Börn og menning - 01.09.2005, Síða 20

Börn og menning - 01.09.2005, Síða 20
18 Börn og menning Klaufar og kóngsdætur - ævintýraheimur H.C. Andersens, sýnt í Þjóðleikhúsinu. Höfundar handrits og söngtexta: Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Höfundar sönglaga: Ármann Guðmundsson og Þorgeir Tryggvason. Leikstjóri og sviðshreyfingar: Ágústa Skúladóttir. Aðstoðarleikstjóri og sviðshreyfingar: Aino Freyja Jarvelá. Leikmynd: Frosti Friðriksson. Búningar: Þórunn E. Sveinsdóttir.. Tónlistarstjórn: Jóhann G. Jóhansson. Brúður og brúðuleikstjórn: Bernd Ogrodnik. Lýsing: Páll Ragnarsson. Leikur: Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, Björgvin Franz Gíslason, Kjartan Guðjónsson, Randver Þorláksson, Sigurður Skúlason, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Þórunn Lárusdóttir og Örn Árnason. Hljóðfæraleikarar: Jóhann G. Jóhannsson, Tatu Kantoma og Hjörleifur Valsson. Bjarni Guðmarsson Á sagnavængjum þöndum Á árinu hefur ferill og framlag H.C. Andersens verið margrifjaður upp til að minnast 200 ára afmaelis skáldsins sem mettaði barnssálina með fullorðinslegum hugsunum og kallaði barnið fram í sálum hinna fullorðnu. Ævintýri Andersens hafa í hálfa aðra öld verið sjálfsagt veganesti í uppvexti hvers mannsbarns að heita má; allir eiga bernsku- minningar tengdar þessum makalausu sögum og fæstir hafa raunar getað sleppt þeim þótt komið væri fram á fullorðinsár. Ég býst við að allir eigi sín uppáhaldsævintýri úr þessu safni, mér var sem barni sjálfum t.d. ákaflega hugleikin ráðsnilld dátans í Eldfærunum og fannst sömuleiðis gaman að heyra um Litla- Kláus og Stóra-Kláus (þótt ég setti auðvitað spurningarmerki við meðferð á ömmum þar) og auðvitað öll hin ævintýrin líka. Karl faðir minn átti Ævintýri H.C. Andersen í nokkuð fornlegu bandi, stórt og mikið bindi, og á þessu var ég fóðraður uns ég varð sjálfbjarga hvað þetta varðar og las þá bókina upp til agna (í eiginlegri merkingu, er ég hræddur um). Ég geri ráð fyrir að aðrir hafi sömu eða svipaða sögu að segja. Því var það ekki nema rétt sjálfsagt að karli væri haldin almennileg veisla í öllum hornum heimsins þegar hann fagnaði 200 ára afmæli. Þjóðleikhúsið lætur ekki sitt eftir liggja í þessum hátíðarhöldum og býður upp á bragðmikla, margrétta leikhúsveislu, Klaufa og kóngsdætur, þar sem rifjuð eru upp nokkur kærustu ævintýri skáldsins. Skemmst er frá því að segja að sýningin hefur notið mikillar hylli og hlaut m.a. Grímu-verðlaunin sem barnaleiksýning ársins og var tilnefnd í einum þremur flokkum til viðbótar. Mér er Ifka nær að halda að afmælisbarninu sjálfu hefði líkað þessi uppfærsla alls kostar vel enda er hann sjálfur miðpunkturinn og andi hans yfir og undir og allt um kring. í fáum orðum er sýningin Klaufar og kóngsdætur barnsleg og óharmin; hún er stundum grá og grimm, miskunnarlaus og full af sársauka en á sama tíma svo dæmalaust litrík og blíð og skemmtileg - alveg eins og ævintýri eftir H.C. Andersen. Ljótur andarungi? Hans Christian Andersen var fæddur 2. apríl 1805 í Óðinsvéum. Hann var sonur fátæks skómakara og þvottakonu og bjó fjölskyldan í einu litlu herbergi. Sagt er að föðurleggurinn

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.