Bæjarins besta - 03.12.1997, Qupperneq 16
Úrval
jólagjafa!
Komdu og
skoðaðuBæjarins besta
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984 Sími 456 4560 Fax 456 4564 Netfang: hprent@snerpa.is Verð kr. 200 m/vsk
Slökkvilið Bolungarvíkur
Tekur í notkun
nýtt húsnæði
Slökkviliðsstjórar og varslökkviliðsstjórar í Bolungarvík, fyrrverandi og núverandi. F.v.
Ólafur Benediktsson, Ketill Elíasson, Benedikt Bjarnason, Egill Benediktsson, Jón Sveinsson
og Jón Guðbjartsson.
Á föstudaginn tók slökkvi-
lið Bolungarvíkur í notkun
nýtt og glæsilegt húsnæði og
var boðið til víglsuhófs af því
tilefni. Nýja húsnæðið er í
hluta áhaldahúss Bolungar-
víkurkaupstaðar og mun það
gjörbreyta allri vinnuaðstöðu
slökkviliðsins, að sögn Ólafs
Benediktssonar, slökkviliðs-
stjóra.
„Slökkviliðið er að fara úr
100 fermetra húsnæði í þenn-
an 250 fermetra sal, en vinnu-
aðstaðan á gamla staðnum var
orðin gjörsamlega óviðun-
andi. Hér munum við hafa gott
rými til að sinna viðhaldi
tækjabúnaðar, auk þess sem
við samnýtum kaffistofu og
hreinlætisaðstöðu með starfs-
mönnum áhaldahússins.
Fræðsla og námskeiðahald er
sífellt að aukast og aðstaða til
þess er nú orðin allt önnur en
var,“ sagði Ólafur í samtali
við blaðið.
Slökkvibúnaður í Bolung-
arvík er nánast allur gamall,
en þar á meðal er Bedford
dælubíll frá árinu 1962 og
Benz dælubíll frá árinu 1966.
Nýlega var þó keyptur nýr
vatnsbíll sem gjörbreytir að-
stæðum, því gamli bíllinn var
nánast ónýtur að sögn Ólafs.
Hann segir tímabært að endur-
nýja annan búnað, en það sé
dýrt og óvíst hvenær svigrúm
skapaðist til þess.
Útköll hjá Slökkviliði Bol-
ungarvíkur voru 18 á síðasta
ári, en þar af voru alútköll
vegna elds í fjórum tilfellum.
Skipaðir slökkviliðsmenn eru
19 talsins, auk slökkvilið-
stjóra og tveggja varaslökkvi-
liðsstjóra. Árið 1994 var tekin
upp boðun með símboðum og
segir Ólafur það hafa breytt
miklu um boðun slökkviliðs-
manna í útköll og hafa marg-
sannað gildi sitt.
Slökkviliðið hefur farið í
tvö útköll frá nýja staðnum
sem stendur aðeins fyrir utan
bæinn, og segir Ólafur allt
hafa gengið samkvæmt áætl-
un og að viðbragðstími hafi
verið góður.
Óprúttnir veltu bif-
reið niður í fjöru
Ökumaður bifreiðarinnar á myndinni hér til hliðar ók útaf við
Brúarnesti um kl. 02 aðfaranótt laugardags. Lögregla kom á
staðinn og var ökumaðurinn færður á lögreglustöð, grunaður um
ölvun við akstur. Bifreiðin valt ekki við óhappið, en þegar
lögreglumaður sem var á heimleið af vakt, átti leið framhjá
slysstað um kl. 06 á laugardagmorgun, höfðu einhverjir óprúttnir
tekið sig til og velt bifreiðinni út fyrir veginn.
Úrval
jólagjafa!
Komdu og
skoðaðu
Internetþjónustufyrirtæki sameinast
Snerpa á Ísafirði yfirtek-
ur Smartnet í Hveragerði
Internetþjónustan Smartnet
í Hveragerði hefur sameinast
internetþjónustunni Snerpu á
Ísafirði, undir merkju Snerpu.
Með sameiningunni eykst
notendafjöldi Snerpu að Inter-
netinu um rúmlega hundrað.
Notendur í Hveragerði geta
nú skráð sig undir svæðis-
netfanginu snerpa.is og not-
endur á Vestfjörðum undir
svæðisnetfanginu smart.is.
„Í kjölfar sameiningarinnar
munum við efla tengingarnar
verulega. Á föstudaginn tvö-
földuðum við samband okkar
við Internetið upp í 256 kílóbit
og á mánudaginn var bætt við
10 mótöldum, sem í rauninni
er bráðabirgðalausn, vegna
þess að Póstur og sími hefur
ekki getað afgreitt allt það sem
við höfum pantað. Stefnan er
sú að þegar stækkunum á
kerfinu verður lokið, verði
hefðbundnar innhringirásir
38-40 og samnetsrásir 16,“
sagði Björn Davíðsson, hjá
Snerpu, í samtali við BB.
Notendur að Internetinu í
gegnum Snerpu eru í dag um
470. Aðspurður um hvort rétt
væri að stóru aðilarnir í sölu
Internetþjónustu hefðu borið
víurnar í Snerpu sagði Björn,
að nokkrir þeirra hefðu nefnt
ýmsa hluti undir rós. „Við
teljum að við séum sjálfir
okkur nógir í þessum efnum
og höfum ekki hug á að selja
á meðan rekstrargrundvöllur
er fyrir hendi.“
Bolungarvík
Aðventuhátíð
í Hólskirkju
Sunnudaginn 7. desem-
ber kl. 20:30 verður að-
ventukvöld í Hólskirkju í
Bolungarvík.
Þar munu koma fram
kirkjukór Bolungarvíkur,
kór Suðureyrarkirkju og
Kvennakórinn í Bolung-
arvík. Stjórnendur og undir-
leikarar eru þær Guðrún
Bjarnveig Magnúsdóttir og
Margrét Gunnarsdóttir.
Á aðventuhátíðinni mun
Sigrún Sigurðardóttir flytja
hugvekju og ungmenni
verða með helgileik undir
stjórn sr. Agnesar Sigurð-
ardóttur.
Aðventukvöldin eru orð-
in fastur liður í jólaundir-
búningi í Bolungarvík og
er þetta í 32. skipti og ávallt
á öðrum sunnudegi í að-
ventu. Allir eru velkomnir.