Bæjarins besta - 15.01.1997, Qupperneq 16
Nærfata-
útsalan
en í fullum
gangi!
Fyllum Jakann!Fyllum
Jaka
nn!
Bæjarins besta
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984 Sími 456 4560 Fax 456 4564 Netfang: hprent@snerpa.is Verð kr. 170 m/vsk
KFÍ - Breiðablik
Föstudaginn 17. janúar kl. 20:00
Aflamark ísfirskra skipa
Á uppleið eftir
mögur ár
Aflamark ísfirskra skipa í
botnfiski er 139 tonnum minna
á núverandi fiskveiðiári en var
fyrir tólf árum. Árið 1985 nam
aflamarkið 15.353 tonnum en
er í dag 15.214 tonn. Á framan-
greindu tímabili var aflamarkið
hæst árið 1987 eða 17.427 tonn
en lægst fiskveiðiárið 1994-
1995 eða 10.504 tonn.
Árið 1986 var aflamark
ísfirskra skipa í botnfiski
16.361 tonn, árið á eftir var
það komið í 17.427 tonn, árið
1988 í 16.727 tonn, árið 1989
var það 16.594 tonn og árið
1990 var það 16.168 tonn. Árið
1991 fór aflamarkið niður í
11.728 tonn en jókst um 2.663
tonn árið á eftir og en þá var
heildaraflamarkið 14.391 tonn.
Síðan þá hefur aflamark ís-
firskra skipa farið minnkandi
ef undanskilin eru tvö síðustu
fiskveiðiár.
Aflamark í úthafsrækju hefur
hins vegar aukist um 4.816 tonn
frá árinu 1991 en þá var það
1.105 tonn. Mest var það
fiskveiðiárið 1996-1996 eða
6.533 tonn en á yfirstandandi
fiskveiðiári er aflamark í
úthafsrækju 5.921 tonn. Svarar
það til um 10% af heildar-
aflamarki íslenskra skipa á
úthafsrækju. Hlutfall aflamarks
ísfirskra skipa í botnfiski er á
yfirstandandi fiskveiðiári um
5% af heildaraflamarki íslensk-
ra skipa.
Milljónatugir féllu á Súðavíkurhrepp vegna uppkaupa húsa
Hreppurinn ráðgerir að
sækja um fyrirgreiðslu
frá Ofanflóðasjóði
Þrjátíu og sjö milljónir króna
féllu á Súðavíkurhrepp um
síðustu áramót vegna uppkaupa
húseigna í gömlu Súðavík. Um
er að ræða 10% af uppkaups-
verði húseignanna, sem sveitar-
félaginu ber skylda til að standa
skil á samkvæmt lögum um
Ofanflóðasjóð. Heildarupp-
kaupin í Súðavík hljóða upp á
470 milljónir króna, en gengið
hafði verið frá kaupum fyrir
um 370 milljónir um síðustu
áramót. Að sögn Ágústar Kr.
Björnssonar, sveitarstjóra í
Súðavík, ráðgerir hreppurinn
að sækja um fyrirgreiðslu hjá
Ofanflóðasjóði til að geta
staðið við skuldbindingar sínar,
og brúa tímabilið þar til laga-
breytingarnar hafa verið sam-
þykktar á Alþingi.
,,Þeir aðilar hjá hinu opin-
bera sem ég hef átt erindi við
vegna þessa máls hafa hengt
sinn hatt á lagabreytinguna á
frumvarpinu um varnir gegn
snjóflóðum og skriðuföllum,
sem kynnt var á Alþingi fyrir
tímabil, með ósk um að laga-
breytingin á frumvarpinu muni
taka til þessa láns eins og lofað
var á fundi sem haldinn var á
Ísafirði. Um leið og við fáum
þessa fyrirgreiðslu, getum við
farið að gera upp við eigendur
húseigna á staðnum, en eins og
kunnugt er áttu þeir að fá
uppgert á gamlársdag,” sagði
Ágúst.
