Börn og menning - 01.09.1999, Blaðsíða 19
BÖRN OG aaENN|N6
I ÍAth- vJ&Ilwi
Inga Ósk Asgeirsdóttir:
fóii
Kapalgátan eftir Jostein Gaarder kom út á síðasta ári í þýðingu
Sigrúnar Arnadóttur. Sagan er heimspekileg skáldsaga sem snýst
um spurninguna: Hvers vegna eru mennirnir til?
Jostein Garder
Kapalgátan
Mál og menning 1998
Kerðasagan
í Kapalgátunni skiptast á tvær frásagnir. Annars
vegar er frásögn Hans Tómasar af ökuferð þeirra feðga
frá Noregi í leit að móður Hans sem hafði
yfirgefið þá átta árum fyrr þegar Hans var
tjögurra ára. Hins vegar er Bollubókin sem
Hans les á leiðinni.
Faðir Hans er vélamaður og mikill
áhugamaður um heimspeki. Ferðin til Áþenu
er því eins konar pílagrímsferð. Á leiðinni
er hann óþreytandi að fræða Hans um
heimspeki, sögu og landafræði. í
„smáíyrirlestrunum“ eins og Hans kallar
þá leggur faðirinn, í anda Sókratesar,
áherslu á hversu lítið maðurinn veit um
sjálfan sig. Með því að lýsa hvernig
tilviljanir stjórna lífi fólks vekur
faðirinn upp spurningar um hvað sé
tilviljun og hvað flokkist undir
forlög.
Umræða feðganna er mjög
skemmtileg og varpar nýju ljósi á
hluti sem teknir eru sem gefnir.
Þar sem henni er miðlað af Hans Tómasi
verður ffæðileg orðræða pabbans dálítið spaugileg.
Stundum gefur hann ekki færi á skoðanaskiptum og
gengst upp í því að vera gáfaður. Þessi blinda á sjálfan
sig er mannleg og lýsingar Haiis á föður sínum
einkennast því ekki af háði heldur hlýju.
Bollubókiio
Með tilkomu Bollubókarinnar skarast mörk
raunveruleika og ævintýris og þegar líður á söguna
mást þau út. í Ölpunum gefur dvergur Hans Tómasi
stækkunargler. Stuttu síðar gefur bakari honum bollu
með agnarsmárri bók í. Bollubókin er
leyndarmál þeirra tveggja og nú
kemur stækkunarglerið sér vel.
Bollubókin og ferðasagan eru
sagðar til skiptis og aðgreindar
með mismunandi letri. Atburðir
Bollubókarinnar eru ævintýri
líkastir en þó virðast þeir eiga sér
sannsögulegan kjarna. I henni segir
frá töfraeyju sem stækkar þegar er
komið á hana. Á eyjunni eru ávextir
og dýr sem hvergi fyrirfinnast og
íbúar hennar eru litlar manneskjur,
auðkenndar sem spil. Skipsbrotsmaður á
eyjunni hafði í einsemd sinni
persónugert spil og síðar höfðu spilin
lifnað við. í lok sögunnar breytist
spilafólkið aftur í spil, jókerinn einn lifir af
og kemst í burtu ásamt öðrum
skipsbrotsmanni sem síðan kemur sögunni á
framfæri.
17