Börn og menning - 01.09.1999, Blaðsíða 11

Börn og menning - 01.09.1999, Blaðsíða 11
BÖRN 06 AAENN|N6 menning er ekki óbreytanlegt hugtak og íslenskt þjóðfélag er ekki lengur eins og það var í Nonna- bókunum. Þjóðin er ekki lengur einsleit og við getum ekki útilokað nýja íslendinga frá því að deila menningu okkar. Þó svo að við reynum að ríghalda í okkar gömlu hefðir verðum við að opna leiðir fyrir straumum frá öðrum menningarheimum. Glöggt dæmi um góða aðlögun menningar er að finna í hinni margverðlaunuðu bók, Benjamín Dúfu eftir Friðrik Erlingsson.19 Drengurinn Róland flytur til íslands frá Skotlandi með skoskan menningararf í farteskinu, málverk af pils- klæddum hetjum og sögur um skikkjuklædda riddara sem skylmast með sverðum og spjótum. I dag fyrirfinnst varla það íslenska ungmenni sem ekki hefur lesið þessa sögu eða séð kvikmyndina sem byggð var á henni og dreymt um að berjast með réttlæti gegn ranglæti. Þannig koma molar úr framandi menningu inn í þá íslensku, taka á sig sérkenni hennar og úr verður endurbyggð íslensk menning. Nýbúar bera hingað með sér framandi siði og erlend menning verður smárn saman meiri hluti af barnamenningu Islendinga með sjónvarpi og Interneti. Menningarstraumar hvaðanæva úr heiminum hafa því einhver áhrif á menningu okkar — hvort sem okkur líkar betur eða verr — og auðga hana, án þess að draga úr gildi okkar íslenska menningararfs. Það þjóðfélag og þá menningu munum við sjá endurspeglast í íslenskum barnabókum á nýrri öld. 19 Friðrik Erlingsson. Benjamín Dúfa (Reykjavík: Vaka-Helgafell, 1992). Börn og bœkur - Islandsdeild IBBY Ef þið viljið gerast meðlimir í Börnum og bókum, eða fáið góðar hugmyndir og viljið leggja eitthvað af mörkum til starfseminnar eða tímaritsins, þá hafið samband! Þið getið sent okkur línu: Börn og bœkur - íslandsdeild IBBY Pósthólf 7191, Reykjavík Einnig getið þið hringt í formanninn, Iðunni Steinsdóttur, í síma 553 2804, eða ritstjórann, Kristínu Birgisdóttur í síma 566 7264. 9

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.