Börn og menning - 01.10.2002, Blaðsíða 21

Börn og menning - 01.10.2002, Blaðsíða 21
Tsatsiki og mútta 19 Línu langsokk: hún er Lína sem fullorðin kona og þótt kroppurinn hafi breyst er hún uppátækjasöm og uppreisnargjörn eins og freknótta stelpan með rauðu flétturnar. Hún rífur sig úr skóm og sokkum, gengur á hönd- unum um skólalóðina og veifar með tánum. Hún rífur gleraugun af skólastjóranum, skammast í honum, spilar í hljómsveit og klifrar í trjám. Samt er hún engin ofur- mamma, hún á sínar myrku stundir; eins og margar mæður þjáist hún af samviskubiti yfir því að vera ekki nógu góð móðir, að geta ekki einu sinni búið til kjötbollur, og það sem meira er: að hafa ekki gefið drengnum tæki- færi til að kynnast föður sínum. Ástin sem sonur hennar með heita, suðræna hjartað eys yfir hana læknar þessi sár að mestu leyti. Stærsti kosturinn við múttu er hversu mannleg og breysk hún er. Hún elskar of mikið, lifir fyrir liðandi stund og hugsar ekki alltaf um afleiðingarnar. Hún grætur þegar vænta mætti hláturs og hlær þegar aðrir hafa áhyggjur af smámunum. Sumum þætti hún einum of umburðarlynd og agalaus hvað strákinn varðar. Þessar frjálslegu upp- eldisaðferðir hennar hafa þó dugað vel og sáð fræjum siðferðis- og réttlætiskenndar í Tsatsiki. Ungir krakkar sem eldri hljóta að hafa gaman af því að lesa um svona krakka sem þora að láta reyna á mörk hins hættu- lega og forboðna. Lesandi sem einhvern tíma hefur verið lítill skilur svo vel þá óskap- legu þrá og óstjórnlegu forvitni sem heltek- ur hinn unga Tsatsiki þegar hann sér nælon- sokkaklædda, loðna fótleggi kennslukon- unnar. Hann hreinlega verður að snerta þá. Hann er nú einu sinni sonur hinnar breysku múttu og verður að láta undan skyndi- hvötum sínum, hverjar sem afleiðingarnar eru. Húmor á húmor ofan Uppáhaldsréttur múttu er gríski rétturinn Tzatsiki. Hún vildi nefna strákinn eftir rétt- inum sem hún elskar og gera það almenni- lega - tvöfalt - en kunni ekki rétta stafsetn- ingu, svo nafnið varð Tsatsiki-Tsatsiki (það er sennilega engin mannanafnanefnd f Svíþjóð). Tsatsiki er sjö ára þegar sagan hefst og hann er ótrúlega sniðugur strákur sem ásamt Pétri Hannesi vini sínum minnir um margt á félagana Jón Odd og Jón Bjarna er þeir lögðu á ráðin um að fá sér súkkulaði- köku eða skoða öskuhaugana. Einn dásam- legasti kafli bókarinnar heitir „Mömmu- leikur" og segir frá því er Tsatsiki og Pétur Hannes fara í mömmuleik með tveimur stelpum. Tsatsiki setur á sig bleiu og leikur barnið en. Pétur Hannes er pabbinn og klæðir sig úr öllu ásamt mömmunni. Móðir Péturs Hannesar fær næstum hjartaáfall en mútta blessunin skilur krakka, hún hlær að öllu saman. mútta og löggan". Myndin hlaut, eins og bækurnar, mjög góðar viðtökur. Hún var val- in kvikmynd ársins í Svíþjóð 1999 og á kvik- myndahátíðinni í Lubeck 1999 var hún besta barnamyndin á Norðurlöndum. Síðan hefur hún verið sýnd víða um heim, meðal annars i íslensku sjónvarpi árið 2000, og hlotið mikið lof gagnrýnenda. Vonandi líður ekki á löngu þar til næsta bók um Tsatsiki kemur út á íslandi en í henni fáum við vonandi að kynnast gríska kolkrabbaveiðimanninum sem heillaði múttu með þessum yndislegu afleiðingum. Framhaldið: bækur og kvikmyndir Sem betur fer koma fleiri bækur um Tsatsiki. Alls hafa fimm bækur um hann komið út í Svíþjóð og þær verða ekki fleiri því Moni seg- ir að hann sé orðinn of gamall til að höfða til þess lesendahóps sem hún er að skrifa fyrir. Bækurnar, sem fylgja stráknum frá 7 til 10 ára aldurs, eru margverðlaunaðar. Moni fékk m.a. Nils Holgersson-viðurkenninguna sem eru ein virtustu barnabókaverðlaunin í Sví- þjóð. Hún fékk „Bokjuryn" verðlaunin fyrir bækurnar 1997, 1999 og 2001. Hún kom á reiðhjólinu sínu til að taka á móti þeim verð- launum fyrir Tsatsiki og Retzina árið 2001 og sagði við það tilefni að verðlaunin væru I sín- um augum næstum eins og Nóbelsverðlaun- in. Engin furða, því að baki þeim stóð kvið- dómur skipaður 57 þúsund sænskum skóla- börnum. Kvikmyndaframleiðandinn Felicia Film keypti kvikmyndaréttinn að bókunum og byrjaði á myndinni sem gerð er eftir fyrstu tveimur bókunum, Tsatsiki og múttu og Tsatsiki og pápa, með titlinum „Tsatsiki, Höfundur er doktor í barnabókmenntum, rithöfundur og þýðandi I fSTÆ

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.