Börn og menning - 01.09.1999, Blaðsíða 27

Börn og menning - 01.09.1999, Blaðsíða 27
BÖRN 06 aaENN|N6 Kristín Steinsdóttir: A f norslcum bókum og íslenskum Það má segja að það hafi verið forréttindi að fá að búa inni í miðjum Þrándheimi og hafa tœkifœri til að kynnast norskri menningu að einhverju marki eins og ég gerði allt síðastliðið ár. Kynni mín af henni voru svo takmörkuð að ég hafði aldrei náð neinni fótfestu eða tekist að mynda mér skoðanir á því sem er að gerast í menningu þessara nágranna okkar. Ekki ber að skilja orð mín sem svo að mér hafi tekist að gleypa sólina því þegar ég var búin að vera heimilisföst á borgarbókasafninu í Þrándheimi í ár komst ég fyrst að því hve mikið ég átti eftir ólesið! En einhverja innsýn hafði ég óhjákvæmilega öðlast við starfann. Fór mér þá sem flestum; mig langaði að taka með heim allt það góða en skilja hitt eftir. Af eðlilegum ástæðum beindist áhugi minn helst að norskum barna- og unglingabókum þótt ein og ein sænsk eða dönsk flytu með. Og þarna var af mörgu að taka. Það er almennt álitið að norskar barna- og unglinga- bækur hafi átt sitt blómaskeið upp úr 1970. Þá verður nýja raunsæisstefnan allsráðandi í bókaskrifum þar í landi og athyglin beinist að barna- og unglingabókum í ríkum mæli. Núna segja Norðmenn að þetta raunsæi hafi komið frá Svíum og álíta að það hafi aldrei náð sér viðlíka á strik í Noregi sem í Svíþjóð. Og stundum fannst mér reyndar sem þeir vildu sem minnst við það kannast! Raunsæið er óþarft að kynna fyrir íslenskum lesendum. Mörgum er í minni þegar verið var að kenna börnum á bók að fara til tannlæknis, ganga með lykil um hálsinn, þvo sér um hendurnar og jafnvel missa föður sinn eða móður. Hér skal ósagt látið hvort þessi sveifla varð jafn stór á íslandi og í Noregi en afleiðingar þessa tímabils hefðu betur orðið svipaðar hér og þar. Öflugar raddir þeirra sem skrifuðu fyrir þessa hópa í Noregi urðu til þess að farið var að beina athyglinni að bókum þeirra ekki síður en bókum sem skrifaðar voru fyrir fúllorðna. Bókmenntafræðingar og gagnrýnendur beindu sjónum sínum að þessari bókmenntagrein sem varð gróskumikil á næstu árum. Bókum fyrir börn og unglinga fjölgaði og þær voru ekki bara lesnar heima fyrir heldur fylgdu þýðingar á erlend tungumál. Enn er svo að ein af hverjum þremur bókum sem eru keyptar samkvæmt innkaupaskyldu bókasafna eru þýddar og seljast vel á erlendum markaði. Til samanburðar má nefna að á síðustu tíu árum er tala íslenskra barna- og unglingabóka sem þýddar hafa verið og komið út erlendis í allt innan við fimmtán titlar. 1965 hafði verið tekin upp innkaupaskylda bóka- safna, skyldu keypt eitt þúsund eintök valinna fúllorðinsbóka en fimm hundruð eintök valinna barna- bóka sem skiptust á milli safna. En barnabækur voru í öruggri sókn. 1978 var hætt að gera upp á milli þessara tveggja hópa í innkaupum og nú er staðan sú að barna- og unglingabækur eru komnar fram úr fullorðinsbókum með fimmtán hundruð og fimmtíu eintök af hverjum titli á móti eitt þúsund fullorðinstitlum. Annað sem vakti athygli mína voru verðlauna- veitingar. Gott dæmi eru Gagnrýnendaverðlaunin sem eru árlega veitt annars vegar höfundi barna- og unglingabókar og hins vegar höfundi sem skrifar fyrir fúllorðna. Og nokkrum sinnum hafa þau verið veitt fyrir léttlestrabækur sem segir okkur hvaða sess þær skipa þar í landi. í fyrra voru í fyrsta sinn veitt verðlaun í Þrándheimi sem eiga hér eftir að fara til rithöfunda í Þrændalögum og vera árviss viðburður. Verðlaunaféð voru tvö hundruð þúsund íslenskar krónur og fóru til Torvald Sund sem er vinsæll höfundur og búinn að skrifa árum saman fyrir börn og unglinga. Þegar ég spurði forsvarsmann verðlaunaveitingarinnar hvers vegna þeir hefðu byijað á 25 I_____________________

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.