Börn og menning - 01.09.1999, Blaðsíða 12

Börn og menning - 01.09.1999, Blaðsíða 12
BBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY IBBY FRÉTTIR BÖRN OG mENN|NG IBBY FRETTIR IBBY FRETTIR IBBY FRETTIR IBBY IBBY FRETTIR BBY FRETTIR IBBY FRETTIR IBBY FRETTIR 03 B < Bókakaffi sem bragðerað 7. október síðastliðinn efndu Börn og bækur og Síung til bókakaffis í fyrsta skipti. Samkoman var haldin í Gunnarshúsi sem er aðsetur Rithöfunda- sambandsins en Síung er félag barna- og unglinga- bókahöfunda innan sambandsins. Áður en hið eiginlega bókakaffi hófst gerði Gunnhildur Hrólfsdóttir stuttlega grein fyrir starfsemi Síung og Iðunn Steinsdóttir kynnti IBBY, ásamt íslandsdeildinni Börn og bækur. Einnig var greint frá hvaða bækur og höfundar hefðu hlotið tilnefningar á heiðurslista IBBY og til H.C. Andersen verðlaunanna af hálfu íslandsdeildarinnar. Verður nánar gerð grein íyrir tilnefningunum hér á eftir. Frummælandi í bókakaffinu var Anna Heiða Pálsdóttir, M.A. sem nú stundar doktorsnám í barna- bókmenntum í Englandi. Nefndi hún erindi sitt Hvað er með ásuin? Hvað er með álfum? Norrœn goðafrœði í íslenskum barnabókmenntum. Anna Heiða gerði grein fyrir því að merkilega lítið væri um beina notkun á norrænni goðafræði í íslenskum barnabókum sem hins vegar hefði óspart verið notuð á hinum Norðurlöndunum og t.d. á Bretlandi. Hugsanlegar ástæður taldi hún vera eftirfarandi: 1) Efnið stendur okkur of nærri. 2) íslensku fornkvæðin eru „heilög“. 3) Þetta eru heiðin trúarbrögð og við erum kristin þjóð. Bráðskemmtilegar umræður spunnust um þetta efni að fyrirlestrinum loknum og voru fundarmenn helst á því að goðsögurnar hefðu hingað til verið nánast heilagar en það myndi breytast í tímans rás og að sú þróun væri í raun hafin. Af hálfu stjómar Barna og bóka var þetta fyrsta barnabókakaffi nokkurs konar tilraunaverkefni um hvort grundvöllur væri fyrir því að skapa almennum félagsmönnum vettvang til að hittast og rabba óformlega um þetta áhugamál okkar allra, barna- bókmenntirnar. Tilraunin tókst svo sannarlega; samkoman var betur sótt en nokkur þorði að vona og umræður voru hinar líflegustu. Gert er ráð fyrir að halda annað bókakaffi þann 27. janúar á Súfistanum, {sjá auglýsingu á blaðsíðu 18}. Heimsþing í Kólumbíu 27. heimsþing IBBYsamtakanna verður haldið í borginni Cartagena de Indias í Kolumbíu 18. - 22. september nk. Það em IBBYdeildirnar í Suður-Ameríku un_L3Ud A99I UIJLL39J A99I UIJ_L3Ud A99I 9IJJL39j A99I 9IJJ.39J A99I 73 s sem standa sameiginlega að þinginu sem ber yfir- " skriftina „The New World for a NEW WORLD jg, Children’s books for the new millennium“. Á þinginu 3 er ætlunin að skoða menningartengsl Ameríku og gamla ^ heimsins, sem og tengslin milli Suður- og Norður- " Ameríu og þá sérstaklega hlutverk barnabókmennta í 3 þessu samhengi. Þetta verður gert í formi fyrirlestra- 3 halds, hringborðsumræðna og málstofa. Einnig verður f séð til þess að fagfólk á ýmsum sviðum, svo sem 5 bókasafnsfræðingar, kennarar, rithöfundar, myndlistar- 3 menn og ritstjórar, fái tíma til að hitta kollega sína og íj skiptast á skoðunum og miðla reynslu. - Á heimsþinginu er haldinn aðalfundur alþjóða- 5 samtakanna þar sem kosin er ný stjórn og fulltrúar 5 landsfélaganna flytja skýrslur sínar. Þá eru H.C. < Andersen verðlaunin veitt við hátíðlega athöfn og S. heiðurslisti samtakanna kynntur. Þegar hefur verið 3 ákveðið að einn fulltrúi stjómar íslandsdeildarinnar fari á ; þingið en það er opið öllum félögum í IBBY- " samtökunum og væri óneitanlega skemmtilegt ef fleiri g, sæju sér fært að fara sem fulltrúar íslands. Allar nánari 3 upplýsingar um heimsþingið í Kólumbíu veitir Guðlaug - Richter, netfang, gulla@itn.is. " 73 m* 3 73 m> 3 73 Aflfll Aflfll \IIU3Bd Aflðl BIJJ.3B3 Aflfll >IIJJ.3lld Aflfll BIJJ.3BJ Aflfll

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.