Börn og menning - 01.09.1999, Blaðsíða 41

Börn og menning - 01.09.1999, Blaðsíða 41
BÖRN OG mENNiNG tímanum en það er myndlæsi. Nútímasamfélagið er hlaðið myndrænu efni sem birtist fólki í öllum myndum og gerðum, allt frá umferðaskiltum til auglýsingaskilta, arkitektúr til útilistaverka. Þetta efni er sjaldan textað og því þurfa þjóðfélagsþegnarnir að geta lesið í þessar upplýsingar jafnharðan. Þrátt íyrir að myndrænt efni eigi í eðli sínu að vera aðgengilegra en hið ritaða orð, að því leyti sem mynd vísar til þekkts veruleika, þá er það ekki einhlítt því mál mynda byggist iðulega á einhverri breytingu, einföldun eða afmörkun hins þekkta veruleika. Umferðaskilti eru einfölduð tákn og auglýsingar ofhlaðnar veislur fyrir augað. Þannig er augljóst að staða myndasagna og annars sjónræns afþreyingarefnis getur verið mjög mikilvæg fyrir nútímasamfélagið og einstaklinga innan þess og því varhugavert að hafna slíku efni á þeim forsendum að það sé ómerkilegt og innihaldslaust. Það er ákveðin list eða tækni að lesa í og vinna úr hinu myndræna áreiti og þessa kúnst kennir teiknimyndasagan einna best. Greinarhöfundur er bóhnenntafrœðingur og stundakennari við Háskóla Islands. 39

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.