Ágúst sagðist vera bjartsýnn
á að niðurstaðan yrðu hreppn-
um í hag, en ef svo yrði ekki,
yrðu þær yfirlýsingar skoðaðar
nánar, sem gefnar voru vegna
þessa verkefnis.
Frá Súðavík. Súðavíkurhreppur tók á sig 37 milljónir króna um áramót vegna uppkaupa
húseigna í gömlu Súðavík. Hreppurinn ráðgerir að sækja um fyrirgreiðslu til Ofanflóðasjóðs
til að geta gert upp við húseigendur á staðnum.
jól og því féllu 10% af upp-
kaupsverðinu á hreppinn um
áramót. Að vísu er framvindan
aðeins orðin 370 milljónir
króna og því voru það 37
milljónir sem hreppurinn varð
að taka á sig vegna þessa máls,”
sagði Ágúst Kr. Björnsson í
samtali við blaðið.
Ágúst sagði að breytingar á
umræddu frumvarpi færu vænt-
anlega ekki fyrir Alþingi fyrr
en í febrúar eða byrjun mars og
yrði því ekki orðið að lögum
fyrr en í apríl. ,,Við höfum því
sótt um fyrirgreiðslu hjá Ofan-
flóðasjóði til að brúa þetta
Stjórnir heilsugæslu-
stöðva á norðanverðum
Vestfjörðum samþykktu s.l.
haust að gerð yrði könnun
og úttekt á hagkvæmni þess
að heilsugæslustöðvar á
svæðinu þ.e. Bolungarvík,
Ísafjörður, Flateyri og Þing-
eyri myndu bindast form-
legu samstarfi. Kannaðir
yrðu kostir þess og gallar,
fjárhagsleg hagkvæmni,
mönnunarþættir og mögu-
leikar á rekstrarfyrirkomu-
lagi.
Í framhaldi þessarar sam-
þykktar fól Heilbrigðis- og
Niðurstöðu að vænta innan skamms
Samstarf í heilsugæslumálum á Vestfjörðum
Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði. Læknar þaðan hafa þjónað Bolvíkingum frá því héraðslæknir hætti þar störfum.
tryggingamálaráðuneytið Hag-
sýslu ríkisins að skila skýrslu
um málið og vinna verkefnið í
nánum tengslum við bæjar-
stjórnir Ísafjarðarbæjar og
Bolungarvíkur og stjórnendur
ofangreindra heilbrigðisstofn-
ana.
Í samtali við Ólaf Kristjáns-
son, bæjarstjóra og fram-
kvæmdastjóra heilsugæslu-
stöðvarinnar í Bolungarvík,
kom fram að tveir aðilar frá
Hagsýslu ríkisins hefðu komið
til viðræðna við heimamenn í
nóvember 1996 og væri verið
að vinna að skýrslugerð sem
væntanlega yrði lokið við á
næstu dögum.
Ólafur sagði að óska staða
Bolvíkinga væri sú að í Bol-
ungarvík yrðu búsettir tveir
læknar sem jafnframt hefðu
starfsaðstöðu við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Ísafirði. Óshlíðin
væri engin fyrirstaða fyrir slíkri
tilhögun, t.d. hefði Óshlíðin
aðeins verið lokuð fjóra daga á
árinu 1995. Sólarhrings vakt-
skylda eins læknis væri með
öllu óviðunandi og því nauð-
synlegt að eiga gott samstarf í
þessu mikilvæga byggðamáli,
þ.e. að hafa heilbrigðisþjónust-
una ávallt sem besta og
starfsaðstöðu aðlaðandi fyrir
lækna.
Bolvíkingar hafa nú ekki
fastan lækni að störfum en
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir,
heimilislæknir, kemur til
starfa í byrjun ágústmánaðar
n.k. Læknar á Ísafirði hafa
sinnt þjónustu við Bolvíkinga
og vildi Ólafur koma á
framfæri þakklæti til þeirra
fyrir velvilja og skilning við
að leysa tímabundinn vanda
Bolvíkinga með því að brúa
bilið þar til Guðbjörg kemur
til starfa.
Nærfata-
útsalan
en í fullum
gangi!
HAMRABORG EHF.