Börn og menning - 01.09.2005, Síða 16

Börn og menning - 01.09.2005, Síða 16
14 Börn og menning leiklist Þorgeir Tryggvason Ekki ætlað börnum Börn í leikhúsi. Setningin kveikir mynd af stóreygum ungum áhorfendum sem hugfangin lifa sig algerlega inn í töfraheiminn á sviðinu. Eða kannski krakkahóp að ærslast í mannmörgu barnaleikriti. Leikhúsið vill laða til sín börn, bæði vegna þess hve gefandi góð leiksýning er, en ekki siður með það að markmiði að ala upp tryggan áhorfendahóp sem lítur á það sem sjálfsagðan hlut að kaupa sér leikhúsmiða, og er þar að auki læs á tungumál sviðsins. Fyrsta leikhúsreynslan er oft ein af dýr- mætustu bernskuminningunum. Sjálfur man ég fyrst eftir mér í leikhúsi á Skugga- Sveini á Húsavík, og þótti magnað. Langbest var þó að fá að fara á bakvið og sjá að Grasa-Gudda var hreint ekki tannlaus, heldur með svartmálað stellið. Vopn og gæruskinn útilegumannanna voru þó allteins ógnvænleg í návígi. Barnaleikrit sá ég ekki lengi vel, og man satt að segja ekki hvenær ég sá slíka leiklist fyrst, en veit að áður en það gerðist var ég bæði búinn að sjá Pétur Gaut eftir Ibsen og Ég vil auðga mitt land eftir þá Matthildarmenn og hafa gaman af hvorutveggja. Börn í fullorðinsleikhúsi. Það er á köflum nokkuð undarleg saga. Þrátt fyrir að heita eigi að raunsæi og natúralismi hafi gerst fyrirferðarmikill í leikbókmenntum síðustu ríflega hundrað ár eru börn ennþá giska ósýnileg í þeim stofukómedíum öllum. Enginn höfundur fer eins nálægt hversdegi venjulegs fólks og Chekhov en þar sjást engin börn. Það er stundum á þau minnst en eins og fyrir einhverja forsjón eða tilviljun eru þau alltaf einhvers staðar annars staðar. Auðvitað á barnleysið sér praktískar skýringar sem lúta að fagmennsku, vinnuálagi og þroska. En fyrir kemur að leikhúsið brýtur odd af oflæti sínu gagnvart börnunum og kallar þau til starfa á vettvangi „fullorðinsleikhússins". Lítum á þrjár slíkar sýningar. Allir drepa yndið sitt írska skáldkonan Marina Carr sækir efniviðinn í verk sitt Mýrarljós um langan veg í tíma og rúmi. Hún endurskapar hina fornu goðsögn um svartahafsprinsessuna Medeu í sínu eigin umhverfi, í írskum smébæ. Þar hefur utangarðskonan Hester Swan verið ástkona ríks bóndasonar um árabil en er nú vikið til hliðar fyrir ákjósanlegra konuefni af betri stigum og með feitari heimanmund. Líkt og formóðir hennar úr suðurlöndum verður Hester sífellt ólmari í bræði sinni yfir töpuðum ástmanni og öryggi, en þegar röðin kemur að því að hirða af henni barn þeirra stígur hún síðasta skrefið. Dóttirin skal ekki verða óvininum til gleði. Verkið er býsna magnað. Ljóðrænt og safarfkt og byggir á sterkri leikritunarhefð l'ra. Fyrir minn smekk fellur það síðan því miður á stóra prófinu. Marina Carr megnar ekki að láta hetjuna sína farga barni sínu af hefndarhug einum. Þess í stað seilist hún í heldur billega sálarfræði og lætur hana fyrirfara dótturinni til að hlífa henni við því móðurleysi sem hún sjálf bjó við. Fyrir vikið glatar leikritið harmrænni reisn hinnar fornu sögu og verður eins og sérstætt sakamál úr ódýru helgarblaði.

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.