Börn og menning - 01.09.2005, Page 5
Mér finnst ...
3
Ibby á íslandi vera góður félagsskapur. Á
þeim liðlega 20 árum sem liðin eru síðan
hann var stofnaður hefur hann staðið fyrir
margs konar umfjöllun fyrir fullorðið fólk um
barna- og unglingabækur.
Það er ekki ýkja langt síðan Islendingar
skriðu út úr þrengslunum í torfkofunum
og tóku að byggja hús og íbúðir með
almennilegu geymslurými. Þá komu skúffu-
skáparnir til sögu og síðan höfum við verið
mjög upptekin af að sortera og ganga frá
hlutunum í réttum skúffum. Sem von er, loks
þegar við erum komin í almennileg híbýli
viljum við ekki hafa allt í drasli.
Börn og það sem snertir þau er í einni
skúffu og og hún er sjaldan opnuð af okkur
fullorðna fólkinu. Þess vegna hefur oft reynst
erfitt að fá fullorðna til að kynna sér það efni
sem framleitt er fyrir börn, leikið, teiknað,
lesið eða skrifað. Þegar bókmenntahátfðir eru
haldnar eru bækur fyrir börn ekki með af því
að þæreru ekki í bókmenntaskúffunni heldur
barnaskúffunni hjá öllum leikföngunum
- rétt eins og í ýmsum bókabúðum þar sem
leikfangastaflarnir hækka jafnt og þétt.
Þó fyrirfinnast þeir einstaklingar sem
láta sig barnamenningu varða og skrifa og
teikna fyrir þessa skúffu. Undanfarin ár hefur
bókaútgáfan aukist og eflst og ekki síst orðið
grundvallarbreyting á myndskreytingum í
bókum fyrir yngri börnin. En það er á
brattann að sækja og þess vegna er svo gott
að finna að til eru þeir sem vilja efla og styðja
þetta starf. Og þar kemur IBBY á íslandi
ínn í myndina. í áranna rás hefur félagið,
í samvinnu við ýmis önnur félög, staðið
fyrir ráðstefnum og samkomum ætluðum
fullorðnu fólki, þar sem listrænt efni fyrir
börn og unglinga er kynnt og rætt faglega
um það. Það skemmtilega er hve vel þessar
samkomur eru yfirleitt sóttar og umræður
líflegar. Það sýnir að til er dágóður hópur
fólks sem fylgist með barnaefni og hefur
skoðanir á því (ég býð ekki í skúffurnar hjá
þessum vesalingum).
Tímaritið Börn og menning sem IBBY
á íslandi gefur út fjallar sömuleiðis um
menningarefni fyrir börn og unglinga. Eina
málgagnið þeirrar tegundar á íslandi og
ómetanlegt að mati þeirra sem láta sig þessi
mál varða.
Og nú ætla ég að vera persónuleg. Mér
finnst IBBY á íslandi og alþjóðlegu IBBY
samtökin vera skemmtileg enda er ég búin
að starfa innan þeirra árum saman og hef
kynnst starfinu vel. Sat í ritnefnd á árdögum
samtakanna hér á landi og hef nú verið í
stjórn í nærfellt áratug.
Það er gaman að vera í stjórninni, í
henni er alltaf hresst og áhugasamt fólk.
Að vísu hefur okkur haldist óttalega illa á
karlmönnum. Þeir hafa stöku sinnum slegið
til en aldrei mætt á fundi og þar af leiðandi
dottið út. Vissulega væri fengur í að fá
stundum sjónarmið þeirra á hlutunum og
gaman ef einhverjir dugnaðarpiltar sem lesa
þetta tækju nú á sig rögg og byðu sig fram
í næstu stjórn. Aðalfundirnir eru í maí og
þeim yrði tekið opnum örmum!
Það er líka mjög gefandi að taka
þátt í alþjóðlega starfinu. Grunnhugsjón
samtakanna, að byggja brú milli ólíkra
menningarheima með barnabókum, erfalleg.
Þó að Ijóst sé að ekki hefur enn tekist aðfrelsa
heiminn með slíkri smíð er unnið margvíslegt
starf til að styrkja bókasöfn og bókaútgáfu
hjá fátækum þjóðum. Annað hvert ár eru
alþjóðlegar ráðstefnur sem standa yfirleitt í
fimm daga. Ég hef sótt nokkrar þeirra, t.d.
í Suður-Ameríku, Indlandi og Suður-Afríku
svo að eitthvað sé nefnt. Mjög er vandað
til þess efnis sem boðið er upp á og auk
þess að hlusta á góða fyrirlestra og taka
þátt í spennandi málstofum kynnist maður
þarna fólki frá öllum heimsins löndum og
aðstæðum sem eru okkurframandi. Ég hefði
ekki upplifað það að fara í heimsóknir í skóla
í Suður-Afríku þar sem börnin lærðu ýmist í
gámum eða úti í garði nema af því að ég var
þar á heimsþingi IBBY í fyrra. Ekki heldur séð
bókakost barna og unglinga í Indlandi sem
samanstóð aðallega af litlum bæklingum
sem tæplega myndu flokkast undir bækur
hér á landi.
Mig langar að nota tækifærið og benda
ykkur félagsmönnum í IBBY á að það geta
allir tekið þátt í ráðstefnunum og þær
eru ótrúlega gefandi. Þama koma saman
bókasafnsverðir, útgefendur, kennarar,
rithöfundar og myndlistarmenn frá ýmsum
löndum. En frá íslandi mæta einungis tvær til
þrjár stjórnarkonur. Þetta eru ekki ráðstefnur
fyrir lokaðan hóp, þær snúast um málefni
sem varða okkur öll. Sú næsta verður í
Peking 20. - 24. september á næsta ári.
Upplýsingar um hana veitum við í stjórn IBBY
á íslandi og ég hvet ykkur til að hugsa málið
og byrja strax að safna. Ég veit að enginn
sem fer verður fyrir vonbrigðum.
Höfundur er rithöfundur og kennari.