Börn og menning - 01.10.2002, Page 34
32
Börn og menning
og getið var um hér í upphafi. En leið Leikfé-
lags Kópavogs að heimi ævintýranna er allt
önnur og einkar athyglisverð. í stað þess að
velja eitt ævintýri, setti hópurinn saman sýn-
ingu úr sex ólíkum Grimmsævintýrum og úr-
vinnsla þeirra og túlkun á þessu efni var
bæði frumleg og nýstárleg, enda hlaut sýn-
ingin viðurkenningar bæði heima og erlendis
og var m.a. valin athyglisverðasta áhugaleik-
sýning ársins og var sýnd af því tilefni á Stóra
sviði Þjóðleikhússins.
Líklega er þessi glæsilegi árangur Leikfé-
lags Kópavogs fyrst og fremst fólginn í því að
leikhópurinn naut stjórnar Ágústu Skúla-
dóttur sem hefur sérhæft sig í spunavinnu
þar sem unnið er með hópefli og allir þátt-
takendur eru virkir í sköpunarferli sýningar-
innar. Sköpunar- og leikgleðin skiluðu sér
mjög vel út til áhorfandans í sýningu sem
einkenndist af fjölbreyttum stíl og ólíkum
leiðum að þeim ævintýrum sem unnið var
með, en þau voru: Hans og Gréta, Herra
Kuskan, Hérinn og broddgölturinn, Gull-
gæsin, Spunakerlingarnar og Kátur kunn-
ingi. í hverju ævintýri fór leikhópurinn nýja
leið og notaði sér fjölbreytilega möguleika
leikhússins, t.a.m. voru stundum notaðar
brúður og stundum ekki - og tónlist var
skemmtilega fléttuð inn í sýninguna. En
kannski var það ekki síst trúnaðurinn við
ævintýrin sem átti þátt í að leiksýning Leik-
félags Kópavogs sló í gegn, eða eins og einn
aðstandandi sýningarinnar lýsti því í viðtali í
Morgunblaðinu: „Við tókum þá ákvörðun
um leið og við hófum vinnuna við sýninguna
að vera ekkert að sótthreinsa eitt eða neitt,
með því að taka út atriði sem gætu verið ó-
hugnanleg, eða ekki alveg pólitísk rétt. [...]
Ævintýrin birtast þarna alveg hrá og ómeng-
uð, ef svo má segja."
Höfundur er bókmenntafræðingur
á fjölunum
í vetur bjóða leikhúsin upp á ýmislegt fyrir
börn og fjölskyldur eins og endranær.
Borgarleikhúsið reið á vaðið í september
með frumsýningu á Honk, Ljóti andarung-
inn, eftir George Styles og Anthony Drewe
Þetta er fyndinn og glaðlegur fjölskyldu-
söngleikur sem snertir ungar jafnt sem eldri
sálir og er að sjálfsögðu byggður á ævintýri
H. C. Andersens um Ljóta andarungann.
hússins hefur samið er einkum ætluð
börnum á leikskólaaldri. í febrúar verður
Tónleikur eftir Stefán Örn Arnarson og leik-
hópinn frumsýndur. Þar er aðferðum leik-
hússins beitt til að miðla tónlistarflutningi og
sýn tónlistarmannsins á sellóið sitt. Um leið
kynnast áhorfendur nýjum hliðum á þessu
( Möguleikhúsinu er að vanda margt gott í
boði. Fyrsta frumsýning vetrarins var í októ-
ber en þá birtist heimalningurinn Heiðar-
snælda á sviðinu ásamt fleiri dýrum í sveit-
inni. Sýningin sem leikhópur Möguleik-