Börn og menning - 01.10.2002, Qupperneq 27

Börn og menning - 01.10.2002, Qupperneq 27
Magic Carpets 25 (slensku barnabókaverðlaunin 2002 hlaut Harpa Jónsdóttir, grunnskólakennari á ísafirði fyrir bók sína Ferðin til Samiraka. Sagan er frumraun Hörpu á þessu sviði en hún segir frá Sigrúnu sem er nýflutt til ísafjarðar. „Dag einn verður hún fyrir undarlegri upplifun og dregst inn í ver- öld sem er gjörólík þeirri sem hún þekkir. Hún tekur þátt í að aðstoða fólk sem berst fyrir frelsi sínu en óvinurinn virðist vera að fara með sigur af hólmi." Ferðin til Samiraka er átjánda bókin sem hlýtur íslensku barnabókaverðlaunin. Að þessu sinni bárust um tuttugu handrit í samkeppnina. Stjórn Vérðlaunasjóðsins skipa þau Kristín Ármannsdóttir kennari, Jón Freyr Þórarinsson skólastjóri, Oddný S. Jónsdóttir fyrir hönd Vöku-Helgafells, og Sólveig Ebba Ólafsdóttir frá Börnum og bókum, íslandsdeild IBBY- samtakanna. Formaður stjórnar Verðlaunasjóðs er Pétur Már Ólafsson. Börn og menning óska Hörpu til hamingju með verðlaunin. Philip Pullman og Anna Heiða Pálsdóttir vera án þess að hika," sagði hann. Slæmur leikstjóri veit ekki hvar hann á að setja vélina. Góðir leikstjórar virðast hafa innbyggða til- finningu fyrir því hvar eigi að setja hana og höfundar ættu að taka sér þá til fyrirmyndar. Höfundur ætti líka að gæta þess, eins og leikstjórinn, að vera ósýnilegur: hann verður að hverfa. „Verum óhrædd að treysta sög- unni," bætti hann við, „ekki kenna bókinni um allt." Slæmur höfundur segir að kápan sé ekki góð, bókinni sé ekki tranað fram, o.s.frv. Sagan skiptir mestu og höfundur á ekki að vera óöruggur eða feiminn gagnvart henni. Svo sagði hann: „Ekki fara í taugarnar á öðru fólki með feimni þinni." Enginn höfundur skrifar meðvitað eingöngu fyrir börn, segir Pullman: „Börn eru meðtalin í lesendahópn- um." En við verðum að skilja að við berum ábyrgð gagnvart yngstu les- endunum, við verðum að skilja að allt sem við lýsum hefur afleiðingar. Það er á okkar ábyrgð að sýna vonar- neista. Höfundur á alltaf að vera viss um það þegar hann skilar inn handriti að hann geti ekki gert betur. Af fleiri ráðum sem Philip Pullman gaf kol- legum sínum má nefna eitt sem varðar listina að taka slæmri gagnrýni: „Exercise your for- giveness muscles." Mjög gott ráð, því rithöf- undar eiga ekki að eyða tíma og kröftum í að óskapast yfir slæmri gagnrýni; hún kemur frá einstaklingum og öll höfum við misjafnar skoðanir. Á ráðstefnunni var haldið uppboð á rmyndum eftir barnabókahöfunda og rann ágóðinn beint til IBBY í Suður-Afríku, til að styrkja ferðir félagsmanna þeirra á alþjóð- legu IBBY-ráðstefnuna sem haldin verður í Höfðaborg 2004. Safnaðist um hálf milljón fyrir þennan góða málstað. J.K. Rowling gaf póstkort sem átti að bjóða upp á uppboðinu en þegar til kastanna kom var ákveðið að senda það til Sothebys í London: lágmarks- boð var um 400 þúsund ISK. Á póstkortið hafði hún ritað nokkur „leyndarmál" um fimmtu bókina um Harry Potter, sem er væntanleg eftir áramót. Sjálf komst Rowling ekki á ráðstefnuna en sendi okkur sínar bestu kveðjur ásamt þessu póstkorti. Bresku höfundarnir voru mjög ánægðir að sjá íslenskan fulltrúa á ráðstefnunni og töldu gleðiefni ef jafnvel fleiri kæmust á þá næstu sem haldin verður um svipað leyti 2003. Full- víst er að margir íslenskir höfundar hefðu áhuga á að fara þangað - en ráðstefnugjald ásamt gistingu og fullu fæði í þrjá daga var rétt um 30 þúsund krónur. Þegar upplýsingar berast um næstu ráðstefnu verða þær settar á vefsíðu Síung (www.rsi.is/siung). Anna Heiða Pálsdóttir

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.