Bæjarins besta - 15.01.1997, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 1997 13
Ísafjarðarflugvöllur
Farþegum Flug-
leiða fjölgaði um
7% á síðasta ári
Á síðasta ári varð um 7%
aukning á farþegaflutningum
um Ísafjarðarflugvöll hjá Flug-
leiðum sem þýðir að 49.412
arðbærir farþegar hafa flogið
með félaginu til og frá Ísafirði
á árinu. Reyndar voru farþeg-
arnir 50.266 að hausatölu en
þá eru tekin með t.d. ungabörn
og frímiðar þar sem ekki er um
bókuð sæti að ræða. Að sögn
Arnórs Jónatanssonar, hjá
Flugleiðum á Ísafirði, héldu
margir að með tilkomu nýs
flugfélags myndi farþegum
Flugleiða fækka á þessari leið,
en raunin hafi orðið önnur því
að um metár var að ræða í
Ísafjarðarfluginu. Farþegar
milli Akureyrar og Ísafjarðar
voru 3.757 á síðasta ári.
„Veðráttan hefur haft mikið
að segja um þessa aukningu og
ég get nefnt sem dæmi að í
desember s.l. féll niður flug í
einn dag en undanfarin ár hafa
þetta verið svona 6-10 dagar í
desember sem ekki hefur verið
hægt að fljúga vegna veðurs.
Jarðgöngin hafa einnig hjálpað
til að því leyti að þegar ekki
reynist unnt að fljúga til
Ísafjarðar þá er oft opið til
Þingeyrar en í þeim tilfellum
ökum við farþegum okkar á
milli í gegnum göngin.“ Arnór
segir að einhver samdráttur hafi
orðið í fragtflutningum og telur
hann skýringuna að einhverju
leyti vera þá ákvörðun Pósts
og Síma að flytja póst land-
leiðina. Flugleiðir flytja þó enn
póst fyrir Þingeyri, Flateyri og
Suðureyri og námu fragt- og
póstflutningar félagsins um
306,4 tonnum á árinu.
Ísafjarðarflugvöllur.
,,Það hafa engir smíða-
samningar verið undirritaðir
en horfurnar eru ágætar. Við
erum í viðræðum við nokkra
aðila og ég er bjartsýnn á að
við getum hafið smíði á nýju
skipi innan skamms tíma,”
sagði Sigurður Jónsson,
framkvæmdastjóri Skipa-
smíðastöðvarinnar hf., á Ísa-
firði, aðspurður um verkefna-
stöðu fyrirtækisins, en eins og
kunnugt er, hleypti stöðin nýju
rækjuskipi af stokkunum í
nóvember, en það skip var
fyrsta nýsmíðaverkefni Skipa-
smíðastöðvarinnar um sjö ára
skeið.
,,Við erum leitandi að verk-
efnum allt árið og höfum í dag
næg verkefni fram í febrúar.
Við stefnum að því að hefja
smíði á nýju skipi í næsta
mánuði, hvort af því verður,
fer allt eftir samningsgerðinni
og um hvers konar skip verður
að ræða. Það er ekkert á treyst-
andi í þessum efnum en við
erum sæmilega bjartsýnir á
að okkur takist að undirrita
samninga áður en langt um
líður. Hvort það verður heilt
skip eða ekki, get ég ekki
sagt til um nú en við stefnum
á það,” sagði Sigurður.
Viðræður í gangi um
nýsmíðaverkefni
Skipasmíðastöðin hf., á Ísafirði
Sandvík frá Sauðarkróki var hleypt af stokkunum hjá Skipasmíðastöðinni á Ísafirði í nóvember. Skipið var fyrsta
nýsmíðaverkefni fyrirtækisins um sjö ára skeið. Vonir forráðamanna fyrirtækisins standa til þess að hægt verði að hefja
smíði á nýju skipti fljótlega.