Börn og menning - 01.10.2002, Síða 16
14
Börn og menning
lirfan sem hún skammaði svo ákaft, en litla
lirfan man allt og fyrirgefur því heimur henn-
ar er svo fallegur og það er svo gaman að
fljúga!
Inn í þetta fléttast svo snörp fræðsla um
hvernig lífið gengur fyrir sig meðal skordýra
í garðinum, allt afskaplega nett og smart, en
það fallegasta við myndina er að þótt litla
lirfan Ijóta sé orðin að fallegu fiðrildi, þá er
hún alveg jafn ófríð og áður þessi elska,
skökk í framan og skögultennt. Fegurðin er
jú svo margskonar.
Stemningin á frumsýningu var rafmögnuð
og ungarnir lifðu sig hvílíkt inn í myndina að
þegar ógnvekjandi kóngulóin var við það að
hremma litlu lirfuna Ijótu hrópaði einn upp
fyrir sig, með grátstafinn í kverkunum:
„Þetta er hræðileg mynd, ég vil fara heim!"
Betri meðmæli er varla hægt að hugsa sér,
því til að ná fram slíkri skelfingu þarf barnið
að hafa tekið aðalhetjuna, litlu Ijótu lirfuna,
að hjarta sér.
Lilo og Stitch
Disney-fyrirtækið hefur löngum legið undir
ámæli fyrir að framleiða afturhaldsamt
barnaefni, að taka sögur eins og af litlu haf-
meyjunni og matreiða hana á íhaldsaman
hátt, að bjóða upp á staðlaðar kvenímyndir
sem minna mest á barbídúkkur og þar fram
eftir götunum. Það þótti því hið besta mál
þegar fleiri fyrirtæki eins og Dreamworks,
fóru að framleiða teiknimyndir, sem skáru sig
um margt úr hinum hefðbundna Disney-stíl
og gerðu jafnvel grín að honum, en dæmi
um slíka mynd er Skrekkur sem fjallað er um
annarsstaðar f þessu riti.
Á sínum tíma þótti Mulan dæmi um að
Disney væri að brjótast undan eigin íhalds-
semi, en þar segir frá kínverskri stúlku sem á
erfitt með að fóta sig í sínu hefðbundna kyn-
hlutverki. Það að Mulan er kínversk breytti
strax ímynd Disney-kvennanna, en yfirbragð
hennar var austurlenskt öfugt við hina eilífu
Ijóshærðu og/eða bláeygu og ofurfínlegu
prinsessur sem hafa aflað Disney svo mikilla
vinsælda. (I Disney-búðinni í New York var
hægt að kaupa endalausa prinsessupakka,
ferðatöskur á hjólum, snyrtidót og kjóla.) En
ég held að óhætt sé að segja að með Lilo og
Stitch sé gengið enn lengra í því að skapa
aðrar kvenímyndir.
Litla systir Nani, Lilo, er afskaplega sjálf-
stæður og - viðurkennum það bara -
óþekkur krakkaormur! Hún veldur Nani
eilífum vandræðum, en þær eru munaðar-
leysingjar og stóra systir þarf að berjast fyrir
réttinum til að fá að hafa Lilo hjá sér. Lilo vill
eignast hund en ekki vill betur til en svo að
hún hrífst mest af afskaplega undarlegu
„Betri meðmaeli er varla hægt að
hugsa sér, því til að ná fram slíkri
skelfingu þarf barnið að hafa tekið
aðalhetjuna, litlu Ijótu lirfuna, að
hjarta sér."