Börn og menning - 01.09.1999, Blaðsíða 15

Börn og menning - 01.09.1999, Blaðsíða 15
BÖRN OC mENN|N6 gefa út sína fyrstu ljóðabók. Hún sagði að ef ekki hefði notið við bóka Astrid Lindgren, þá hefði hún ekki lifaó æsku sína af. Þar fann hún þá gleði og þann styrk sem hún hafði ekki annars staðar frá. Margir jafnaldrar þínir og jafnvel þeir sem yngri eru hafa sömu sögu að segja. Hvað með þá miðla, sem nú ráða ríkjum, sjónvarp, myndbönd og tölvuleiki? Þetta eru eðlisólík fyrirbœri - geta þau miðlað sömu fræðslu og lífsfyllingu og bœkur? Á mínum tíma þurftu börn að hafa ofan af fyrir sér sjálf, það gerðu engir aðrir. Ég vil ekki amast við tækninni eða nýjum miðlurn en mér finnst fólk ekki hafa gert sér nægilega grein fyrir að þeim verður að stýra. Það er vel hægt að nota sjónvarp, tölvur og myndbönd til þess að þjóna sama tilgangi og bækur ef vel er að staðið. Ég var lengi vel á móti því að bækur mínar færu á markað sem hljóðbækur og fannst það mikil niðurlæging fyrir bókina. Ég er búin að skipta um skoðun á þessu og sé ekki að það dragi á nokkurn hátt úr áhuga barna á bókum að hlusta á þær af snældu. Aðalatriðið er að vel sé gert. Því miður er framleitt hræðilegt drasl bæði í bókaformi og öðrum myndum og það efni bjargar ekki nokkru barni. Þú varst ung farin að lesa en fórst ekki að skrifa fyrr er nokkuð seint. Hvaðkom til? Það var áreiðanlega engin tilviljun. Ég var þrjátíu og átta ára þegar fyrsta bókin mín kom út. Ég hafði aldrei hugsað mikið út í það en svo hitti ég minn fræga kollega Astrid Lindgren sumarið 1990 og þá kom í ljós að hún hafði líka verið þrjátíu og átta ára þegar hún skrifaði sína fyrstu bók. Ég fór eitthvað að undrast þetta og þá sagði hún: „Þetta er ekkert sérstakt, við erum allar þrjátíu og átta þegar við byijum!“ Og skýringin er auðvitað sú að konur eru bundnar yfir börnum og búi fram eftir / aldri og hafa hvorki næði né afgangsást til að sjá önnur ljós! Ég var að vísu svo sein til að ég var með lítil börn þá. Þetta hefur líka eitthvað með sjálfstraust að gera, ég held 1 að karlmenn hafi miklu minni áhyggjur af því hvort þeir hafi eitthvað að segja strax barnungir. Konur eru ekki eins öruggar um eigið ágæti og ekki eins firrtar allri dómgreind um gildi lífsreynslu, sem umhyggja og ábyrgð gefa manneskjunni. Umhyggja fyrir börnum, öldruðum og sjúkum sem meira mæðir á konum. Lífsreynsla karla er öðruvísi, ég þori varla að segja yfirborðslegri! Flestir myndu trúlega skilgreina þig sem skemmtilegan rithöfund fyrst og fremst þótt í bókum þínum sé oft alvarlegur undirtónn. Þú fjullar með hressilegu orðbragði um skoplegar hliðar hversdagsins, litríkar persónur og smá- skondinn breyskleika fullorðinna, létt galnar ömmur og þvíumlíkt. Ertu svonaglaðvær eða ertu að lýsa þeim anda sem ríkti í þinni stóru fjölskyldu? Ég virka sjálfsagt hress og kát útávið og hef líklega alltaf gert það. Auðvitað segir það ekki alla söguna. Heima vorum við íjórtán í heimili í næstum engu húsnæði, ætli það hafi ekki verið svona sextíu fermetrar á tveimur hæðum. Maður skilur ekki í dag hvernig í ósköpunum þetta var hægt, enda var það ekkert hægt. Hvaða leið á maður þá út úr því? Maður reynir að bera sig mannalega, forðast alvarlega árekstra, grípur til þess að gera gott úr öllu og vera hress og kátur á hverju sem gengur. Að ýmsu leyti erum við samheldið og úrræðagott fólk sem leysir þau vandamál sem upp koma og styðjum hvert annað ef á bjátar. Ertu að skrifa um þetta skemmtilega kompaní til að geta verið áfram með eða er þetta mynd af íslenskum raunveruleika sem þú vilt styrkja? Ég er vissulega mikil íjölskyldumanneskja. Mér finnst einfaldlega að uppeldi barna sé ekki og eigi ekki að vera einkamál tveggja manneskja, þaðan af síður einnar, heldur þurfi stuðningur fleiri að koma til. Við syst- kinin erum kannski óvenju náin að því leyti að við umgöng- umst furðu mikið, komum saman og töl- um saman í síma, erum óttalegt „klan“ án þess þó að við séum mikið að ræða viðkvæm einkamál. Við erum öll fremur hress og kát og ef við vitum að eitthvað er að hjá einhverju okkar er ekkert endilega verið að blanda sér í það. Það eru bara allt í einu allir komnir. Allir eiga sínar erfiðu stundir en við erum ekki mikið fyrir að skeggræða þær, bítum frekar í koddann okkar. Seiglan er kannski sterkur þáttur í okkur öllum; að láta ekkert berja okkur niður, heldur rísa galvösk upp aftur. Þess vegna er það nokkuð áberandi í bókum mínum, sem ég reyndar tók ekki eftir fyrr en ég var búin að skrifa margar, semsagt þessi árátta að „taka til 13

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.