Börn og menning - 01.10.2002, Síða 35

Börn og menning - 01.10.2002, Síða 35
Búum tíl bókaorma 33 Bóklestur er yndisleg, hættulaus og tiltölu- lega ódýr leið til að efla andann, fá útrás fyrir tilfinningar og stytta sér stundir. Lest- ur veitir ánægju, huggun, uppörvun, skiln- ing, útrás og stundum hugljómun ... Svona mætti halda áfram endaiaust en ég held að þetta nægi til að undirstrika það sem ég vil segja: Bóklestri fylgja svo mikil lífsgæði að það er nánast heilög skylda okkar full- orðna fólksins að gefa hverjum einasta krakkaormi tækifæri til að verða bóka- ormur! Heyri ég úrtöluraddir? Það er svo margt annað sem glepur, staða bókarinnar hefur veikst svo mikið síðustu árin. Krökkum finnst ekkertgaman að lesa lengur, o.s.frv., o.s.frv. Ég get ekki hrakið þessar fullyrðingar með því að vísa í vísindalegar kannanir en ég bendi ykkur að fara inn á spjall- og afþrey- ingarvefinn www.hugi.is. Sjáið það sem Búum til bókaorma - lestur er bestur krakkarnir eru að skrifa um bækurnar sem þau eru að lesa. Þar þykir svo fínt að vera bókaormur að það er biðlisti fram í mars á næsta ári eftir að hljóta þennan merkilega titil! Hvernig búum við til bókaorm? Það er svo hlægilega auðvelt að engin getur afsakað sig með tímaskorti, fjárskorti eða öðrum fyrirslætti. Uppskriftin hljóðar svo: 1. Að lesa fyrir barnið strax frá fæðingu (15 mínútur á dag nægja). 2. Að hafa bækur til taks fyrir barnið til að handfjatla og jafnvel bíta í. Pantið bækur fyrir barnið í afmælis- og jólagjafir. Fáið ykkur bókasafnskort. 3. Að sýna gott fordæmi. Barn sem venst því frá fæðingu að sjá fjölskylduna lesa bækur er líklegra til að gera slíkt hið sama. Ef þetta dugir ekki þá viðurkennist hér með að það á ekki fyrir öllum að liggja að á- netjast bókum og ekkert við því að segja - en öllum ætti að bjóðast tækifæri. Það er ekki bara vegna alls þess sem ég nefndi í upphafi greinarinnar heldur er barn sem er orðið handgengið bókum þegar skólagangan hefst sömuleiðis betur í stakk búið til að takast á við námið. Aldrei of snemmt Margir velta fyrir sér hvenær sé tímabært að byrja að lesa fyrir barnið. Spyrja má á móti: Hvenær byrjar þú að tala við barnið þitt? Flestir foreldrar tala við barn sitt strax í frum- bernsku og þar sem notað er sama tungu- mál í bókum er ekkert því til fyrirstöðu að byrja um leið að lesa fyrir barnið. í fyrstu skilur barnið auðvitað ekkert í því sem fram fer en það venst röddinni sem les og bæði barn og foreldri eiga notalega samverustund sem getur orðið vanabindandi. Það er til dæmis tilvalið fyrir foreldra í fæðingarorlofi að efna strax til náinna kynna með því að setjast með litla krílið og lesa upphátt. Það er ekki eftir neinu að bíða. Guðlaug Richter klassíska hljóðfæri og sjá það í óvæntum hlutverkum. Sýningin er einkum ætluð 10 ára og eldri. Auk þessara sýninga verða eldri verk áfram á fjölum leikhússins. Frá fyrra leikári verður Prumpuhóllinn eftir Þorvald Þorsteinsson og Jólarósir Snuðru og Tuðru eftir Iðunni Steinsdóttur en einnig má eiga von á að þær systur fari á kreik þegar eldra verk um þær verður tekið til sýninga á nýjan leik. Völuspá Þórarins Eldjárn hefur nú göngu sína þriðja árið í röð en auk þess að vera á fjölunum hér heima fer það í leikferð- ir til Finnlands, Færeyja og Kanada. Einnig verður Skuggaleikur Guðrúnar Helgadóttur á ferðinni og jólaleikrit Péturs Eggerz, Hvar er Stekkjastaur? verður tekið upp að nýju. Þjóðleikhúsið sýnir áfram leikritið um tví- burana Jón Odd og Jón Bjarna eftir Guðrúnu Helgadóttur og hina sívinsælu Karíus og Baktus eftir Thorbjorn Egner. í Loftkastalanum hafa Draumasmiðjan og ís- medía nýlega frumsýnt fjölskyldusöngleik byggðan á fyrstu bókinni um Benedikt búálf og ævintýri hans og Dídíar mannsbarns í Álf- heimum eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson sem hefur sjálfur gert leikgerðina. Tónlistina samdi Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. Leikfélag Akureyrar frumsýnir barna- og fjöl- skylduleikritið Venjulegt kraftaverk eftir Jör- geny Schwartz 13. desember. (leikritinu eru söngvar og áhorfendur munu taka þátt í því sem er að gerast. Leikstjórinn er Rússinn Vla- dimir Bouchler en hann hefur getið sér gott orð víða um Evrópu. Á geðheilbrigðisdaginn 10. október frum- sýndi Stoppleikhópurinn leikritið ( gegnum eldinn. Valgeir Skagfjörð sá um leikgerðina og byggir hana á samnefndri sögu tveggja ungmenna sem hafa ánetjast fíkniefnavand- anum. Farið verður með leikritið um allt land og það sýnt nemendum 7.-10. bekkjar í grunnskólunum. Kennarar horfa á leikritið með nemendum sínum og stundum koma foreldrar líka. í kjölfar sýninganna er svo unnið úr efninu í skólanum með umræðum og verkefnavinnu.

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.