlandi (SAK) - http://www.sak.fi/ em að
sjálfsögðu öll á vefnum.
Alþjóðasamband verslunarmanna (FIET) er
með yfirgripsmikinn fréttavef
http://www.fiet.org Þar hafa m.a. birst fréttir af
starfi Landssambands íslenzkra verzlunar-
manna. Þá er einnig sagt af stuðningsstarfi FIET
við endurreisn atvinnulífs og félagsstarf í ríkjum
Balkanskagans sjá: http://www.fiet.org/-
commerce/Commiceland.htm
Breska alþýðusambandið (TUC) er með yfir-
gripsmikinn upplýsingavef sem vert er að
skoða. Þar eru meðal annars tengingar við
verkalýðsfélög víða unt heim.
http://www.tuc.org.uk/
Landssamband danskra verslunarmanna
(HK) hefur sett upp sérlega líflegan og
skemmtilegan upplýsingavef þar sem stefnumál
og starfsemi hreyfingarinnar í hinum margvís-
legu málaflokkum er skýrð. http://www.hk.dk/
9
Vinnan