Börn og menning - 01.10.2002, Qupperneq 37
aðild en hingað til hafa eingöngu þau lönd
sem teljast sjálfstæð og eiga aðild að Sam-
einuðu þjóðunum verið gjaldgeng í IBBY. Var
nefndinni gert að skila niðurstöðum fyrir
næsta stjórnarfund í byrjun apríl nk.
Annað hitamál sem var til umræðu á
stjórnarfundunum varðaði framtíðarskipan
IBBY og tengist því að í maí nk. lætur Leena
Maissen af störfum sem framkvæmdastjóri
samtakanna en hún hefur verið rödd þeirra
og andlit um áratuga skeið. Þykir ýmsum að
þetta sé kjörið tækifæri til að breyta rekstrar-
fyrirkomulagi samtakanna og hefur m.a.
komið upp sú hugmynd að draga úr starf-
semi aðalskrifstofunnar í Basel en setja þess
í stað á fót nokkrar svæðisskrifstofur. Fyrsta
skrefið verður samt sem áður að auglýsa eftir
nýjum framkvæmdastjóra og hefur aðstoð-
arkona Leenu, Liz Page, tekið að sér að
gegna áfram sínu starfi að minnsta kosti þar
til nýr framkvæmdastjóri er fundinn. Á það
að tryggja að starfsemin leggist ekki niður í
maí þegar Leena kveður.
Kosin var ný stjórn á aðalfundinum og
hlaut frambjóðandi Norðurlanda, Vagn
Plenge frá Danmörku, kosningu. Vagn rekur
lítið útgáfufyrirtæki, Hjulet, sem sérhæfir sig
í útgáfu bóka frá fjarlægum löndum Suður-
Ameríku, Asíu og Afríku. Vagn hefur lengi
verið í góðu sambandi við IBBY og m.a. sótt
fjölmörg heimsþing samtakanna. Enginn vafi
er á því að hagsmunum Norðurlanda í IBBY
verður vel borgið í hans höndum.
Guðlaug Richter
Aðalfundur IBBY á íslandi
Að venju var aðalfundur félagsins haldinn í
maí og eins og venjulega mættu tveir félags-
menn auk stjórnarinnar. Við í stjórninni lítum
svo á að þetta sé vísbending um almenna
ánægju félagsmanna með störf okkar. Við
þökkum traustið.
Á aðalfundinum var einróma samþykkt að
hækka félagsgjaldið í 1.850 kr. á ári og nýta
féð til að bæta blaðið okkar enn frekar.
Vonum við að félagsmönnum geðjist vel að
þessum umbótum sem nú gefur að líta. Sér-
staklega skal bent á að framvegis verður í
blaðinu haldið úti dálki fyrir lesendabréf þar
sem birt verða bréf með ábendingum og
jafnvel ávitum, og að sjálfsögðu hrósi ef svo
ber undir.
Eins og félagsmenn verða nú varir við sá
íslenska deildin um útgáfu Nordisk blad að
þessu sinni en henni fylgir að sjálfsögðu tals-
verður kostnaður. Þemað í ár er húmor í
barnabókum en óhætt er að fullyrða að hver
þjóð hafi kosið að túlka það með sínum
hætti. Guðrún Hannesdóttir hannaði hina
stórskemmtilegu kápumynd sem er á Nor-
disk blad.
Aðrir fastir liðir í starfsemi félagsins eru
með miklum blóma, svo sem bókakaffið og
Gerðubergsráðstefnan. Einnig er gaman að
geta þess að þátttaka í alþjóðlegu starfi IBBY
hefur nú leitt til þess að bók Olgu Guðrúnar
Árnadóttur, Peð á plánetunnl Jörð, kemur út
í Taílandi í haust. Vonandi verður framhald á
slíkum landvinningum íslenskra höfunda
fyrir tilstilli IBBY.
Bókakaffi
Nú í október héldum við haustbókakaffi í
Súfistanum undir yfirskriftinni „Bækurnar
sem mótuðu mig í æsku". Steinunn
Jóhannesdóttir, leikkona og rithöfundur, og
Ármann Jakobsson, doktorsnemi í bók-
menntum, sögðu frá bókum sem höfðu áhrif
á þau á barnsaldri og hafa fylgt þeim í
gegnum lífið. Var afskaplega gaman að
hlýða á þau bæði tvö og athyglisvert hve
ólíkar bækurnar voru sem þau héldu upp á.
Sjálfsagt má skýra það með ólíkum aldri og
þeirri staðreynd að þau eru af sitt hvoru kyn-
inu. Ekki var síður gaman að umræðunum
sem erindi þeirra leiddu af sér enda leyndi
sér ekki að gestir nutu þess að tala um bæk-
urnar sem þeim þóttu framúrskarandi á
barnsaldri og kom greinilega í Ijós að menn
voru síður en svo á sama máli hvað þetta
varðar.